Fara í efni

Gangnaboð og gangnaseðlar 2026

Málsnúmer 202607108

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Seyðisfjarðar - 70. fundur - 30.07.2026

Fyrir liggur til samþykktar gangnaseðill fyrir Seyðisfjörð haustið 2026. Stefán Aspar Stefánsson verkefnastjóri umhverfismála situr fundinn undir þessum lið.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Seyðisfjarðar samþykkir fyrirliggjandi gangnaseðla 2026 fyrir Seyðisfjörð með fyrirvara um lítilsháttar breytingar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Djúpavogs - 72. fundur - 06.08.2026

Fyrir liggur til samþykktar gangnaseðill vegna fjallskila í gamla Djúpavogshreppi haustið 2026. Inn á fundinn undir þessum lið mætir Stefán Aspar Stefánsson, verkefnastjóri umhverfismála.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn samþykkir framlagðan gangnaseðil og heimilar starfsmanni og fjallskilastjóra að gera minniháttar breytingar á seðlinum gerist þess þörf.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Borgarfjarðar - 71. fundur - 10.08.2026

Fyrir liggja til samþykktar gangnaseðlar vegna fjallskila á Fljótsdalshéraði haustið 2026. Inn á fundinn undir þessum lið kom Stefán Aspar Stefánsson, verkefnastjóri umhverfismála og þakkar heimastjórn honum fyrir góða kynningu.
Heimastjórn Borgarfjarðar samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi gangnaseðil fyrir Borgarfjörð eystra.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Gestir

  • Stefán Aspar Stefánsson - mæting: 11:00

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 71. fundur - 10.08.2026

Fyrir liggja til samþykktar gangnaseðlar vegna fjallskila á Fljótsdalshéraði haustið 2026. Inn á fundinn undir þessum lið mætir Stefán Aspar Stefánsson, verkefnastjóri umhverfismála.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir fyrirliggjandi gangnaseðla fyrir: Jökuldal austan ár og Hróarstungu, Fellin, Vellina, Eiðaþinghá, Jökuldal norðan ár og Jökulsárhlíð, Hjaltastaðaþinghá og Skriðdal með fyrirvara um lítilsháttar breytingar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?