Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

197. fundur 25. ágúst 2026 kl. 08:30 - 10:29 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Eiður Ragnarsson varaformaður
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir aðalmaður
  • Lárus Bjarnason aðalmaður
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ívar Karl Hafliðason varamaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson varamaður
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Ingvar Rafn Stefánsson sviðsstjóri fjármála
  • Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
  • Sigrún Hólm Þórleifsdóttir sviðsstjóri mannauðs og þjónustu
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri, sviðsstjóri fjármála og sviðsstjóri mannauðs og þjónustu fóru yfir og kynntu mál er varða rekstur og fjármál sveitarfélagsins.

2.Fjárhagsáætlun Múlaþings 2027 til 2030

Málsnúmer 202606136Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að tillögu að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030.
Í vinnslu.

3.Fasteignir í Múlaþingi

Málsnúmer 202511191Vakta málsnúmer

Fyrir liggur að byggðaráð samþykkti á fundi 25. nóvember 2025 að setja ákveðnar fasteignir í eigu sveitarfélagsins í söluferli. Inn á fundinn undir þessum lið mæta Anna Alexandersdóttir, sviðsstjóri velferðar, og Hugrún Hjálmarsdóttir, sviðsstjóri framkvæmda, og kynna framgang á sölu á framangreindum eignum.
Byggðaráðs Múlaþings þakkar Önnu og Hugrúnu fyrir góða kynningu og komuna á fundinn.

Lagt fram til kynningar.

4.Beiðni um tilnefningar í svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Austfirði

Málsnúmer 202506186Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti, dagsett 17. ágúst 2026, um tilnefningar Múlaþings og Fjarðabyggðar í svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Austfirði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings staðfestir að sveitarfélagið hyggst ekki breyta tilnefningum sínum í svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Austfirði. Aðalfulltrúi Múlaþings í ráðinu verður því áfram Ívar Karl Hafliðason, og til vara Ásrún Mjöll Stefánsdóttir.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Aukaársfundur Austurbrúar 2026

Málsnúmer 202608115Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundarboð, dagsett 17. ágúst 2026, vegna aukaársfundar Austurbrúar, sem haldinn verður 1. september 2026 kl. 12.00 í fjarfundi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri fari með atkvæði Múlaþings á aukaársfundi Austurbrúar sem haldinn verður 1. september 2026.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

6.Áskorun sveitarfélaga til atvinnuvegaráðherra um lagaumgjörð lagareldis

Málsnúmer 202608116Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar erindi sveitarstjóra Múlaþings, Súðavíkurhrepps, Vesturbyggðar, Ísafjarðarbæjar, Bolungarvíkur og Fjarðabyggðar til atvinnuvegaráðherra, dagsett 17. ágúst 2026, þar sem skorað er á ráðherra að halda áfram vinnu við lagaumgjörð lagareldis og óskað eftir fundi um málið.
Lagt fram til kynningar.

7.Fundagerðir Austurbrúar 2026

Málsnúmer 202601174Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar Austurbrúar frá 11. ágúst 2026.
Lagt fram til kynningar.

8.Fundagerðir SSA 2026

Málsnúmer 202601173Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi frá 11. ágúst 2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:29.

Getum við bætt efni þessarar síðu?