Fara í efni

Fjölskylduráð Múlaþings

167. fundur 14. september 2026 kl. 09:00 - 12:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Herdís Magna Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Guðný Lára Guðrúnardóttir aðalmaður
  • Björg Eyþórsdóttir aðalmaður
  • Guðgeir Einarsson aðalmaður
  • Urður Arna Ómarsdóttir varamaður
  • Berglind Sveinsdóttir varamaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir varafulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu
  • Anna Alexandersdóttir sviðsstjóri velferðar
  • Stefanía Malen Stefánsdóttir grunnskólafulltrúi
  • Marta Wium Hermannsdóttir leikskólafulltrúi
  • Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldusviði
  • Ingvar Rafn Stefánsson sviðsstjóri fjármála
Fundargerð ritaði: Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri velferðar á fjölskyldusviði
Áheyrnarfulltrúar leikskóla Hugrún Malmquist Jónsdóttir, Rósa Dóra Sigurðardóttir og Ása Karen Hannibalsdóttir sátu liði 1 - 3. Áheyrnarfulltrúi tónlistarskóla Sóley Þrastardóttir, sat lið 3. Áheyrnarfulltrúar grunnskóla Þórunn Hrund Óladóttir, Karen Sveinsdóttir og Agla Þorsteinsdóttir sátu liði 3-8.

1.Starfsumhverfi leikskóla

Málsnúmer 202602258Vakta málsnúmer

Fyrir liggja umsagnir frá ýmsum hagaðilum vegna tillagna um breytingar á skipulagi og starfsumhverfi leikskóla í Múlaþingi. Jafnframt liggur fyrir samantekt á helstu sjónarmiðum og ábendingum sem fram koma í umsögnunum, ásamt tillögum að úrbótum.
Fjölskylduráð þakkar öllum þeim hagaðilum sem sendu inn umsagnir fyrir mikilvægt framlag til umræðunnar. Umsagnirnar hafa verið rýndar og tillögur mótaðar um breytingar á skipulagi og starfsumhverfi leikskóla í Múlaþingi. Tillögurnar voru kynntar á fundinum og er málið áfram í vinnslu.

2.Mannauðsmál í leikskólum 2026-2027

Málsnúmer 202608071Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað þar sem gerð er grein fyrir stöðu ráðningarmála í Bjarkatúni, Leikskóladeild Seyðisfjarðarskóla og Tjarnarskógi.
Ráðningarferli miðar áfram og auglýsingar eru enn virkar. Foreldrafundur er fyrirhugaður til að upplýsa um stöðu mála. Fjölskylduráð lýsir yfir áhyggjum af því að ekki hafi enn tekist að ljúka mönnun í leikskólunum og leggur áherslu á mikilvægi þess að ráðið verði úr stöðunni sem fyrst. Málið er áfram í vinnslu.

3.Fjármál fjölskyldusviðs

Málsnúmer 202609086Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjármála fór yfir rekstur fjölskyldusviðs á árinu 2026 og kynnti helstu forsendur og þróun rekstrar.
Fjölskylduráð þakkar sviðsstjóra fjármála fyrir upplýsandi kynningu.

4.Kynning á starfsemi fjölskyldusviðs

Málsnúmer 202606038Vakta málsnúmer

Fyrir liggur að kynna verkefnið Heillaspor en Miðstöð menntunar og skólaþjónustu stendur að þróun og innleiðingu Heillaspora hér á landi. Heillaspor er heildræn nálgun sem styður við velferð, öryggi og virka þátttöku barna í inngildandi skóla- og frístundastarfi.
Máli er frestað.

5.PISA 2025

Málsnúmer 202609089Vakta málsnúmer

Fyrir liggja niðurstöður PISA könnunarinnar fyir árið 2025 sem er alþjóðleg könnun á vegum OECD sem metur hæfni 15 ára nemenda í lesskilningi, stærðfræðilæsi og læsi á náttúruvísindi.
Fjölskylduráð lýsir áhyggjum af þeirri þróun sem niðurstöður PISA sýna varðandi stöðu nemenda og telur mikilvægt að brugðist verði markvisst við. Jafnframt vill ráðið halda á lofti þeim jákvæðu þáttum sem fram koma í niðurstöðunum og því öfluga starfi sem unnið er í skólum sveitarfélagsins.

Ráðið leggur áherslu á að niðurstöðurnar verði nýttar til áframhaldandi umbóta og stuðningi við nemendur og starfsfólk. Málið verður áfram til umfjöllunar hjá fjölskylduráði.

6.Tölustafir innleiddir í stað bókstafa í grunnskólum

Málsnúmer 202608069Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að bréfi til mennta- og barnamálaráðherra vegna fyrirhugaðra breytinga á námsmati í grunnskólum og innleiðingar þeirra.
Máli er frestað.

7.Frumvarp til laga um breytingu á lög. grunnskóla 91_2008 (símar og snjalltæki)

Málsnúmer 202510025Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskólum og á frístundaheimilum, sem tók gildi 27. ágúst 2026.
Máli er frestað.

8.Starfamessa Austurlands 2026

Málsnúmer 202602235Vakta málsnúmer

Kynnt var Starfamessa Austurlands sem haldin verður í Neskaupstað 24. september 2026. Starfamessan er ætluð ungmennum á aldrinum 15-18 ára og gefur þeim tækifæri til að kynna sér fjölbreytt náms- og starfstækifæri. Viðburðurinn fer fram á skólatíma og er samstarfsverkefni grunn- og framhaldsskóla á Austurlandi, Austurbrúar og Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA).
Fjölskylduráð fagnar framtakinu og telur Starfamessu Austurlands mikilvægan vettvang fyrir ungmenni til að kynnast fjölbreyttum náms- og starfstækifærum á Austurlandi. Ráðið fagnar jafnframt því samstarfi sem að viðburðinum stendur og óskar þeim góðs gengis.

9.Skólaráð Djúpavogsskóla 2026-2027

Málsnúmer 202609085Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð skólaráðs Djúpavogsskóla, dagsett 4. september 2026.
Máli er frestað.

10.Framtíðaruppbygging Íþróttamiðstöðvar á Egilsstöðum

Málsnúmer 202511028Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá aðalstjórn Íþróttafélagsins Hattar, dags. 25. ágúst 2026, vegna þarfagreiningar og frumhönnunar fjölnota knattspyrnu- og íþróttamannvirkis á Egilsstöðum.
Máli er frestað.

11.Skýrsla sviðsstjóra fjölskyldusviðs

Málsnúmer 202512222Vakta málsnúmer

Fyrir liggur skýrsla sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu.
Máli er frestað.

Fundi slitið - kl. 12:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?