Fara í efni

Heimastjórn Seyðisfjarðar

69. fundur 18. júní 2026 kl. 13:00 - 15:40 á skrifstofu sveitarfélagsins, Seyðisfirði
Nefndarmenn
  • Einar Freyr Guðmundsson formaður
  • Hildur Þórisdóttir aðalmaður
  • Margrét Guðjónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Inga Þorvaldsdóttir fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Inga Þorvaldsdóttir fulltrúi sveitarstjóra
Í upphafi fundar leitaði formaður afbrigða að bæta inn sem fyrsta lið " Samgönguáætlun 2026 - 2040". Tillagan tekin fyrir og samþykkt samhljóða. Uppfærðist röð dagskráliða samkvæmt því.

Einar Freyr formaður heimastjórnar sat fundinn á Teams.

1.Samgönguáætlun 2026 - 2040

Málsnúmer 202512034Vakta málsnúmer

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Seyðisfjarðar tekur undir bókun sveitarstjórnar frá 3.júní sl. og harmar þau svik sem raungerst hafa með nýsamþykktri samgönguáætlun Alþingis. Þar er ekki einvörðungu farið á bak við gefin fyrirheit stjórnvalda í aðdraganda sameiningar Múlaþings heldur er einu, fullhönnuðu og rannsökuðu jarðgöngum landsins hent út af áætluninni. Að baki liggur áratuga undirbúningsvinna, rannsóknir og hönnun með kostnaði fyrir ríki og sveitarfélag upp á milljarð kr.

Framganga stjórnvalda er grafalvarleg þar sem vegið er að trausti til þeirrar stefnumarkandi vinnu sem samgönguáætlun er ætlað að vera. Með slíku fordæmi verður vart hægt að taka mark á langtímaáætlun stjórnvalda héðan í frá.

Fjarðarheiðargöng eru öryggismál fyrir landið allt auk þess að vera gátt Íslands til Evrópu. Þá eru göngin fyrsti áfangi í hringtengingu samgangna á Austurlandi til eflingar atvinnulífs og samfélags.

Heimastjórn mun ekki una vinnubrögðum Alþingis sem rýrir verulega traust til löggjafarvaldsins.

Heimstjórn fordæmir að meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar hafi lagt blessun sína yfir vinnubrögð ráðherra og viðurkenni þar með að verkefni á framkvæmdahluta áætlunar séu tekin af borðinu. Heimastjórn mun vinna áfram ötullega að því að koma Fjarðarheiðargöngum í útboð.

Heimastjórn Seyðisfjarðar felur starfsmanni að koma bókuninni auk fylgigagna á framfæri við þingmenn og ráðherra.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Gamli barnaskólinn á Seyðisfirði, litaval

Málsnúmer 202606022Vakta málsnúmer

Fyrir liggja litatillögur á Gamla skóla sem starfsmenn á eignasviði Múlaþings í samráði við Minjastofnun Íslands leggja til. Leitast er eftir áliti heimastjórnar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn þakkar fyrir tækifærið til að hafa áhrif á litaval á Gamla skóla. Starfsmanni falið að koma tillögu heimastjórnar á framfæri við starfsmenn eignasviðs.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.


3.Staða verkefna á Seyðisfirði á umhverfis- og framkvæmdasviði

Málsnúmer 202604016Vakta málsnúmer

Hugrún Hjálmarsdóttir sviðstjóri framkvæmda kom inn á fundinn og fór yfir stöðu verkefna sem eru í gangi á Seyðisfirði og það sem framundan er.
Heimastjórn þakkar Hugrúnu fyrir góða yfirferð og greinagóð svör. Fram kom að markviss vinna er í gangi við hreinsun á brotajárni og ábendingar um svæði eða lóðir þar sem umgengni er ábótavant eru vel þegnar. Heimastjórn minnir á ábendingagátt Múlaþings í því samhengi.

Lagt fram til kynningar

4.Framkvæmdasjóður ferðamannastaða, framkvæmdaáætlun 2027-2030

Málsnúmer 202603088Vakta málsnúmer

Heimastjórnum býðst að leggja fram tillögur inn í fimm ára framkvæmdaáætlun að verkefnum er varðar uppbyggingu áfangastaða í sveitarfélaginu. Alda Marín verkefnastjóri atvinnumála kom inn á fundinn fundinn undir þessum lið.
Heimastjórn þakkar Öldu Marín fyrir góða yfirferð og felur starfsmanni að koma ábendingum um möguleg verkefni á framfæri við verkefnastjóra atvinnumála.

Málið áfram í vinnslu.

5.Framtíðaruppbygging atvinnulífs á Seyðisfirði

Málsnúmer 202310203Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun sveitarstjórnar dags. 09.júní 2026 þar sem tilnefna þarf að nýju, eftir sveitarstjórnarkosningarnar, fulltrúa frá heimastjórn í samráðshóp um uppbyggingu atvinnulífs á Seyðisfirði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn tilnefnir Margréti Guðjónsdóttur til áframhaldandi starfa í samráðshóp um uppbyggingu atvinnulífs á Seyðisfirði.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Fundir heimastjórnar Seyðisfjarðar

Málsnúmer 202606062Vakta málsnúmer

Fyrir liggur að ákveða fundardaga og fundatíma heimastjórnar Seyðisfjarðar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Seyðisfjarðar fundar að öllu jöfnu fyrsta fimmtudag hvers mánaðar kl. 13:00.
Næsti heimastjórnarfundur verður haldinn fimmtudaginn 30.júlí nk.
Fundir heimastjórnar Seyðisfjarðar verða staðfundir, en fyrir getur komið að um Teamsfundi verða að ræða.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Siðareglur kjörinna fulltrúa

Málsnúmer 202605238Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar siðareglur kjörinna fulltrúa í Múlaþingi
Lagt fram til kynningar

8.Erindisbréf nefnda

Málsnúmer 202606063Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar erindisbréf heimastjórna Múlaþings sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar 3.júní sl.
Lagt fram til kynningar.

9.Tilnefning í stjórn Skaftfells, miðstöð myndlistar á Austurlandi

Málsnúmer 202606091Vakta málsnúmer

Samkvæmt 48.gr. samþykkta um stjórn Múlaþings tilnefnir heimastjórn Seyðisfjarðar einn fulltrúa og einn til vara í samræmi við samþykktir félagsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Samkvæmt 48.gr.samþykkta um stjórn Múlaþings tilnefnir heimastjórn Seyðisfjarðar Oddnýju Björk Daníelsdóttir sem aðalmann og Hildur Þórisdóttur til vara.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

10.Tilnefning í stjórn Tækniminjasafn Austurlands

Málsnúmer 202606090Vakta málsnúmer

Samkvæmt 48.gr. samþykkta um stjórn Múlaþings þarf heimastjórn Seyðisfjarðar að tilnefna tvo fulltrúa og tvo til vara í samræmi við samþykktir félagsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Seyðisfjarðar tilnefnir Skúla Vignisson og Bjarka Borgþórsson sem aðalmenn og til vara Oddnýju Björk Daníelsdóttur og Aðalheiði L. Borgþórsdóttur.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

11.Fundir sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna júní 2026-maí 2027

Málsnúmer 202604259Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að fundadagatali sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna tímabilið júní 2026 til maí 2027.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Seyðisfjarðar samþykkir fyrirliggjandi fundadagatal fyrir sitt leyti.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 15:40.

Getum við bætt efni þessarar síðu?