Fara í efni

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs

66. fundur 05. febrúar 2026 kl. 13:00 - 14:50 á skrifstofu sveitarfélagsins, Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Vilhjálmur Jónsson formaður
  • Jóhann Gísli Jóhannsson aðalmaður
  • Guðný Drífa Snæland varamaður
Starfsmenn
  • Óðinn Gunnar Óðinsson fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Óðinn Gunnar Óðinsson fulltrúi sveitarstjóra og sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Landbótasjóður 2025

Málsnúmer 202502034Vakta málsnúmer

Fyrir liggja fundargerðir Landbótasjóðs Norður-Héraðs nr. 121, 122, 122b, 123. Á fundinn undir þessum lið mætir Þorvaldur Hjarðar, formaður stjórnar Landbótasjóðs.
Þorvaldur fór yfir fyrirliggjandi fundargerðir sjóðsins og drög á ársreikningi 2025.
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs þakkar Þorvaldi fyrir komuna á fundinn og góða yfirferð.

2.Niðurfelling varnarlína vegna sauðfjársjúkdóma Jökuldalslína

Málsnúmer 202506070Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað, dagsett 19. janúar 2026, frá verkefnisstjóra umhverfismála, um niðurfellingu Jökuldalslínu, þar sem óskað er eftir afstöðu heimastjórnar til niðurfellingar girðingarinnar.
Guðný Drífa gerði grein fyrir hæfi sínu og óskaði eftir að víkja af fundi og var það samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir að óska eftir að á næsta fund heimastjórnar verði boðaður formaður Félags sauðfjárbænda á Héraði og fjörðum til viðræðna um málið.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Samfélagsverkefni heimastjórna 2026

Málsnúmer 202601217Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 2. febrúar 2026 þar sem eftirfarandi var bókað:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að óska eftir hugmyndum heimastjórna að samfélagsverkefnum í samræmi við fjárhagsáætlun og umræður á fundinum og felur sviðsstjóra framkvæmda að fylgja málinu eftir til formanna heimastjórna. Skipting fjármuna verður óbreytt frá fyrri árum þegar heimastjórnir Borgarfjarðar, Djúpavogs og Seyðisfjarðar fengu 2 milljónir hver til umráða og heimastjórn Fljótsdalshéraðs 4 milljónir.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs lýsir yfir ánægju með verkefnið en leggur til að á árinu 2027 verði fjármunir til samfélagsverkefna á Fljótsdalshéraði auknir. Starfsmanni falið að auglýsa eftir hugmyndum frá íbúum um verkefni.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Deiliskipulagsbreyting, Grund við Stuðlagil, breytt lóðamörk

Málsnúmer 202503209Vakta málsnúmer

Fyrir liggur samantekt á viðbrögðum við umsögnum sem bárust við kynningu vinnslutillögu vegna breytinga á deiliskipulagi Grundar við Stuðlagil ásamt uppfærðri skipulagstillögu.

Á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs 12. janúar 2026 var eftirfarandi bókað: Umhverfis- og framkvæmdarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til við heimastjórn Fljótsdalshéraðsað hún verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir að fyrirliggjandi tillaga að deiliskipulagi Grundar við Stuðlagil verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Fylgiskjöl:

5.Deiliskipulag, Gilsárvirkjun

Málsnúmer 202401135Vakta málsnúmer

Kynningu vinnslutillögu vegna nýs deiliskipulags Gilsárvirkjunar lauk þann 13. janúar síðastliðinn. Fyrir liggur samantekt á umsögnum sem bárust ásamt viðbrögðum við þeim.
Janframt liggur fyrir skipulagstillaga til auglýsingar, dagsett 28. janúar 2026, sett fram í greinargerð og á uppdrætti.

Á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs 2. febrúar 2026 var eftirfarandi bókað: Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi skipulagstillögu og leggur til við heimastjórn Fljótsdalshéraðs að hún verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir að fyrirliggjandi skipulagstillaga vegna Gilsárvirkjunar verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga. Heimastjórn leggur sérstaka áherslu á, með tilliti til lífríkis árinnar, að skýrt sé að lágmarksrennsli í ánni verði tryggt allt árið um kring.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Umsagnarbeiðni um Samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026 til 2030

Málsnúmer 202601146Vakta málsnúmer

Fyrir liggur frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis til umsagnar 322. mál, Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 9. febrúar næst komandi. Jafnframt liggja fyrir drög að umsögn byggðaráðs um málið.
Á fundi byggðaráðs 3. febrúar 2026 var óskað eftir umsögnum heimastjórnanna við drög að umsögn byggðaráðs.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs felur starfsmanni að koma viðbótum við drög að umsögn um samgönguáætlun í ferli í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 14:50.

Getum við bætt efni þessarar síðu?