Fara í efni

Fjölskylduráð Múlaþings

73. fundur 30. maí 2023 kl. 12:30 - 15:15 Gistihúsið á Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Sigurður Gunnarsson formaður
  • Björg Eyþórsdóttir varaformaður
  • Guðmundur Björnsson Hafþórsson aðalmaður
  • Guðný Lára Guðrúnardóttir aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Eyþór Stefánsson aðalmaður
  • Jóhann Hjalti Þorsteinsson aðalmaður
  • Þórlaug Alda Gunnarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir fræðslustjóri
  • Þórunn Bylgja Borgþórsdóttir íþrótta- og æskulýðsstjóri
  • Stefanía Malen Stefánsdóttir starfsmaður fjölskyldusviðs
  • Marta Wium Hermannsdóttir starfsmaður fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði: Bylgja Borgþórsdóttir íþrótta- og æskulýðsstjóri
Í upphafi fundar bar formaður upp tillögu um að nýtt mál yrði tekið á dagskrá fundarins og var það samþykkt samhljóða. Málið er númer 4 á dagskránni og hefur málsnúmer 202305223.

Áheyrnarfulltrúar leikskóla Guðmunda Vala Jónasdóttir, Bryndís Björt Hilmarsdóttir og Bryndís Björt Hilmarsdóttir, áheyrnarfulltrúar grunnskóla Arna Magnúsdóttir, Valdís Dögg Rögnvaldsdóttir og Þorbjörg Sandholt, áheyrnarfulltrúi tónlistarskóla Sóley Þrastardóttir sátu 2. lið. 

Þorbjörg Sandholt skólastjóri Djúpavogsskóla, Kristín Magnúsdóttir skólastjóri Egilsstaðaskóla, Sóley Þrastardóttir skólastjóri Tónlistarskóla Egilsstaða, Guðrún Sigríður Sigurðardóttir leikskólastjóri Bjarkatúni, Sigríður Herdís Pálsdóttir leikskólastjóri Tjarnarskógi og Guðmunda Vala Jónasdóttir leikskólastjóri Hádegishöfða  sátu 2. lið. 

Marta Wium Hermannsdóttir leikskólafulltrúi og Stefanía Malen Stefánsdóttir grunnskólafulltrúi sátu 2. lið.

1.Fjárhagsáætlun íþrótta- og æskulýðsmála 2024

Málsnúmer 202305011Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi ramma fjárhagsáætlunar íþrótta- og æskulýðsmála fyrir árið 2024.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Fjárhagsáætlun Félagsþjónustu 2024

Málsnúmer 202305175Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi ramma fjárhagsáætlunar félagsþjónustu fyrir árið 2024.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Fjárhagsáætlun fræðslumála 2024

Málsnúmer 202304188Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi ramma fjárhagsáætlunar fræðslumála fyrir árið 2024.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Beiðni um viðbótarstöðugildi vegna mannauðsmála á fjölskyldusviði

Málsnúmer 202305223Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð tekur jákvætt í erindið og felur starfsfólki sviðsins að koma með frekari útfærslur á næsta fund ráðsins.

Málið er áfram í vinnslu.

Fundi slitið - kl. 15:15.

Getum við bætt efni þessarar síðu?