Fara í efni

Tölustafir innleiddir í stað bókstafa í grunnskólum

Málsnúmer 202608069

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Múlaþings - 164. fundur - 17.08.2026

Mennta- og barnamálaráðuneytið hrindir í framkvæmd breytingum á námsmati í grunnskólum frá og með skólaárinu 2026-2027. Breytingarnar verða innleiddar í tveimur áföngum. Fyrsti áfangi tekur formlega gildi vorið 2027 og nær til lokamats í 10. bekk, en undirbúningur hefst haustið 2026. Annar áfangi tekur formlega gildi vorið 2028 og nær til lokamats í 4. og 7. bekk.
Sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu er falið að taka saman umsögn um breytingarnar sem og vinnulagið fyrir hönd sveitarfélagsins, í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fjölskylduráð Múlaþings - 167. fundur - 14.09.2026

Fyrir liggja drög að bréfi til mennta- og barnamálaráðherra vegna fyrirhugaðra breytinga á námsmati í grunnskólum og innleiðingar þeirra.
Máli er frestað.

Fjölskylduráð Múlaþings - 170. fundur - 05.10.2026

Fyrir liggja drög að bréfi til mennta- og barnamálaráðherra vegna fyrirhugaðra breytinga á námsmati í grunnskólum og innleiðingar þeirra.
Fjölskylduráð Múlaþings gerir athugasemdir við þann skamma fyrirvara og það vinnulag sem viðhaft hefur verið við undirbúning og innleiðingu breytinga á námsmati í grunnskólum. Ráðið telur mikilvægt að breytingar af þessu tagi byggist á faglegum undirbúningi, raunverulegu samráði við skólasamfélagið og nægum fyrirsjáanleika fyrir skóla. Fjölskylduráð samþykkir framlagt bréf til mennta- og barnamálaráðherra og felur sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu að koma því á framfæri við ráðherra.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?