Þingmenn Norðausturkjördæmis heimsóttu Múlaþing í nýafstaðinni kjördæmaviku. Fyrst tóku þeir þátt í vígslu nýs raftengingarbúnaðar fyrir ferjuna Norrænu á Strandarbakkahöfninni á Seyðisfirði og á eftir funduðu þeir með sveitarstjóra og oddvitum lista í Múlaþingi.
Á fundinum, sem fór fram í bíósalnum í Herðubreið, voru mörg hagsmunamál sveitarfélagsins rædd. Meðal þess sem bar á góma voru samgöngumál, vetrarþjónusta og framtíðarmöguleikar Egilsstaðaflugvallar. Þá komu fram áhyggjur af fyrirhugaðir niðurfellingu tolla af jurtaosti og áhrifum hennar á starfsstöð MS á Egilsstöðum. Jafnframt var rætt um áhyggjur af hækkun gjalda á baðlón og skemmtiferðaskip, húsnæðisskort lögreglunnar á Seyðisfirði, áhyggjur af fækkun opinberra starfa í sveitarfélaginu og tækifæri í aukinni heilbrigðisþjónustu í heimabyggð. Rík áhersla var lögð á að hraða afgreiðslu frumvarps um afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati og fasteignaskatti og að frumvarp um nýja löggjöf um lagareldi komist aftur á dagskrá þingsins.
Jónína Brynjólfsdóttir forseti sveitarstjórnar sagði eftir fundinn að það væri mikilvægt að ná beinu samtali sem þessu við þingmenn kjördæmisins: „Við treystum því að þingmennirnir taki þessi mál með sér suður og komi þeim á dagskrá fyrir okkur.“ Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður byggðaráðs bætti við að þetta hefði verið mikilvæg brýning til þingmannanna og þótt að sum málin væru endurtekin þá megi ekki gefast upp á að reyna að koma þeim á framfæri: „Þetta samtal við þingmennina var gott en mér finnst orðið tímabært að við sjáum einhverjar breytingar verða í þeim málum sem við höfum lengi barist fyrir og treysti því að svo verði.“
