Fara í efni

Hjólabraut á Egilsstöðum

Málsnúmer 202607135

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 71. fundur - 10.08.2026

Fyrir liggur erindi frá Írisi Sverrisdóttur og AÍK Start, dagsett 31. júlí 2026, þar sem óskað er eftir að styrkur vegna samfélagsverkefnis um hjólabraut á Egilsstöðum, sem heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi 7. maí 2026, verði greiddur til AÍK Start, sem muni hafa umsjón með uppsetningu hjólabrautarinnar. Þá liggja fyrir drög að uppdrætti skipulags á svæðinu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir að styrkur vegna samfélagsverkefnis um hjólabraut á Egilsstöðum, að fjárhæð kr. 4.000.000,-, verði greiddur til AÍK Start, sem muni hafa umsjón með uppsetningu hjólabrautarinnar og felur starfsmanni heimastjórnar að ganga frá samningi þar um. Þá samþykkir heimastjórn fyrirliggjandi uppdrátt skipulags á svæðinu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 192. fundur - 14.09.2026

Starfsmaður heimastjórnar Fljótsdalshéraðs situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur erindi frá Akstursíþróttafélaginu Start vegna Pump Track brautar í Tjarnargarðinum. Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti á 71. fundi sínum þann 10. ágúst sl. að úthluta styrk vegna samfélagsverkefna að fjárhæð 4.000.000 kr, til samfélagsverkefnis um hjólabraut á Egilsstöðum. AÍK Start mun verða umsjónaraðili verkefnisins.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur að taka afstöðu til staðsetningar hjólabrautarinnar.
Málið er áfram í vinnslu.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 195. fundur - 05.10.2026

Jákvæð umsögn skólastjóra Egilsstaðaskóla liggur fyrir, ásamt umsögn Start Akstursíþróttaklúbbs varðandi fyrirhugaða staðsetningu hjólabrautarinnar.
Liggur fyrir ráðinu að taka afstöðu til staðsetningar á hjólabrautinni sem og stofnunar lóðarinnar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að stofnuð verði lóð um hjólabrautina á fyrirhugaðri staðsetningu, með vísan í bókun heimastjórn Fljótsdalshéraðs á 71. fundi.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?