Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

186. fundur 22. júní 2026 kl. 13:00 - 15:41 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir formaður
  • Björg Eyþórsdóttir varamaður
  • Guðmundur Björnsson Hafþórsson aðalmaður
  • Þórhallur Borgarsson aðalmaður
  • Þórir Stefánsson aðalmaður
  • Glúmur Björnsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála

1.Upplýsingafundur með Landsvirkjun, 2026-2030

Málsnúmer 202602156Vakta málsnúmer

Inn á fundinn tengjast starfsmenn Landsvirkjunar og veita upplýsingar um starfsemi fyrirtækisins í sveitarfélaginu.
Lagt fram til kynningar.

Gestir

  • Sindri Óskarsson - mæting: 13:00
  • Árni Jóhann Óðinsson - mæting: 13:00
  • Kári Freyr Lefever - mæting: 13:00

2.Ránargata 1 Wathnehúsið, Seyðisfirði

Málsnúmer 202602088Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur til kynningar fundargerð vegna opnunar á útboði vegna Hafnargötu 44 á Seyðisfirði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir tilboð Úlfsstaða í verkið og felur sviðsstjóra framkvæmda að ganga frá verksamningi.

Samþykkt samhljóða.

3.Umhverfishönnun, Djúpivogur, Bláin og tenging við tjaldsvæði

Málsnúmer 202502194Vakta málsnúmer

Í upphafi máls vakti Þórir Stefánsson (ÞS), athygli á mögulegu vanhæfi sínu undir málslið 3. og gerði grein fyrir því. Formaður (ÞKS) bar málið upp til atkvæðagreiðslu og var vanhæfið fellt einróma.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur fyrir til kynningar hönnun á umhverfi í Blánni á Djúpavogi.
Jafnframt er óskað eftir því að ráðið taki afstöðu til stofnunar lóðar vegna hleðslustöðvar á Djúpavogi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar fyrir framlagða kynningu á umhverfishönnuninni.

Ráðið samþykkir að starfsfólk skipulagssviðs setji af stað vinnu við stofnun lóðar fyrir hleðslustöðina í Blánni. Ráðið samþykkir að sett verði af stað grenndarkynning á lóðinni fyrir íbúa Djúpavogs.

Samþykkt samhljóða.

4.Umsókn um byggingarheimild, Leirubakki 11, 710,

Málsnúmer 202404037Vakta málsnúmer

Í upphafi máls vakti Ásrún Mjöll Stefánsdóttir (ÁMS) athygli á mögulegu vanhæfi sínu undir málslið 4. og gerði grein fyrir því. Fundarstjóri bar málið upp til atkvæðagreiðslu og var það samþykkt samhljóða.
ÁMS vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Fyrir liggur umsókn um byggingarheimild vegna flutnings á Garði frá Hafnargötu 42 á Leirubakka 11 (L132120) á Seyðisfirði. Áformin voru grenndarkynnt við stofnun lóðarinnar árið 2023, en skv. 4. lið 44. gr. skipulagslaga skulu áformin kynnt að nýju hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út innan 12 mánaða frá afgreiðslu ráðsins.
Fyrir ráðinu liggur því að taka afstöðu til grenndarkynningar að nýju, í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr 123/2010.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að fyrirhuguð áform verði grenndarkynnt að nýju fyrir fasteignaeigendum við Vesturveg 8, Leirubakka 9 og 10.

Samþykkt samhljóða.

5.Umsókn um frávik frá skipulagsskilmálum, Álfagata 5

Málsnúmer 202606092Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn um heimild til að víkja frá skipulagsskilmálum vegna byggingaráforma á íbúðarhúsalóð við Álfagötu 5 (L224160) í landi Unalækjar á Völlum. Fyrirhuguð áform gera ráð fyrir byggingu tveggja 40 fm frístundahúsa utan skilgreind byggingarreits.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð fellst ekki á fyrirliggjandi beiðni. Heimildir deiliskipulags gera ráð fyrir að hægt sé að reisa 3 frístundahús á lóðinni, til viðbótar við íbúðarhús og bílskúr sem fyrir er, og samkvæmt fyrirliggjandi uppdráttum er nægt rými innan skilgreinds byggingarreits til þeirrar uppbyggingar.

Umhverfis- og framkvæmdaráð bendir hins vegar á að frávik sem þessi frá skipulagsskilmálum, bygging utan byggingarreits, kalli á óverulega breytingu á deiliskipulagi og beinir því til málsaðila að leggja fram tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir viðkomandi lóð, Álfagötu 5 (L224160), fyrir ráðið að nýju.

Samþykkt samhljóða.

6.Umsókn um lóð, Iðjusel 1

Málsnúmer 202502225Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá lóðarhöfum við Iðjusel 1 í Fellabæ, Kornþurrkun Austurlands ehf. og Björgunarsveitinni Jöklum, þar sem óskað er eftir lóðaleigusamningi með vísan til 7. greinar reglna Múlaþings um úthlutun lóða.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð heimilar gerð lóðarleigusamnings með vísan til 7. gr. reglna um úthlutun lóða, um leið og sökkull fyrir bygginguna er tilbúinn.

Samþykkt samhljóða.

7.Umsókn um skráningu nýrra landeigna í fasteignaskrá, Sel

Málsnúmer 202606110Vakta málsnúmer

Fyrir liggur merkjalýsing ásamt umsókn um uppskiptingu lands úr jörðinni Selland (L156874). Ný lóð fær heitið Sel.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir umsóknina og felur verkefnastjóra skipulagsmála að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

8.Ný Lagarfljótsbrú

Málsnúmer 202110106Vakta málsnúmer

Lagt er fram til kynningar bréf frá Vegagerðinni, dags. 16.06.2026, þar sem veittar eru almennar upplýsingar um rannsóknir og byrjunarathuganir vegna undirbúnings á verkefninu Hringvegur (1) um Lagarfljót.
Sams konar bréf hefur verið sent til þinglýstra eigenda og lóðarhafa landa sem eru taldar liggja að þeim veglínum sem nú eru til skoðunar.
Lagt fram til kynningar.

Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar Vegagerðinni fyrir bréfið. Ráðið óskar eftir því að fulltrúi Vegagerðarinnar komi og kynni málið fyrir nýju umhverfis- og framkvæmdaráði haustið 2026.

Fundi slitið - kl. 15:41.

Getum við bætt efni þessarar síðu?