Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

152. fundur 06. maí 2025 kl. 08:30 - 11:20 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Vilhjálmur Jónsson varaformaður
  • Ívar Karl Hafliðason aðalmaður
  • Eyþór Stefánsson aðalmaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson varamaður
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri
  • Inga Þorvaldsdóttir fundarritari
  • Óðinn Gunnar Óðinsson skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Inga Þorvaldsdóttir fulltrúi á stjórnsýslusviði

1.Fjármál 2025

Málsnúmer 202501003Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri og fjármálastjóri fóru yfir mál er varða fjárhag sveitarfélagsins.

2.Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045

Málsnúmer 202208083Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til umsagnar vinnslutillaga nýs aðalskipulags Múlaþings sem er í kynningarferli skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vakin er athygli að gögn vegna vinnu við aðalskipulagið má finna hér https://skipulagsgatt.is/issues/2023/1030
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð felur sveitarstjóra að koma ábendingum á framfæri við umhverfis- og framkvæmdaráð í samræmi við umræður á fundinum. Byggðaráð óskar einnig eftir að Skipulagsfulltrúi og verkefnastjóri skipulagsmála á vegum umhverfis- og framkvæmdasviðs komi inn á næsta fund byggðaráðs varðandi ábendingar við vinnslutillögu nýs Aðalskipulags Múlaþings.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

3.Innsent erindi, Bætt veðurgjöf við Egilsstaðaflugvöll

Málsnúmer 202504209Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun umhverfis-og framkvæmdaráðs dagsett 28. apríl 2025 þar sem erindi frá áheyrnafulltrúa M-listans Benedikt V. Waren, m.a. um bættar veðurupplýsingar við Egilsstaðaflugvöll, er vísað til byggðaráðs.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð felur sveitarstjóra að koma ábendingum varðandi bættar veðurupplýsingar við Egilsstaðaflugvöll til Veðurstofu Íslands þar sem eðlilegast er að fá sérfræðinga þar til að meta þörfina á aukinni veðurgjöf við Egilsstaðaflugvöll.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Hannes Karl Hilmarsson lagði fram eftirfarandi bókun:
Undirritaður lítur það alvarlegum augum, að hætt hafi verið við að sleppa veðurbelgjum vegna fjárskorts og það eitt hlýtur að koma niður á gæðum úrvinnslu veðurspáa. Þessu verður að koma í fyrra horf og frekari framþróun í málaflokknum þolir enga bið.
Egilsstaðaflugvöllur er mikilvægur hlekkur í flugöryggiskeðju Íslands og vandaðar flugveðurspár eru þar lykilatriði.

4.Umferðastýring á Seyðisfirði

Málsnúmer 202411166Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til afgreiðslu drög að auglýsingu um umferð á Seyðisfirði en samkvæmt henni er allur akstur stórra ökutækja bannaður á Bjólfsgötu, nema til vörulosunar hjá þjónustuaðilum, frá 1. júní til 30. september ár hvert.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð samþykkir fyrirliggjandi drög að auglýsingu um umferð á Seyðisfirði og felur sveitastjóra að láta birta hana í Stjórnartíðindum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf. 2025

Málsnúmer 202504027Vakta málsnúmer

Fyrir liggur boðun á aðalfund Landskerfis bókasafna hf. árið 2025.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð felur forstöðumanni Bókasafns Héraðsbúa að sitja fundinn í fjarfundi fyrir hönd Múlaþings.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

6.Umsagnarbeiðni um 270.mál. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

Málsnúmer 202504266Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tölvupóstur dagsettur 29.4.2025, frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis, þar sem vakin er athygli á, að frestur til að skila inn umsögn um mál 270, Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, er til 13. maí 2025.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að skila inn til nefnda- og greinarsviðs Alþingis umsögn í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Fundi slitið - kl. 11:20.

Getum við bætt efni þessarar síðu?