Fara í efni

Samkomusalur í Valaskjálf

Málsnúmer 202607130

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 195. fundur - 11.08.2026

Fyrir liggur mál varðandi framtíð samkomusalarins í Valaskjálf sem er í eigu 701 Hotels ehf. Í kjölfar nýlegs vatnstjóns hefur eigandi hússins viðrað hugmyndir um breytta nýtingu á salnum. Inn á fundinn undir þessum lið mættu Jóhann Pétur Reyndal og Gísli Steinar Gíslason, eigendur 701 Hotels ehf.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð þakkar Jóhanni Pétri og Gísla Steinari fyrir komuna á fundinn.

Formanni byggðaráðs og sveitarstjóra falið að ræða við eigendur 701 Hotels ehf. um framhald málsins í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Byggðaráð Múlaþings - 198. fundur - 01.09.2026

Fyrir liggur minnisblað sveitarstjóra og sviðsstjóra stjórnsýslu um sviðsmyndir varðandi framtíð samkomusalarins í Valaskjálf sem er í eigu 701 Hotels ehf. Málið var tekið fyrir á fundi byggðaráðs 11. ágúst 2026. Inn á fundinn undir þessum lið mæta Jóhann Pétur Reyndal og Gísli Steinar Gíslason, eigendur 701 Hotels ehf.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar Jóhanni Pétri og Gísla Steinari fyrir komuna á fundinn.

Sveitarstjóra er falið að boða til íbúafundar um framtíð samkomusalarins í Valaskjálf þar sem sviðsmyndir verða kynntar og íbúum gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

Byggðaráð vísar málinu einnig til umfjöllunar í heimastjórn Fljótsdalshéraðs.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 72. fundur - 03.09.2026

Fyrir liggur mál varðandi framtíð samkomusalarins í Valaskjálf sem er í eigu 701 Hotels ehf. Í kjölfar nýlegs vatnstjóns hefur eigandi hússins viðrað hugmyndir um breytta nýtingu á salnum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs þakkar sveitarstjóra fyrir góða kynningu.

Heimastjórn hvetur íbúa til að mæta til fyrirhugaðs íbúafundar sem haldinn verður í Sláturhúsinu sunnudaginn 6. september 2026 klukkan 18.00. Heimastjórn Fljótsdalshéraðs vísar málinu einnig til umfjöllunar í sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Ungmennaráð Múlaþings - 49. fundur - 03.09.2026

Ungmennaráð Múlaþings lýsir yfir miklum áhyggjum af hugsanlegum breytingum á samkomusalnum í Valaskjálf. Ráðið vill undirstrika mikilvægi húsnæðisins fyrir menningarlíf ungs fólks í sveitarfélaginu. Salurinn gegnir mikilvægu hlutverki fyrir samfélagið í Múlaþingi og á staðurinn stóran hlut í hjarta samfélagsins.

Sveitarstjórn Múlaþings - 71. fundur - 09.09.2026

Fyrir liggur minnisblað sveitarstjóra og sviðsstjóra stjórnsýslu um sviðsmyndir varðandi framtíð samkomusalarins í Valaskjálf sem er í eigu 701 Hotels ehf. Málið var tekið fyrir í heimastjórn Fljótsdalshéraðs 3. september 2026 sem vísaði því til umfjöllunar í sveitarstjórn.
Til máls tóku: Berglind Harpa Svavarsdóttir, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Þórey Birna Jónsdóttir, Lárus Bjarnason, Hólmfríður Rut Einarsdóttir, Jónína Brynjólfsdóttir, Berglind Harpa, Helgi Hlynur.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn telur ekki vænlegt að leigja húsnæðið miðað við þær forsendur sem eigendur hafa lagt fram. Sveitarstjórn felur byggðaráði að eiga áfram samtal við eigendur um framtíð salarins í Valaskjálf.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Byggðaráð Múlaþings - 199. fundur - 15.09.2026

Fyrir liggur bókun sveitarstjórnar Múlaþings frá 9. september 2026 þar sem byggðaráði var falið að eiga áfram samtal við eigendur 701 Hotels ehf. um framtíð samkomusalarins í Valaskjálf.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að sjá til þess að hafin verði vinna við bæði þarfagreiningu og kostnaðargreiningu fyrir skrifstofu sveitarfélagsins á Egilsstöðum. Jafnframt er sveitarstjóra falið að afla upplýsinga hjá eigendum Valaskjálfar um þann tímaramma sem sveitarfélagið hefur til að taka ákvörðun um hugsanleg kaup sveitarfélagsins á Valaskjálf.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?