Fara í efni

Umsókn um frávik frá skipulagsskilmálum, Álfagata 5

Málsnúmer 202606092

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 186. fundur - 22.06.2026

Fyrir liggur umsókn um heimild til að víkja frá skipulagsskilmálum vegna byggingaráforma á íbúðarhúsalóð við Álfagötu 5 (L224160) í landi Unalækjar á Völlum. Fyrirhuguð áform gera ráð fyrir byggingu tveggja 40 fm frístundahúsa utan skilgreind byggingarreits.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð fellst ekki á fyrirliggjandi beiðni. Heimildir deiliskipulags gera ráð fyrir að hægt sé að reisa 3 frístundahús á lóðinni, til viðbótar við íbúðarhús og bílskúr sem fyrir er, og samkvæmt fyrirliggjandi uppdráttum er nægt rými innan skilgreinds byggingarreits til þeirrar uppbyggingar.

Umhverfis- og framkvæmdaráð bendir hins vegar á að frávik sem þessi frá skipulagsskilmálum, bygging utan byggingarreits, kalli á óverulega breytingu á deiliskipulagi og beinir því til málsaðila að leggja fram tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir viðkomandi lóð, Álfagötu 5 (L224160), fyrir ráðið að nýju.

Samþykkt samhljóða.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 187. fundur - 29.06.2026

Fyrir liggur tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Unalækjar á Völlum vegna byggingaráforma á Álfagötu 5. Tillagan er unnin af Birni Sveinssyni fyrir hönd lóðarhafa.

Skipulagstillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits, þ.e. að afmarka ytri byggingarreit, og samhliða að fjölga fjölda bygginga á lóðinni. Á ytri byggingarreit verði heimilar byggingar undir þjónustustarfsemi td. gistirekstur. Heildarbyggingarmagn helst óbreytt í 1.000 m2, en fjöldi bygginga fari úr fimm í átta.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur að taka afstöðu til málsmeðferðar og grenndarkynningar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að gerð verði óveruleg breyting á deiliskipulagi Unalækur - Völlum Múlaþingi, frístunda- og íbúðabyggð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin verði grenndarkynnt fyrir fasteignaeigendum við Stekkjabrekku 10 (L238332), Unalækur /lóð 4 (L208631), Álfagötu 1 (L238316), 2 (L238319), 3 (L238320) og 4 (L238323), í samræmi við gr. 5.8.2 í skipulagsreglugerð.
Málið verður tekið fyrir að nýju að grenndarkynningu lokinni.

Samþykkt samhljóða.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 189. fundur - 17.08.2026

Grenndarkynningu vegna deiliskiplagsbreytingu við Unalæk, Álfagötu 5, stóð til og með 4. ágúst 2026. Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur að taka afstöðu til umsagnanna sem bárust á kynningartíma, auk þess sem Vegagerðin sendi inn umsögn til skipulagsfulltrúa.

Umsagnir sem bárust á kynningartíma gera ekki athugasemdir við fyrirliggjandi breytingu. Umsögn Vegagerðarinnar gerir athugasemd við að sýna þurfi veghelgunarsvæði og fjarlægðir milli vegtenginga á uppdrætti. Jafnframt er óskað eftir að nýting tengingar við þjóðveg verði takmörkuð og bent á fjarlægðarkröfur bygginga frá vegum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð staðfestir að grenndarkynningu vegna breytingar á deiliskipulagi Álfagötu 5 (L224160) sé lokið. Innan kynningartíma bárust fjórar umsagnir frá hagsmunaaðilum á nærliggjandi lóðum og voru þær allar án athugasemda við fyrirliggjandi breytingu.

Að kynningartíma loknum barst jafnframt umsögn Vegagerðarinnar, en töf á henni stafaði af sumarleyfum. Ráðið tekur undir ábendingar Vegagerðarinnar um að fjarlægðir milli vegtenginga og veghelgunarsvæði verði sýnd með skýrum hætti á uppdrætti og felur starfsmanni að koma þeim á framfæri við málsaðila.

Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi breytingu á deiliskipulagi Álfagötu 5 (L224160), með fyrirvara um að uppdráttur og merkjalýsing verði lagfærð til samræmis við umsögn Vegagerðarinnar áður en endanleg gögn verða staðfest og send til skráningar.

Ráðið felur skipulagsfulltrúa að yfirfara og staðfesta lagfærð gögn.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?