Fara í efni

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs

72. fundur 03. september 2026 kl. 14:00 - 15:45 á skrifstofu sveitarfélagsins, Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Anna H. Bragadóttir aðalmaður
  • Hafsteinn Jónasson aðalmaður
  • Þórey Birna Jónsdóttir varaformaður
Starfsmenn
  • Hlynur Jónsson fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson fulltrúi sveitarstjóra

1.Samkomusalur í Valaskjálf

Málsnúmer 202607130Vakta málsnúmer

Fyrir liggur mál varðandi framtíð samkomusalarins í Valaskjálf sem er í eigu 701 Hotels ehf. Í kjölfar nýlegs vatnstjóns hefur eigandi hússins viðrað hugmyndir um breytta nýtingu á salnum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs þakkar sveitarstjóra fyrir góða kynningu.

Heimastjórn hvetur íbúa til að mæta til fyrirhugaðs íbúafundar sem haldinn verður í Sláturhúsinu sunnudaginn 6. september 2026 klukkan 18.00. Heimastjórn Fljótsdalshéraðs vísar málinu einnig til umfjöllunar í sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Ósk um tilnefningu í samstarfshóp um friðlýsingu Hjálpleysu

Málsnúmer 202607009Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Náttúruverndarstofnun, dagsett 1. júlí 2026, þar sem óskað er eftir einum til tveimur fulltrúum Múlaþings í samstarfshóp um friðlýsingu Hjálpleysu. Málið var síðast tekið fyrir á fundi heimastjórnar 10. ágúst 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir að Eiður Ragnarsson og Anna H. Bragadóttir verði fulltrúar Múlaþings í samstarfshópi um friðlýsingu Hjálpleysu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Fjárfestingaráætlun 2026

Málsnúmer 202508196Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fjárfestingaráætlun ársins 2026 með breytingum sem samþykktar voru á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs 30. júní 2026. Inn á fundinn undir þessum lið mætir Hugrún Hjálmarsdóttir, sviðsstjóri framkvæmda.
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs þakkar Hugrúnu fyrir góða kynningu og komuna á fundinn.

Lagt fram til kynningar.

4.Umsagnarbeiðni, Umhverfismat, Mýnesnáma

Málsnúmer 202608176Vakta málsnúmer

Fyrir liggur matsáætlun vegna áforma Yls ehf. um áframhaldandi efnistöku í Mýnesnámu. Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn sveitarfélagsins á grundvelli 21. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Frestur til athugasemda er til og með 18. september 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir fyrirliggjandi drög að umsögn og felur verkefnastjóra skipulagsmála að koma henni á framfæri.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Umhverfisviðurkenningar 2026

Málsnúmer 202607097Vakta málsnúmer

Fyrir liggja tilnefningar frá almenningi vegna umhverfisviðurkenninga. Inn á fundinn undir þessum lið mætir Stefán Aspar Stefánsson, verkefnastjóri umhverfismála.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs þakkar fyrir innsendar tilnefningar. Heimastjórn hefur valið úr og tilnefnt í þá þrjá flokka sem hljóta viðurkenningar og felur starfsmanni að koma þeim á framfæri við verkefnastjóra umhverfismála Múlaþings. Umhverfis- og framkvæmdaráð mun svo velja úr tilnefningum heimastjórna í flokkunum: íbúðalóð, fyrirtækjalóð og lögbýli.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 15:45.

Getum við bætt efni þessarar síðu?