Á 66. fundi sveitarstjórnar Múlaþings, þann 11. mars 2026, var samþykkt fyrirkomulag sveitarstjórnarkosninga og heimastjórnarkosninga í Múlaþingi 2026. Fyrir liggur tillaga um notkun kjörgagna, sem ætluð eru til utankjörfundaratkvæðagreiðslu, við komandi heimastjórnarkosningar í Múlaþingi, og skipun starfsmanna til að annast þann hluta kosninganna á skrifstofum sveitarfélagsins. Auk þess liggur fyrir tillaga um kjörstjóra til viðbótar vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna sveitarstjórnarkosninga á skrifstofu sveitarfélagsins á Djúpavogi.
Þá liggur fyrir tillaga um leiðréttingu á skipun í undirkjörstjórn í kjördeild 2 á Fljótsdalshéraði vegna komandi sveitarstjórnarkosninga. Á síðasta fundi sveitarstjórnar 11. mars 2026 stóð til að skipa Guðmund Þorstein Bergsson í kjörstjórnina, en hann var ranglega nefndur Guðmundur Þorsteinsson. Um er að ræða leiðréttingu á ritvillu í fyrri bókun, en ekki breytingu á viðkomandi einstaklingi.
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að kjörstaðir vegna sveitarstjórnar- og heimastjórnakosninga í Múlaþingi 16. maí 2026 verði eftirfarandi:
Borgarfjörður: Grunnskólinn á Borgarfirði. Djúpivogur: Tryggvabúð Djúpavogi. Fljótsdalshérað: Menntaskólinn á Egilstöðum. Seyðisfjörður: Íþróttamiðstöðin á Seyðisfirði.
Jafnframt samþykkir byggðaráð að kjördeildir við sveitarstjórnarkosningarnar og heimastjórnarkosningarnar verða fimm talsins, þar af tvær á Fljótsdalshéraði. Kjördeildirnar á Fljótsdalshéraði skiptast þannig: Í kjördeild 1 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur, hverra nöfn byrja á bókstafnum A til og með bókstafnum M. Í kjördeild 2 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur hverra nöfn byrja á bókstafnum N til og með Ö, íbúar í Fellabæ, Eiðum og Hallormsstað og íbúar í dreifbýli á Fljótsdalshéraði. Í kjördeildum 1 og 2 á Fljótsdalshéraði verða sérstakar kjörstjórnir annars vegar vegna sveitarstjórnarkosninga og hins vegar vegna heimastjórnarkosninga.
Byggðaráð Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi lista fulltrúa í yfirkjörstjórn Múlaþings og kjörstjórna á Borgarfirði, Djúpavogi, Fljótsdalshéraði og Seyðisfirði.
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að óska eftir því við sýslumann að hægt verði að kjósa utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga á skrifstofum sveitarfélagsins á Borgarfirði og Djúpavogi, frá og með 30. apríl til og með 15. maí 2026.
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að óska eftir því við sýslumann að kjörstjórar vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna sveitarstjórnarkosninga verði Alda Marín Kristinsdóttir, Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar og Þórunn Ólafsdóttir á Borgarfirði og Ólöf Vilbergsdóttir á Djúpavogi.
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna heimastjórnakosninga fari fram á skrifstofum sveitarfélagsins á Borgarfirði, Djúpavogi, Egilsstöðum og Seyðisfirði frá og með 30. apríl til og með 15. maí 2026.
Byggðaráð vísar framangreindum afgreiðslum til sveitarstjórnar Múlaþings til staðfestingar.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.