Fara í efni

Umhverfisviðurkenningar 2026

Málsnúmer 202607097

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Seyðisfjarðar - 70. fundur - 30.07.2026

Heimastjórn hvetur bæjarbúa til að tilnefna einstaklinga, fyrirtæki og lögbýli sem þeim finnst bera af eða leggja metnað í að hafa snyrtilegt og fallegt í kringum sig. Frestur til að skila inn tilnefningum er til sunnudagsins 3. ágúst 2026. Tilnefningar má senda á umhverfisfulltrui@mulathing.is

Heimastjórn Djúpavogs - 72. fundur - 06.08.2026

Fyrir liggja til kynningar tilnefningar til umhverfisviðurkenninga 2026.
Inn á fundinn undir þessum lið mætir Stefán Aspar Stefánsson verkefnastjóri umhverfismála.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Djúpavogs þakkar innsendar tillögur, vinnur málið áfram og tekur fyrir á næsta fundi.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Borgarfjarðar - 71. fundur - 10.08.2026

Fyrir liggja til kynningar tilnefningar til umhverfisviðurkenninga 2026.
Heimastjórn þakkar fyrir innsendar tillögur, vinnur málið áfram og tekur fyrir á næsta fundi.
Í vinnslu.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 71. fundur - 10.08.2026

Fyrir liggja til kynningar tilnefningar til umhverfisviðurkenninga 2026. Inn á fundinn undir þessum lið mætir Stefán Aspar Stefánsson, verkefnastjóri umhverfismála.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs þakkar fyrir innsendar tillögur. Málið verður tekið fyrir að nýju á næsta fundi heimastjórnar.

Lagt fram til kynningar.

Heimastjórn Djúpavogs - 73. fundur - 03.09.2026

Fyrir liggja tilnefningar til umhverfisviðurkenninga Múlaþings 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Djúpavogs þakkar fyrir innsendar tilnefningar. Heimastjórn hefur valið úr og tilnefnt í þá þrjá flokka sem hljóta viðurkenningar og felur starfsmanni að koma þeim á framfæri við verkefnastjóra umhverfismála Múlaþings. Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings mun svo velja úr tilnefningum heimastjórna í flokkunum: íbúðalóð, fyrirtækjalóð og lögbýli, einn fyrir hvern flokk í öllu Múlaþingi.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Seyðisfjarðar - 71. fundur - 03.09.2026

Fyrir heimastjórn liggur að skila inn tillögum til Umhverfis- og framkvæmdaráðs tilnefnefningum til umhverfisviðurkenningar 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn þakkar fyrir innsendar tilnefningar. Heimastjórn hefur valið úr og tilnefnt í þá þrjá flokka sem hljóta viðurkenningar og felur starfsmanni að koma þeim á framfæri við verkefnastjóra umhverfismála Múlaþings. Umhverfis-og framkvæmdaráð mun svo velja úr tilnefningum heimastjórna í flokkunum: íbúðalóð, fyrirtækjalóð og lögbýli.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 72. fundur - 03.09.2026

Fyrir liggja tilnefningar frá almenningi vegna umhverfisviðurkenninga. Inn á fundinn undir þessum lið mætir Stefán Aspar Stefánsson, verkefnastjóri umhverfismála.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs þakkar fyrir innsendar tilnefningar. Heimastjórn hefur valið úr og tilnefnt í þá þrjá flokka sem hljóta viðurkenningar og felur starfsmanni að koma þeim á framfæri við verkefnastjóra umhverfismála Múlaþings. Umhverfis- og framkvæmdaráð mun svo velja úr tilnefningum heimastjórna í flokkunum: íbúðalóð, fyrirtækjalóð og lögbýli.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Borgarfjarðar - 72. fundur - 07.09.2026

Fyrir heimastjórn liggur að skila inn tillögum að tilnefningum að umhverfisviðurkenningum til umhverfis- og framkvæmdaráðs.
Heimastjórn þakkar fyrir innsendar tilnefningar. Heimastjórn hefur valið úr og tilnefnt í þá þrjá flokka sem hljóta viðurkenningar og felur starfsmanni að koma þeim á framfæri við verkefnastjóra umhverfismála Múlaþings. Umhverfis- og framkvæmdaráð mun svo velja úr tilnefningum heimastjórna í flokkunum íbúðalóð, fyrirtækjalóð og lögbýli.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 192. fundur - 14.09.2026

Verkefnastjóri umhverfismála situr fundinn undir þessum lið.

Framlagðar tilnefningar til umhverfisviðurkenninga Múlaþings 2026 og tillögur að breytingum á reglum um afhendingu þeirra.
Málið er áfram í vinnslu.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 193. fundur - 21.09.2026

Verkefnastjóri umhverfismála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur að veita umhverfisviðurkenningar Múlaþings 2026.

Eins liggja fyrir að nýju, uppfærðar reglur vegna umhverfisviðurkenninga og liggur fyrir ráðinu að samþykkja þær.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir veitingu umhverfisviðurkenninga í samræmi við umræður á fundinum og felur formanni umhverfis- og framkvæmdaráðs og verkefnastjóra umhverfismála að veita viðurkenninguna. Ráðið þakkar tilnefningarnar og hvetur íbúa til að senda inn tilnefningar á næsta ári.

Ráðið samþykkir framlagðar breytingar á reglum um afhendingu umhverfisviðurkenninga.

Samþykkt samhljóða.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 194. fundur - 28.09.2026

Verkefnastjóri umhverfismála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir liggur að taka afstöðu til sérstakrar tilnefningar vegna umhverfisviðurkenninga Múlaþings 2026, en sérstök tilnefning barst frá heimastjórn Fljótsdalshéraðs.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir veitingu sérstakrar umhverfisviðurkenningar í samræmi við umræður á fundinum og felur formanni umhverfis- og framkvæmdaráðs og verkefnastjóra umhverfismála að veita viðurkenninguna.

Ráðið þakkar tilnefningarnar og hvetur íbúa til að senda inn tilnefningar á næsta ári.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?