Fara í efni

Fjölskylduráð Múlaþings

170. fundur 05. október 2026 kl. 09:00 - 12:05 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Herdís Magna Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Björg Eyþórsdóttir aðalmaður
  • Guðgeir Einarsson aðalmaður
  • Jóhann Hjalti Þorsteinsson aðalmaður
  • Guðný Lára Guðrúnardóttir aðalmaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson áheyrnarfulltrúi
  • Berglind Sveinsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu
  • Anna Alexandersdóttir sviðsstjóri velferðar
  • Stefanía Malen Stefánsdóttir grunnskólafulltrúi
  • Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldusviði
Fundargerð ritaði: Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri velferðar á fjölskyldusviði
Áheyrnarfulltrúar grunnskóla Þórunn Hrund Óladóttir, Karen Sveinsdóttir og Agla Þorsteinsdóttir sátu liði 1-5.

Áheyrnarfulltrúar leikskóla Hugrún Malmquist Jónsdóttir, Rósa Dóra Sigurðardóttir og Ása Karen Hannibalsdóttir sátu liði 5-7.

Áheyrnarfulltrúi tónlistarskóla Sóley Þrastardóttir sat lið 5.

Viðar Jónsson skólastjóri Egilsstaðaskóla, Þorbjörg Sandholt skólastjóri Djúpavogsskóla, Þórunn Hrund Óladóttir, skólastjóri Seyðisfjarðarskóla, Ásgrímur Ingi Arngrímsson, skólastjóri Brúarásskóla og Margrét Dögg Guðgeirsdóttir, skólastjóri Fellaskóla, fylgdu eftir sínum málum í lið 2.

Þorbjörg Sandholt, skólastjóri Djúpavogsskóla fylgdi eftir sínu máli í lið 1. Hugrún Hjálmarsdóttir, sviðsstjóri framkvæmda, mætti á fundinn í lið 5.

1.Skólaráð Djúpavogsskóla 2026-2027

Málsnúmer 202609085Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar fundargerðir skólaráðs Djúpavogsskóla dagsettar 4. september og 29. september 2026. Þorbjörg Sandholt, skólastjóri Djúpavogsskóla, mætti á fundinn undir þessum lið og kynnti fundargerðirnar.
Lagt fram til kynningar.

2.Sjálfsmatsskýrslur grunnskóla 2026

Málsnúmer 202609218Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar sjálfsmatsskýrslur grunnskóla Múlaþings vegna skólaársins 2025-2026. Skólastjórar grunnskóla í Múlaþingi mættu á fundinn undir þessum lið og kynntu sjálfsmatsskýrslur sinna skóla.
Fjölskylduráð þakkar skólastjórum fyrir kynninguna á sjálfsmatsskýrslunum og lýsir ánægju með þann metnað til umbóta sem þar kemur fram. Skýrslurnar eru lagðar fram til kynningar.

3.Frumvarp til laga um breytingu á lög. grunnskóla 91_2008 (símar og snjalltæki)

Málsnúmer 202510025Vakta málsnúmer

Fyrir liggur reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskólum og á frístundaheimilum, sem tók gildi 27. ágúst 2026.
Fjölskylduráð fagnar setningu reglugerðarinnar og þeim skýra ramma sem hún setur um notkun síma og snjalltækja í skólastarfi. Grunnskólar Múlaþings hafa þegar tekið skýr skref í þessa átt og er símafrí á skólatíma.

Lagt fram til kynningar.

4.Tölustafir innleiddir í stað bókstafa í grunnskólum

Málsnúmer 202608069Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að bréfi til mennta- og barnamálaráðherra vegna fyrirhugaðra breytinga á námsmati í grunnskólum og innleiðingar þeirra.
Fjölskylduráð Múlaþings gerir athugasemdir við þann skamma fyrirvara og það vinnulag sem viðhaft hefur verið við undirbúning og innleiðingu breytinga á námsmati í grunnskólum. Ráðið telur mikilvægt að breytingar af þessu tagi byggist á faglegum undirbúningi, raunverulegu samráði við skólasamfélagið og nægum fyrirsjáanleika fyrir skóla. Fjölskylduráð samþykkir framlagt bréf til mennta- og barnamálaráðherra og felur sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu að koma því á framfæri við ráðherra.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Fjárfestingaráætlun Múlaþings

