Fara í efni

400 ár frá Tyrkjaráni

Málsnúmer 202604242

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Djúpavogs - 71. fundur - 07.05.2026

Árið 2027 verða liðin 400 ár frá Tyrkjaráninu. Þessi viðburður markaði djúp spor í samfélagið á Austfjörðum sem og víðar á landinu.
Heimastjórn telur mikilvægt að þessum atburði í sögu Austfjarða verði haldið á lofti og minnst með sérstökum hætti og að undirbúningur hefjist fyrr en síðar í samstarfi við íbúa, Sögufélag Austurlands, stofnanir og nágrannasveitarfélög.
Lagt er til að fá deildarstjóra menningarmála inn á fund nýrrar heimastjórnar til að fara yfir málið.
Meðfylgjandi er fundargerð aðalfundar Sögufélags Austurland frá 24. apríl 2026.

Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl:

Heimastjórn Djúpavogs - 73. fundur - 03.09.2026

Fyrir liggur bókun heimastjórnar frá 7. maí 2026 að mikilvægt sé að minnst verði með sérstökum hætti Tyrkjaránsins, en árið 2027 eru 400 ár liðin frá því.
Inn á fundinn undir þessum lið mætir Elsa Guðný Björgvinsdóttir verkefnastjóri menningarmála.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn þakkar Elsu Guðnýju fyrir góða kynningu, mun kynna verkefnið frekar fyrir heimafólki og vísar málinu til byggðaráðs.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Byggðaráð Múlaþings - 199. fundur - 15.09.2026

Fyrir liggur bókun heimastjórnar Djúpavogs frá 3. september 2026 um Tyrkjaránið og að þess verði minnst með sérstökum hætti á vegum Múlaþings á árinu 2027 þegar 400 ár verða liðin frá því það átti sér stað. Inn á fundinn undir þessum lið mætir Elsa Guðný Björgvinsdóttir, deildarstjóri menningarmála.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar Elsu Guðnýju fyrir góða kynningu og komuna á fundinn.

Byggðaráð felur deildarstjóra menningarmála að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?