Fara í efni

Afslættir af gatnagerðargjöldum í Múlaþingi 2026-2030

Málsnúmer 202602089

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 174. fundur - 16.02.2026

Fyrir liggja drög að afslætti af gatnagerðargjöldum í Múlaþingi fyrir árið 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að vísa því til byggðaráðs að taka til umfjöllunar afslætti af iðnaðar-, athafna-, verslunar- og þjónustulóðum.

Málið verður tekið fyrir hjá ráðinu að nýju.

Samþykkt samhljóða.

Byggðaráð Múlaþings - 180. fundur - 24.02.2026

Fyrir liggur bókun frá fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 174. fundi ráðsins frá 16. febrúar síðast liðinn, þar sem því er vísað til byggðarráðs að taka til umfjöllunar tillögu um afslætti á gatnagerðargjöldum af iðnaðar-, athafna-, verslunar- og þjónustulóðum.
Málinu frestað til næsta fundar byggðaráðs.

Byggðaráð Múlaþings - 181. fundur - 03.03.2026

Fyrir liggur bókun frá fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs 16. febrúar 2026, þar sem því er vísað til byggðarráðs að taka til umfjöllunar tillögu um afslætti á gatnagerðargjöldum af iðnaðar-, athafna-, verslunar- og þjónustulóðum. Málið var á dagskrá byggðaráðs 24. febrúar 2026. Inn á fundinn undir þessum lið mætti Hugrún Hjálmarsdóttir, sviðsstjóri framkvæmda.
Í vinnslu.

Byggðaráð Múlaþings - 183. fundur - 17.03.2026

Fyrir liggur bókun frá fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs 16. febrúar 2026, þar sem því er vísað til byggðaráðs að taka til umfjöllunar tillögu um afslætti á gatnagerðargjöldum af iðnaðar-, athafna-, verslunar- og þjónustulóðum. Málið var á dagskrá byggðaráðs 24. febrúar 2026 og aftur 3. mars 2026.
Á fundinn undir þessum lið mætti Hugrún Hjálmarsdóttir, sviðsstjóri framkvæmda.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings hvetur umhverfis- og framkvæmdaráð til að endurskoða og samræma afslætti á gatnagerðargjöldum af ofangreindum lóðum, sem og íbúðarlóðum í sveitarfélaginu. Þá hvetur einnig byggðaráð umhverfis- og framkvæmdaráð til að leita leiða við að fjölga atvinnulóðum, sérstaklega á Egilsstöðum.
Einnig vill byggðaráð hvetja umhverfis- og framkvæmdaráð til að setja afslætti á atvinnu- og iðnaðarlóðir í Fellabæ til að ýta undir uppbyggingu atvinnulífs þar.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 178. fundur - 23.03.2026

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur að nýju, umræða vegna afslátta af gatnagerðagjöldum af iðnaðar-, athafna-, verslunar- og þjónustulóðum í Múlaþingi 2026-2030. Ráðið vísaði umræðunni til byggðarráðs, á 174. fundi þann 16. febrúar sl., og var málið tekið fyrir á 183. fundi Byggðarráðs 17. mars síðastliðinn.
Byggðaráð hvetur umhverfis- og framkvæmdaráð til að endurskoða og samræma afslætti á gatnagerðargjöldum af ofangreindum lóðum, sem og íbúðarlóðum í sveitarfélaginu. Byggðaráð hvetur ráðið einnig til að leita leiða við að fjölga atvinnulóðum, sérstaklega á Egilsstöðum, sem og að setja afslætti á atvinnu- og iðnaðarlóðir í Fellabæ til að ýta undir uppbyggingu atvinnulífs þar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan í bókun byggðaráðs samþykkir umhverfis- og framkvæmdaráð að settur verði 50% afsláttur af gatnagerðargjöldum athafnalóða við Selblá og Valgerðarveg í Fellabæ. Afslátturinn verður í gildi út árið 2027. Hvað varðar samræmingu afslátta af íbúðarhúsalóðum vísar ráðið því til umræðu fyrir næsta ár.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi drög að minnisblaði um afslætti af gatnagerðargjöldum og vísar því til staðfestingar hjá sveitarstjórn.

Verkefni um fjölgun atvinnulóða er áfram í vinnslu hjá starfsfólki umhverfissviðs.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?