Fara í efni

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs

68. fundur 09. apríl 2026 kl. 13:00 - 14:35 í Samfélagssmiðjunni
Nefndarmenn
  • Vilhjálmur Jónsson formaður
  • Jóhann Gísli Jóhannsson aðalmaður
  • Guðný Drífa Snæland varamaður
Starfsmenn
  • Hlynur Jónsson
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson fulltrúi sveitarstjóra

1.Atvinnumál í Múlaþingi

Málsnúmer 202511153Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu atvinnumála í Múlaþingi.
Í vinnslu.

2.Samfélagsverkefni heimastjórna 2026

Málsnúmer 202601217Vakta málsnúmer

Fyrir liggja hugmyndir að samfélagsverkefnum sem íbúar hafa sent sveitarfélaginu en frestur til að skila hugmyndum rann út 25. mars 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs felur starfsmanni að skoða kostnað og raunhæfni verkefnanna og leggja fyrir næsta fund.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Landbótasjóður 2025

Málsnúmer 202502034Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar ársreikningur Landbótasjóðs Norður-Héraðs fyrir árið 2025.
Lagt fram til kynningar.

4.Niðurfelling varnarlína vegna sauðfjársjúkdóma Jökuldalslína

Málsnúmer 202506070Vakta málsnúmer

Fyrir liggur svar atvinnuvegaráðuneytisins frá 9. mars 2026 við bókun heimastjórnar Fljótsdalshéraðs frá 5. mars 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs felur starfsmanni að óska eftir samskiptum atvinnuvegaráðuneytisins og Bændasamtaka Íslands varðandi niðurfellingu viðkomandi varnarlínu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 14:35.

Getum við bætt efni þessarar síðu?