Fara í efni

Niðurgreiðsluhlutfall raforku í íbúðarhúsnæði í Múlaþingi

Málsnúmer 202604006

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 198. fundur - 01.09.2026

Fyrir byggðarráði liggur erindi frá verkefnastjóra Eyglóar-verkefnisins hjá Austurbrú, þar sem farið er yfir niðurgreiðsluhlutfall raforku fyrir íbúðarhúsnæði í Múlaþingi. Fyrir ráðinu liggur að taka afstöðu til þess hvort að ástæða þyki til átaks eða aðgerða er varða niðurgreiðslur hjá íbúum í sveitarfélaginu Múlaþingi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að koma af stað átaki í upplýsingagjöf á vefsíðu og miðlum Múlaþings um möguleg tækifæri íbúa á niðurgreiðslu á raforku.

Byggðaráð vísar erindinu einnig til heimastjórna sveitarfélagsins með hvatningu um að það verði tekið fyrir á íbúafundum þar sem vakin verði athygli íbúa á þessum möguleika.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Heimastjórn Djúpavogs - 74. fundur - 02.10.2026

Fyrir liggur erindi frá verkefnastjóra Eyglóar-verkefnisins hjá Austurbrú, þar sem farið er yfir niðurgreiðsluhlutfall raforku fyrir íbúðarhúsnæði í Múlaþingi. Byggðaráð vísaði erindinu til heimastjórnar Djúpavogs með hvatningu um að það verði tekið fyrir á íbúafundi þar sem vakin verði athygli íbúa á þessum möguleika.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn þakkar fyrir erindi verkefnastjóra Eyglóar-verkefnisins hjá Austurbrú og mun kynna það á opnum íbúafundi heimastjórnar Djúpavogs í haust.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 73. fundur - 08.10.2026

Fyrir liggur bókun byggðaráðs Múlaþings frá 1. september 2026 þar sem heimastjórnin er hvött til þess að vekja athygli á mögulegum tækifærum íbúa á niðurgreiðslu á raforku á íbúafundi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs tekur undir bókun byggðaráðs Múlaþings og mun kynna málið á opnum íbúafundi heimastjórnar í haust.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?