Málsnúmer 202209244Vakta málsnúmer
Framkvæmdir í Markarlandi:
Verkið er á lokametrunum. Gatan var malbikuð í seinni hluta september og hefst gerð gangstétta við götuna nú í haust.
Malbikað var efst í Borgarlandi í sömu mund.
Stofnanir sveitarfélagsins:
Íþróttamiðstöð Djúpavogs
Glænýtt ljósakerfi var sett upp í íþróttasalnum, sem íbúar eru hvattir til að skoða.
Nýtt loftræstikerfi verður sett upp hjá sundlauginni á næstu dögum.
Bókasafn Múlaþings, Djúpavogi
Mikið hefur verið um að vera í bókasafninu. Þar ber fyrst að nefna Sögustund við varðeld, sem bókasafnið hélt í samstarfi við Náttúruskólann 29. september. Bókasafnið stóð fyrir Sögusmiðjunni með Ævari Þór Benediktssyni rithöfundi 22. september. Þar var góð aðsókn.
Auglýst er eftir starfsmanni á bókasafnið. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 5. október. Þar til nýr starfsmaður er ráðinn, verður opnunartími skertur. Opið er á mánudögum milli klukkan 15 og 18 í október.
Félagsmiðstöðin Zion
Félagsmiðstöðin vinnur að því að auka þjónustu við börn og unglinga á Djúpavogi. Starfsemi frístundar grunnskólans hefur verið færð úr húsnæði Helgafells yfir í skólann. Þannig gefst félagsmiðstöðinni færi á að hefja opnanir og klúbbastarf að degi til, þrisvar í viku. Það hefur ekki verið mögulegt hingað til. Þar með eykst þjónusta félagsmiðstöðvarinnar um hart nær helming.
Þjónustumiðstöð Djúpavogs
Starfsmenn vinna nú að því að stækka geymslusvæðið í kringum Sambúð. Svæðið verður svo girt af fyrir búnað Þjónustumiðstöðvarinnar.
Leikskólinn Bjarkatún
Framkvæmdir eru í gangi í viðbyggingu leikskólans. Búið er að steypa sökkla og stefnt er því að steypa plötuna í lok október.
Öxi
Vegurinn er með versta móti og íbúar margir orðið þess varir. Vegagerðin staðfestir að heflað verði um leið og veður leyfir, að lágmarki einu sinni í viðbót fyrir veturinn.
Langabúð
Núverandi rekstraraðilar hafa sagt upp samningi frá og með næstu áramótum.
Ákvörðun um framhaldið verður tekin í byggðaráði Múlaþings sem er með málið á dagskrá þann 6. október 2026.
Heimastjórn Djúpavogs þakkar Gunnlaugi fyrir greinargóða yfirferð. Heimastjórn mun vinna málið áfram samkvæmt umræðum á fundinum og styðja Íþróttamiðstöð Djúpavogs við að efla öryggi gesta.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.