Fara í efni

Heimastjórn Borgarfjarðar

71. fundur 10. ágúst 2026 kl. 09:00 - 12:20 á skrifstofu sveitarfélagsins, Borgarfirði
Nefndarmenn
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir formaður
  • Ólafur Arnar Hallgrímsson aðalmaður
  • Óttar Már Kárason aðalmaður
Starfsmenn
  • Alda Marín Kristinsdóttir fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Alda Marín Kristinsdóttir fulltrúi sveitarstjóra

1.Fjárhagsáætlun Múlaþings 2027 til 2030

Málsnúmer 202606136Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030. Óskað er eftir áherslum heimastjórnar við gerð fjárhagsáætlunarinnar.
Starfsmanni falið að vinna tillögur í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir á næsta fundi heimastjórnar.
Málið áfram í vinnslu.

2.Umhverfisviðurkenningar 2026

Málsnúmer 202607097Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar tilnefningar til umhverfisviðurkenninga 2026.
Heimastjórn þakkar fyrir innsendar tillögur, vinnur málið áfram og tekur fyrir á næsta fundi.
Í vinnslu.

3.Gangnaboð og gangnaseðlar 2026

Málsnúmer 202607108Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til samþykktar gangnaseðlar vegna fjallskila á Fljótsdalshéraði haustið 2026. Inn á fundinn undir þessum lið kom Stefán Aspar Stefánsson, verkefnastjóri umhverfismála og þakkar heimastjórn honum fyrir góða kynningu.
Heimastjórn Borgarfjarðar samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi gangnaseðil fyrir Borgarfjörð eystra.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Gestir

  • Stefán Aspar Stefánsson - mæting: 11:00

4.Framkvæmdasjóður ferðamannastaða, framkvæmdaáætlun 2026-

Málsnúmer 202603088Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að tillögum heimastjórnar Borgarfjarðar inn í fimm ára framkvæmdaáætlun að verkefnum er varða uppbyggingu áfangastaða í sveitarfélaginu. Málið var áður á dagskrá heimastjórnar 25. júní 2026.
Heimastjórn samþykkir fyrirliggjandi drög að tillögum inn í fimm ára framkvæmdaáætlun að verkefnum varðandi uppbyggingu áfangastaða í sveitarfélaginu.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Starfsumhverfi leikskóla

Málsnúmer 202602258Vakta málsnúmer

Fyrir liggur beiðni frá fjölskylduráði um umsögn heimastjórnar Borgarfjarðar varðandi tillögur starfshóps um breytingar á skipulagi og starfsaðstæðum leikskóla sveitarfélagsins. Málið var áður dagskrá heimastjórnar 25. júní 2026.

Marta Wium Hermannsdóttir, leikskólafulltrúi kom inn á fundinn og þakkar heimastjórn henni fyrir góða kynningu.
Heimastjórn þakkar vinnuhópnum fyrir góða vinnu og er ánægð með að tekið sé tillit til mismunandi aðstæðna í kjörnum sveitarfélagsins þegar kemur að leikskólamálum. Heimastjórn er fylgjandi leið tvö er varðar starfsemi leikskólans Glaumbæjar á Borgarfirði, sem felur í sér að leikskólinn verði áfram gjaldfrjáls en foreldrar greiði fyrir skráningardaga. Leikskólinn starfi áfram samkvæmt eigin skóladagatali.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Gestir

  • Marta Wium Hermannsdóttir - mæting: 10:30

6.Hvatning til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis á Borgarfirði

Málsnúmer 202608015Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Önnu Margréti Jakobsdóttur Hjarðar, dagsett 29. júlí 2026 með hvatningu um að heimastjórn beiti sér fyrir uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á Borgarfirði.
Heimastjórn tekur undir erindið og hvetur verktaka til að huga að húsnæðisuppbyggingu á Borgarfirði til sölu á almennum markaði. Möguleikar til uppbyggingar á Borgarfirði eru fjölmargir og lóðir í boði fyrir einbýlishús, rað- og parhús. Þá eru í gildi afslættir af gatnagerðargjöldum.
Heimastjórn beinir erindinu áfram til sviðsstjóra framkvæmda til frekari vinnslu.
Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

7.Ósk um úthlutun svæðis fyrir hjólabraut á Borgarfirði

Málsnúmer 202608016Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Árna Magnúsi Magnusson, dagsett 28. júlí 2026 með ósk um úthlutun svæðis fyrir hólabraut fyrir hjólreiðaþjálfun.
Málinu frestað til næsta fundar.

8.Skýrsla fulltrúa sveitarstjóra á Borgarfirði

Málsnúmer 202605188Vakta málsnúmer

Hafnarframkvæmdir hefjast í vikunni en verkið hefur tafist mjög vegna seinkanna við afhendingu timburs frá framleiðanda. Verkið felst í endurbyggingu gömlu löndunarbryggjunnar sem er orðin afar illa farin og er unnið af Úlfsstöðum á Seyðisfirði, sem sáu einnig um byggingu nýju löndunarbryggjunnar. Verkið mun teygja sig inn í haustið.

Ýmislegt hefur verið framkvæmt á Borgarfirði í sumar og hér eru nokkur dæmi:
Steyptar hafa verið gangstéttar meðfram þorpsgötunni.
Haldið áfram að byggja upp leiksvæðið milli Fjarðarborgar og Sparkhallar, svæðið jafnað út og þökulagt og göngustígar lagðir. Þá hefur einnig svæðið kringum félagsheimilið verið snyrt.
HEF vinnur að því að tengja nýja neysluvatnslögn.
Efni keyrt í götur á tjaldsvæðinu og þær lengdar.
Áhersla lögð á að hemja útbreiðslu lúpínu í og í kringum Álfaborgina.
Lokið við framkvæmdir á forstofunni á Lindarbakka og nýju hleðslunni við hana og þökkum við Birni Björgvinssyni, Birni Skúlasyni og Bryndísi Snjólfsdóttur kærlega fyrir þeirra störf.
Verið er að klæða Ásbrún.

Bræðslan fór vel fram þrátt fyrir að veðrið hafi ekki alveg leikið við okkur. Óhætt að segja að öll hafi lagst á eitt við að sem best færi um gesti og að allt færi vel fram. Tónleikahaldarar og rekstraraðilar á Borgarfirði, björgunarsveit, lögregla og HSA og auðvitað öll sem komu að utanumhaldi hvers konar í Bræðsluviku fá hér með hrós og kærar þakkir fyrir góða hátíð.

Frú Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Björn Skúlason eiginmaður hennar heimsóttu Borgarfjörð á Bræðsludegi og fengu leiðsögn Dagmarar Ýrar Stefánsdóttur sveitarstjóra um fjörðinn og nutu Bræðslutónleikanna um kvöldið. Forsetahjónin voru afar ánægð með heimsóknina og er þeim þökkuð heimsóknin. Frétt um heimsóknina og myndir frá henni má finna hér: https://www.mulathing.is/is/frettir/forsetahjonin-i-heimsokn-i-mulathingi

9.Fundir Heimastjórnar Borgarfjarðar

Málsnúmer 202605187Vakta málsnúmer

Næsti fundur heimastjórnar verður haldinn mánudaginn 7. september 2026. Erindi fyrir fundinn þurfa að berast fyrir kl. 12:00 miðvikudaginn 2. september. Erindi skal senda á netfangið alda.kristinsdottir@mulathing.is eða bréfleiðis til skrifstofu.

Fundi slitið - kl. 12:20.

Getum við bætt efni þessarar síðu?