Fara í efni

Heimastjórn Seyðisfjarðar

70. fundur 30. júlí 2026 kl. 13:00 - 15:10 á skrifstofu sveitarfélagsins, Seyðisfirði
Nefndarmenn
  • Einar Freyr Guðmundsson formaður
  • Hildur Þórisdóttir aðalmaður
  • Margrét Guðjónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Inga Þorvaldsdóttir fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Inga Þorvaldsdóttir fulltrúi sveitarstjóra
Hildur Þórisdóttir sat fundinn í gegnum Teams

1.Fjárhagsáætlun Múlaþings 2027 til 2030

Málsnúmer 202606136Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030. Óskað er eftir áherslum heimastjórnar við gerð fjárhagsáætlunarinnar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Starfsmanni falið að koma tillögum sem ræddar voru á fundinum til viðkomandi fagráða.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Starfsumhverfi leikskóla

Málsnúmer 202602258Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Múlaþings óskar eftir umsögn heimastjórnar Seyðisfjarðar um meðfylgjandi skjal, þar sem lagðar eru fram tillögur starfshóps um breytingar á skipulagi og starfsaðstæðum leikskóla sveitarfélagsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn fagnar þessari vinnu og gerir ekki athugasemdir við tillögur starfshópsins.

Samþykkt samhljóða meðal handauppréttingu.

3.Umhverfisviðurkenningar 2026

Málsnúmer 202607097Vakta málsnúmer

Heimastjórn hvetur bæjarbúa til að tilnefna einstaklinga, fyrirtæki og lögbýli sem þeim finnst bera af eða leggja metnað í að hafa snyrtilegt og fallegt í kringum sig. Frestur til að skila inn tilnefningum er til sunnudagsins 3. ágúst 2026. Tilnefningar má senda á umhverfisfulltrui@mulathing.is

4.Gangnaboð og gangnaseðlar 2026

Málsnúmer 202607108Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til samþykktar gangnaseðill fyrir Seyðisfjörð haustið 2026. Stefán Aspar Stefánsson verkefnastjóri umhverfismála situr fundinn undir þessum lið.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Seyðisfjarðar samþykkir fyrirliggjandi gangnaseðla 2026 fyrir Seyðisfjörð með fyrirvara um lítilsháttar breytingar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Framtíðaruppbygging atvinnulífs á Seyðisfirði

Málsnúmer 202310203Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar fundagerðir samráðshóps um uppbyggingu atvinnulífs á Seyðisfirði frá 12.01,09.02,05,03 og 25.03.2026.
Lagt fram til kynningar.

6.Skýrsla fulltrúa sveitarstjóra á Seyðisfirði

Málsnúmer 202601161Vakta málsnúmer

Stækkun Seyðisfjarðarskóla: 16.júní sl. fór ný skólabygging í útboð sem lauk 23.júlí síðast liðinn. Tvö tilboð bárust sem verið er að vinna úr.

Gamli barnaskóli: Áætlað er að mála Gamla barnaskólann núna í ágústmánuði. Minjastofnun lagði til litaval sem verið er að vinna með.

Flutningur á Wathneshúsi: Undirbúningur er hafinn á fullu við flutning Wathneshússins sem verður flutt af Hafnargötu 44 yfir á Ránargötu 1. Framkvæmdir eru hafnar á jarðvinnu og undirbúningi fyrir uppsteypu á nýjum kjallara sem fara á undir húsið. Áætlað er að þeirri vinnu verði lokið um miðjan september og flutningur Wathnesshúss geti svo átt sér stað október 2026. Úlfsstaðir eru þeir verktakar sem sjá um framkvæmdirnar.
Reynt hefur verið að koma á móts við sem flestar ábendingar og athugasemdir sem bárust m.a. í grenndarkynningu sem fram fór í vor.

Bæjarskrifstofan: Aðstaða bæjarskrifstofunnar í framtíðinni mun verða á efri hæð Herðubreiðar en meðan verið er að gera það klárt flytur skrifstofan tímabundið niður í Austfar Fjarðargötu 8. Áætlað er að flytja vikuna 17.- 21. ágúst nk.

Fundi slitið - kl. 15:10.

Getum við bætt efni þessarar síðu?