Fara í efni

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs

71. fundur 10. ágúst 2026 kl. 09:30 - 11:39 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Eiður Ragnarsson formaður
  • Hafsteinn Jónasson aðalmaður
  • Guðný Drífa Snæland varamaður
Starfsmenn
  • Hlynur Jónsson fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson fulltrúi sveitarstjóra

1.Gangnaboð og gangnaseðlar 2026

Málsnúmer 202607108Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til samþykktar gangnaseðlar vegna fjallskila á Fljótsdalshéraði haustið 2026. Inn á fundinn undir þessum lið mætir Stefán Aspar Stefánsson, verkefnastjóri umhverfismála.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir fyrirliggjandi gangnaseðla fyrir: Jökuldal austan ár og Hróarstungu, Fellin, Vellina, Eiðaþinghá, Jökuldal norðan ár og Jökulsárhlíð, Hjaltastaðaþinghá og Skriðdal með fyrirvara um lítilsháttar breytingar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Umhverfisviðurkenningar 2026

Málsnúmer 202607097Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar tilnefningar til umhverfisviðurkenninga 2026. Inn á fundinn undir þessum lið mætir Stefán Aspar Stefánsson, verkefnastjóri umhverfismála.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs þakkar fyrir innsendar tillögur. Málið verður tekið fyrir að nýju á næsta fundi heimastjórnar.

Lagt fram til kynningar.

3.Fjárhagsáætlun Múlaþings 2027 til 2030

Málsnúmer 202606136Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030. Óskað er eftir áherslum heimastjórnar við gerð fjárhagsáætlunarinnar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs felur starfsmanni að koma tillögum sem ræddar voru á fundinum til viðkomandi fagráða.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Hjólabraut á Egilsstöðum

Málsnúmer 202607135Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Írisi Sverrisdóttur og AÍK Start, dagsett 31. júlí 2026, þar sem óskað er eftir að styrkur vegna samfélagsverkefnis um hjólabraut á Egilsstöðum, sem heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi 7. maí 2026, verði greiddur til AÍK Start, sem muni hafa umsjón með uppsetningu hjólabrautarinnar. Þá liggja fyrir drög að uppdrætti skipulags á svæðinu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir að styrkur vegna samfélagsverkefnis um hjólabraut á Egilsstöðum, að fjárhæð kr. 4.000.000,-, verði greiddur til AÍK Start, sem muni hafa umsjón með uppsetningu hjólabrautarinnar og felur starfsmanni heimastjórnar að ganga frá samningi þar um. Þá samþykkir heimastjórn fyrirliggjandi uppdrátt skipulags á svæðinu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Framkvæmdasjóður ferðamannastaða, framkvæmdaáætlun 2026-

Málsnúmer 202603088Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að tillögum heimastjórnar Fljótsdalshéraðs inn í fimm ára framkvæmdaáætlun að verkefnum varðandi uppbyggingu áfangastaða í sveitarfélaginu. Málið var á dagskrá heimastjórnar 24. júní 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir fyrirliggjandi drög að tillögum inn í fimm ára framkvæmdaáætlun að verkefnum varðandi uppbyggingu áfangastaða í sveitarfélaginu. Starfsmanni heimastjórnar falið að skila tillögunum til verkefnastjóra atvinnumála.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Starfsumhverfi leikskóla

Málsnúmer 202602258Vakta málsnúmer

Fyrir liggur beiðni frá fjölskylduráði um umsögn heimastjórnar Fljótsdalshéraðs varðandi tillögur starfshóps um breytingar á skipulagi og starfsaðstæðum leikskóla sveitarfélagsins. Málið var á dagskrá heimastjórnar 24. júní 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs gerir ekki athugasemdir við tillögur starfshópsins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Deiliskipulag, Kollsstaðasel, frístundabyggð, 701

Málsnúmer 202510198Vakta málsnúmer

Fyrir liggur skipulagsáætlun vegna Kollsstaðasels (L157596) ofan Egilsstaða sem umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkti fyrir sitt leyti á fundi 29. júní 2026 að yrði kynnt í samræmi við 4. málsgrein 40. greinar skipulagslaga. Ráðið vísaði málinu til heimastjórnar Fljótsdalshéraðs til samþykktar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir fyrirliggjandi skipulagsáætlun vegna Kollsstaðasels (L157596) ofan Egilsstaða.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Ósk um tilnefningu í samstarfshóp um friðlýsingu Hjálpleysu

Málsnúmer 202607009Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Náttúruverndarstofnun, dagsett 1. júlí 2026, þar sem óskað er eftir einum til tveimur fulltrúum Múlaþings í samstarfshóp um friðlýsingu Hjálpleysu.
Í vinnslu.

9.Umsagnarbeiðni, stofnun lögbýlis, Finnsstaðir 6

Málsnúmer 202607112Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsagnarbeiðni til Múlaþings, dagsett 20. júlí 2026, frá Kára Jónassyni og Atla Berg Kárasyni, vegna umsóknar landeigenda til atvinnuvegaráðuneytisins um stofnun lögbýlis á Finnsstöðum 6, L241087.
Hafsteinn gerði grein fyrir vanhæfi sínu og óskaði eftir að víkja af fundi undir þessum lið og var það samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs staðfestir að umsóknin er í samræmi við staðfest skipulag og uppfylli skilyrði 18. gr. jarðalaga nr. 81/2004 og veitir jákvæða umsögn um umsóknina.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

10.Kosning fulltrúa í embætti, stjórnir, ráð og nefndir

Málsnúmer 202605189Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga um fulltrúa í nefndir sem heimastjórn Fljótsdalshéraðs ber að tilnefna samkvæmt D-lið 48. gr. greinar samþykktar um stjórn Múlaþings.

1. Stjórn Landbótasjóðs Norður-Héraðs. Heimastjórn tilnefnir þrjá fulltrúa og þrjá til vara í samræmi við skipulagsskrá fyrir sjóðinn.

2. Ráðgjafanefnd um uppgræðslustarf. Heimastjórn tilnefnir einn fulltrúa í þriggja manna ráðgjafanefnd um uppgræðslustarf í samræmi við 10. grein skipulagsskrár Landbótasjóðs Norður-Héraðs og 3. gr. samkomulags milli Landsvirkjunar og virkjunarnefndar Norður-Héraðs um ýmist mál sem tengjast Kárahnjúkavirkjun. Aðrir fulltrúar í nefndina eru skipaðir af Landsvirkjun og Landgræðslunni.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs tilnefnir eftirfarandi í stjórn Landbótasjóðs Norður-Héraðs:
Aðalmenn
Þorvaldur Hjarðar
Sólrún Hauksdóttir
Linda Björk Kjartansdóttir
Varamenn
Stefanía Malen Stefánsdóttir
Benedikt Arnórsson
Aðalsteinn Sigurðarson

Þá tilnefnir heimastjórn Jón Hávarð Jónsson sem fulltrúa í ráðgjafanefnd um uppgræðslustarf.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

11.Ábendingar til sveitarfélaga vegna búfjárbeitar og ágangs búfjár

Málsnúmer 202606174Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar bréf frá atvinnuvegaráðuneytinu, dagsett 24. júní 2026, með ábendingum til sveitarfélagsins um búfjárbeit og ágang búfjár.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:39.

Getum við bætt efni þessarar síðu?