Fara í efni

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða, framkvæmdaáætlun 2027-2030

Málsnúmer 202603088

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Seyðisfjarðar - 69. fundur - 18.06.2026

Heimastjórnum býðst að leggja fram tillögur inn í fimm ára framkvæmdaáætlun að verkefnum er varðar uppbyggingu áfangastaða í sveitarfélaginu. Alda Marín verkefnastjóri atvinnumála kom inn á fundinn fundinn undir þessum lið.
Heimastjórn þakkar Öldu Marín fyrir góða yfirferð og felur starfsmanni að koma ábendingum um möguleg verkefni á framfæri við verkefnastjóra atvinnumála.

Málið áfram í vinnslu.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 70. fundur - 24.06.2026

Heimastjórnum býðst að leggja fram tillögur inn í fimm ára framkvæmdaáætlun að verkefnum er varðar uppbyggingu áfangastaða í sveitarfélaginu.

Alda Marín Kristinsdóttir, verkefnastjóri atvinnumála, kemur inn á fundinn undir þessum lið.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs þakkar Öldu Marín fyrir góða yfirferð og felur starfsmanni að útbúa samantekt um möguleg verkefni í samræmi við umræður á fundinum, og leggja fyrir næsta fund heimastjórnar til samþykktar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Borgarfjarðar - 70. fundur - 25.06.2026

Heimastjórnum býðst að leggja fram tillögur inn í fimm ára framkvæmdaáætlun að verkefnum er varðar uppbyggingu áfangastaða í sveitarfélaginu.
Heimastjórn felur starfsmanni að vinna tillögur í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir á næsta fundi.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Heimastjórn Djúpavogs - 71. fundur - 26.06.2026

Heimastjórnum býðst að leggja fram tillögur inn í fimm ára framkvæmdaáætlun að verkefnum er varðar uppbyggingu áfangastaða í sveitarfélaginu.

Alda Marín verkefnastjóri atvinnumála kemur inn á fundinn undir þessum lið.
Heimastjórn þakkar Öldu fyrir greinargóða yfirferð og felur starfsmanni að vinna verkefnið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Alda Marín Kristinnsdótttir

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 187. fundur - 29.06.2026

Alda Marín, verkefnastjóri atvinnumála, situr fundinn undir þessum lið og kynnir fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði framkvæmdaáætlunina.
Lagt fram til kynningar.

Heimastjórn Djúpavogs - 72. fundur - 06.08.2026

Fyrir liggja drög að tillögum heimastjórnar Djúpavogs inn í fimm ára framkvæmdaáætlun að verkefnum varðandi uppbyggingu áfangastaða í sveitarfélaginu. Málið var á dagskrá heimastjórnar 26. júní 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Djúpavogs samþykkir fyrirliggjandi drög að tillögum inn í fimm ára framkvæmdaáætlun að verkefnum varðandi uppbyggingu áfangastaða í sveitarfélaginu. Starfsmanni heimastjórnar falið að kalla eftir frekari tillögum íbúa og skila samantekt til verkefnastjóra atvinnumála fyrir lok ágúst.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Borgarfjarðar - 71. fundur - 10.08.2026

Fyrir liggja drög að tillögum heimastjórnar Borgarfjarðar inn í fimm ára framkvæmdaáætlun að verkefnum er varða uppbyggingu áfangastaða í sveitarfélaginu. Málið var áður á dagskrá heimastjórnar 25. júní 2026.
Heimastjórn samþykkir fyrirliggjandi drög að tillögum inn í fimm ára framkvæmdaáætlun að verkefnum varðandi uppbyggingu áfangastaða í sveitarfélaginu.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 71. fundur - 10.08.2026

Fyrir liggja drög að tillögum heimastjórnar Fljótsdalshéraðs inn í fimm ára framkvæmdaáætlun að verkefnum varðandi uppbyggingu áfangastaða í sveitarfélaginu. Málið var á dagskrá heimastjórnar 24. júní 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir fyrirliggjandi drög að tillögum inn í fimm ára framkvæmdaáætlun að verkefnum varðandi uppbyggingu áfangastaða í sveitarfélaginu. Starfsmanni heimastjórnar falið að skila tillögunum til verkefnastjóra atvinnumála.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 195. fundur - 05.10.2026

Fyrir liggur að staðfesta verkefni til umsókna í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða fyrir umsóknarárið 2027. Umsóknarfrestur í sjóðinn er 27. október næstkomandi.

Heimastjórnir hafa þegar fengið tækifæri til að rýna fyrirliggjandi hugmyndir og bæta við sínum áherslum. Verkefnin hafa jafnframt verið rýnd af starfmönnum og forgangsraðað.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Lagt er til að sótt verði um eftirtalin verkefni í framkvæmdasjóð ferðamannastaða:
- Búlandsnes og sandar.
- Útsýnispallur við Gufufoss.
- Bílastæði og útsýnispallar við Fardagafoss.

Starfsmanni falið að vinna umsóknirnar áfram.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?