Fara í efni

Heimastjórn Djúpavogs

71. fundur 07. maí 2026 kl. 10:00 - 12:00 á skrifstofu sveitarfélagsins, Djúpavogi
Nefndarmenn
  • Ívar Karl Hafliðason formaður
  • Ingi Ragnarsson aðalmaður
  • Oddný Anna Björnsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Eiður Ragnarsson fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Eiður Ragnarsson fulltrúi sveitarstjóra

1.Samfélagsverkefni heimastjórna 2026

Málsnúmer 202601217Vakta málsnúmer

Heimastjórn ákvað á síðasta fundi að láta kostnaðarmeta þrjár hugmyndir, útigrill í Blánni, minigolfbraut í Blánni og golfæfingasvæði í Blánni og leggja niðurstöðuna fyrir heimastjórn til ákvörðunartöku.
Heimastjórn samþykkir að styrkurinn í ár fari til Golfklúbbs Djúpavogs til að koma upp æfingasvæði fyrir golf í Blánni.
Heimastjórn felur stafsmanni að kalla eftir tímasettri verkáætlun.

Samþykkt samhljóða.

2.Heilsársvegur um Öxi

Málsnúmer 202304027Vakta málsnúmer

Axarvegur opnaðist eftir vetrarlokun þann 17. apríl síðastliðinn.
Heimastjórn Djúpavogs vill árétta að viðhaldi á Axarvegi sé ekki sinnt sem skyldi. Heflun og ofaníburður í veginn hefur verið skorinn við nögl undanfarin ár og er langt frá því að vera viðunandi.
Það er ljóst að á meðan ekki hefjast framkvæmdir við nýjan veg þá þarf að sinna viðhaldi og umhirðu með þeim hætti að vegurinn beri þá miklu umferð sem á honum er. Í veginn vantar mun meiri ofaníburð en hann hefur fengið undanfarin ár og rykbinding einu sinni á ári sé of lítið.

Heimastjórn vísar því til Sveitarstjórnar Múlaþings að koma þessum athugasemdum á framfæri við samgönguyfirvöld.

Samþykkt samhljóða.

3.Beiðni um friðslýsingu æðarvarps, Papey

Málsnúmer 202604148Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

4.Djúpavogsflugvöllur

Málsnúmer 202410056Vakta málsnúmer

Fyrir liggur svar Umhverfis og framkvæmdaráðs við fyrirspurn íbua á Djúpavogi um fyrirhugaða veglagningu sunnan við flugvöllinn á Egilsstöðum.

Gert er ráð fyrir veginum í nýju Aðalskipulagi Múlaþings en ekkert deiliskipulag er af svæðinu. Framkvæmdin er talin styðja ákvæði hverfisverndar í nýju Aðalskipulagi Múlaþings og vera í samræmi við það markmið Cittaslow stefnunnar að auka lífsgæði og ánægju íbúa. Þegar umsókn um framkvæmdaleyfi hefur verið skilað inn verður málið afgreitt samkvæmt viðkomandi lögum og reglugerðum, sem felur m.a. í sér að óskað verður umsagna viðkomandi stofnana.

Heimild fyrir losun á malbiksefni var ekki til staðar og verður það fjarlægt.
Umhverfis- og framkvæmdaráð þykir miður að efnislosun á svæðinu hafi átt sér stað án leyfis og þakkar ábendinguna. Málinu er vísað til umfjöllunar hjá náttúruverndarnefnd (Heimastjórn Djúpavogs).
Heimastjórn Djúpavogs, sem jafnframt er nátturuverndarnefnd fyrir gamla Djúpavogshrepp, leggst ekki gegn framkvæmdinni, en minnir á að ekki eigi að hefja framkvæmdir án framkvæmdarleyfis og leggur áherslu á að framkvæmdir hefjist ekki fyrr en að loknum varptíma, þ.e. eftir 15. júlí og að reynt verði eftir fremsta megni að lágmarka umfang framkvæmdarinnar.
Telur heimastjórn að umrædd framkvæmd muni hafa jákvæð áhrif á upplifun íbúa og gesta af svæðinu fyrir utan þéttbýlið á Djúpavogi og tryggja aðgengi að fjöru og "eyjum" á svæðinu allan ársins hring.

Gert er ráð fyrir umræddri framkvæmd í nýju aðalaskipulagi Múlaþings.

Samþykkt samhljóða.

5.400 ár frá Tyrkjaráni

Málsnúmer 202604242Vakta málsnúmer

Árið 2027 verða liðin 400 ár frá Tyrkjaráninu. Þessi viðburður markaði djúp spor í samfélagið á Austfjörðum sem og víðar á landinu.
Heimastjórn telur mikilvægt að þessum atburði í sögu Austfjarða verði haldið á lofti og minnst með sérstökum hætti og að undirbúningur hefjist fyrr en síðar í samstarfi við íbúa, Sögufélag Austurlands, stofnanir og nágrannasveitarfélög.
Lagt er til að fá deildarstjóra menningarmála inn á fund nýrrar heimastjórnar til að fara yfir málið.
Meðfylgjandi er fundargerð aðalfundar Sögufélags Austurland frá 24. apríl 2026.

Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl:

6.Fundir Heimastjórnar Djúpavogs

Málsnúmer 202010614Vakta málsnúmer

Tímasetning á næsta fundi heimastjórnar Djúpavogs er ekki ákveðin, mun það koma í hlut nýrrar sveitarstjórnar Múlaþings að setja sama fundadagatal fyrir nefndir og ráð, þegar hún kemur saman að loknum kosningum.

7.Skýrsla fulltrúa sveitarstjóra á Djúpavogi

Málsnúmer 202209244Vakta málsnúmer

Hitavatnsleit:
Áframhaldandi boranir eru fyrirhugaðar á sama stað og síðast, beðið er eftir bor í verkið.

Gatnaframkvæmdir:
Framkvæmdir við endurnýjun á Markarlandi eru hafnar, byrjað var á tengingum á vatni og frárennsli milli Markarlands og Búlands og er það langt komið. Gert er ráð fyrir að lagt verði malbik á þennan fyrsta áfanga um næstu mánaðarmót.

Höfnin:
Ný flotbryggja sem leysa á tvær eldri trébryggjur af hólmi er komin á staðinn, beðið er með sjósetningu og frágang, en vegna þungatakmarkana á vegum er ekki hægt að fá krana á staðinn.

Hafnarhús við trébryggju er á lokametrunum, búið er að klæða húsið að utan, þakjárn fer á fljótlega og lokafrágangur er í gangi innandyra.

Gamla kirkjan:
Skrifað hefur verið undir samning milli sveitarfélagsins og Hollvinasamtaka um gömlu kirkjuna. Er húsið nú formlega komið í eigu Hollvinasamtakana.

Sambúð:
Gengið hefur verið frá kaupum Múlaþings á Sambúð, húsi Björgunarsveitarinnar Báru og Rauða Krossins. Gert er ráð fyrir að þjónustumiðstöð sveitarfélagsins flytji starfsemi sína í húsið í byrjun júní.

Fulltrúi sveitarstjóra Djúpavogi:
Auglýsingatími um stöðuna er liðinn og verið er að vinna úr umsóknum.

Þar sem þetta er síðasti fundur fulltrúa sveitarstjóra hann vill þakka fyrir samstarfið undanfarin ár við íbúa og og heimastjórn Djúpavaogs.

Fundi slitið - kl. 12:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?