Fara í efni

Ársreikningur Múlaþings 2025

Málsnúmer 202602270

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 181. fundur - 03.03.2026

Magnús Jónsson og Ingimar Guðmundsson mættu á fundinn undir þessum lið og kynntu drög að ársreikningi sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.

Byggðaráð Múlaþings - 182. fundur - 11.03.2026

Fyrir liggur til afgreiðslu ársreikningur Múlaþings fyrir árið 2025.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að vísa ársreikningi Múlaþings fyrir árið 2025 til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Sveitarstjórn Múlaþings - 66. fundur - 11.03.2026

Fyrir liggur til fyrri umræðu ársreikningur Múlaþings fyrir árið 2025.
Til máls tóku: Dagmar Ýr Stefánsdóttir, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Þröstur Jónsson, Hildur Þórisdóttir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Múlaþings 2025 til seinni umræðu í byggðaráði og sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Byggðaráð Múlaþings - 185. fundur - 07.04.2026

Fyrir liggur ársreikningur Múlaþings 2025 til seinni umræðu í byggðaráði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að vísa ársreikningi Múlaþings 2025 til síðari umræðu í sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Sveitarstjórn Múlaþings - 67. fundur - 15.04.2026

Helstu niðurstöðutölur eru sem hér segir:

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2025 námu 11.389 millj. kr. samkvæmt samanteknum ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 9.552 millj. kr. Rekstrargjöld fyrir fjármagnsliði og afskriftir námu alls 9.934 millj. kr. í samanteknum ársreikningi 2025 fyrir A og B hluta, þar af námu rekstrargjöld A hluta 9.050 millj.kr. Afskriftir ársins í A og B hluta námu 585 millj.kr. og þar af 347 millj.kr. í A hluta. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 624 millj.kr. í samanteknum A og B hluta, þar af 528 millj.kr. í A hluta.

Rekstrarniðurstaða A og B hluta samstæðureiknings Múlaþings var jákvæð um 224 milljónir króna á árinu 2025 en rekstrarniðurstaða eingöngu A hluta var neikvæð um 372 milljónir króna. Fyrir fjármagnsliði og óvenjulega liði var rekstrarniðurstaða A og B hluta jákvæð um 869 millj.kr., þar af 155 millj.kr. í A hluta. Fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir um 472 millj. kr. rekstrarafgangi af A hluta.

Lakari rekstarniðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir skýrist m.a. af samdrætti í tekjum miðað við áætlun, auknum launakostnaði og hækkun lífeyrisskuldbindingar. Annar rekstrarkostnaður stóð í stað milli ára en fór þó fram úr væntingum miðað við áætlun ársins. Hlutfall annars rekstrarkostnaðar af heildartekjum var nam 31% sem er áþekkt hlutfall og síðustu ár. Verðbólga mældist hærri árið 2025 en gert var ráð fyrir í áætlun.

Fjármagnsgjöld námu 625 millj. kr. í samstæðu A og B hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 582 millj. kr. Fjármagnsgjöld A hluta námu 528 millj. kr. en fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir 466 millj. kr. Veltufé frá rekstri var jákvætt um 1.210 millj. kr. á árinu 2025 í samstæðu A- og B hluta, þar af er veltufé frá rekstri A hluta jákvætt um 377 millj. kr. Fjárfestingahreyfingar ársins námu nettó 1.153 millj.kr. hjá samstæðu A og B hluta, þar af 567 millj.kr. í A hluta. Eigið fé var jákvætt í árslok 2025 um 4.557 millj. kr. í samstæðu A- og B hluta að teknu tilliti til hlutdeildar minnihluta.

Lántökur námu 544 millj.kr á árinu 2025, en afborganir af lánum og leiguskuldbindingum námu 836 millj.kr. á árinu 2025. Eignir samkvæmt efnahagsreikningi námu 18.489 millj.kr. í árslok 2025 fyrir A og B hluta, þar af nema heildareignir A hluta 11.737 millj.kr. í árslok 2025.

Skuldir og skuldbindingar samstæðu A- og B hluta námu í árslok 2025 um 13.932 millj. kr. og hækka um 557 millj. kr. frá árinu 2024. Þar af nema heildarskuldir og skuldbindingar A hluta 10.919 millj. kr. Skuldaviðmið skv. reglugerð um fjárhagsleg viðmið fyrir samstæðureikning A og B hluta er 92% í árslok 2025.

Ársreikningurinn í heild sinni er að öðru leyti aðgengilegur á heimasíðu Múlaþings.
Til máls tóku: Ívar Karl Hafliðason, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Þröstur Jónsson, Jónína Brynjólfsdóttir, Einar Freyr Guðmundsson, Vilhjálmur Jónsson.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn samþykkir framlagðan samstæðureikning Múlaþings fyrir árið 2025, við síðari umræðu, en fyrri umræða um hann fór fram 11. mars 2026.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?