Málsnúmer 202508196Vakta málsnúmer

Hugrún Hjálmarsdóttir, sviðsstjóri framkvæmda, mætti á fundinn undir þessum lið og fór yfir þann hluta fjárfestingaáætlunar sveitarfélagsins sem heyrir undir fjölskylduráð. Fjárfestingaráætlun er endurskoðuð árlega.
Fjölskylduráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagða forgangsröðun fjárfestinga sem heyra undir ráðið. Jafnframt hyggst ráðið vinna frekari greiningu til að styrkja grundvöll fyrir framtíðarforgangsröðun áður en næsta endurskoðun fjárfestingaáætlunar sveitarfélagsins fer fram árið 2027.

Samþykkt með sex atkvæðum. Einn (JHÞ) sat hjá.

6.Erindi til fjölskylduráðs frá rekstrarstjórn HSA

Málsnúmer 202609148Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá rekstrarstjórn Heilbrigðisstofnunar Austurlands á Egilsstöðum, dagsett 17. september 2026, þar sem óskað er eftir að fjölskylduráð Múlaþings taki til skoðunar hvort veita megi tímabundinn forgang að leikskólavist fyrir börn heilbrigðisstarfsfólks vegna manneklu í heilbrigðisþjónustu.
Í upphafi máls vakti Guðgeir Einarsson (GE) athygli á mögulegu vanhæfi sínu undir málsliðnum og gerði grein fyrir því. Formaður (JB) opnaði mælendaskrá og bar upp tillögu til afgreiðslu og var vanhæfi GE samþykkt samhljóða. Vék GE af fundi við umræðu og afgreiðslu máls.

Fjölskylduráð tekur undir áhyggjur Heilbrigðisstofnunar Austurlands af manneklu í heilbrigðisþjónustu og leggur áherslu á mikilvægi öflugrar heilbrigðisþjónustu í samfélaginu.
Fjölskylduráð telur að jafnræði skuli vera meginreglan við úthlutun leikskólaplássa og að aðeins veigamikil rök og brýnar aðstæður geti réttlætt frávik frá þeirri reglu. Að mati ráðsins hafa ekki verið færð nægjanleg rök fyrir því að slíkar aðstæður séu nú fyrir hendi. Áðstæðurnar sem nú eru innan leikskólanna eru tímabundnar og unnið er ötullega að því að manna leikskóla á Egilsstöðum með það að markmiði að hægt verði að bjóða öllum börnum leikskólavist. Ráðið hvetur áhugasama til að kynna sér laus störf hjá sveitarfélaginu og möguleika á að gerast dagforeldrar.

Með hliðsjón af framangreindu sér fjölskylduráð sér ekki fært að verða við erindinu að þessu sinni.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Starfsumhverfi leikskóla

Málsnúmer 202602258Vakta málsnúmer

Fyrir liggja tillögur starfshóps um skipulag og starfsumhverfi leikskóla í Múlaþingi. Hlutverk starfshópsins var að fara yfir skipulag og starfsumhverfi leikskólanna og leggja fram tillögur að úrbótum með þarfir barna, starfsfólks og foreldra að leiðarljósi. Málið hefur áður verið til umfjöllunar í fjölskylduráði.
Fjölskylduráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögur starfshóps um skipulag og starfsumhverfi leikskóla í Múlaþingi með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum og vísar þeim til sveitarstjórnar til samþykktar. Ráðið leggur til að breytingarnar taki gildi frá og með 1. janúar 2027. Ráðið telur mikilvægt að fylgst verði með áhrifum breytinganna og að þær verði metnar að ákveðnum tíma liðnum, með það að markmiði að sjá hvernig þær reynast í framkvæmd og hvort tilefni sé til frekari breytinga.

Ráðið þakkar starfshópnum fyrir vandaða og umfangsmikla vinnu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Skýrsla sviðsstjóra fjölskyldusviðs

Málsnúmer 202512222Vakta málsnúmer

Fyrir liggur skýrsla sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu.
Máli frestað.

Fundi slitið - kl. 12:05.

Getum við bætt efni þessarar síðu?