Fara í efni

Mannauðsmál í leikskólum 2026-2027

Málsnúmer 202608071

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Múlaþings - 164. fundur - 17.08.2026

Við upphaf skólaárs er hér lagt fram yfirlit yfir stöðu mönnunar í leikskólum Múlaþings. Gerð er grein fyrir stöðu ráðninga, lausum störfum og helstu áskorunum sem tengjast mönnun við upphaf skólaárs.
Sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu kynnti stöðu ráðninga í leikskólum Múlaþings. Gengið hefur nokkuð vel að ráða í stöður leikskólanna. Staðan er þó erfið í Tjarnarskógi þar sem ekki hefur tekist að tryggja nægilega mönnun og því ekki hægt að hefja aðlögun yngsta hópsins að svo stöddu.

Málið verður tekið fyrir að nýju.

Fjölskylduráð Múlaþings - 167. fundur - 14.09.2026

Fyrir liggur minnisblað þar sem gerð er grein fyrir stöðu ráðningarmála í Bjarkatúni, Leikskóladeild Seyðisfjarðarskóla og Tjarnarskógi.
Ráðningarferli miðar áfram og auglýsingar eru enn virkar. Foreldrafundur er fyrirhugaður til að upplýsa um stöðu mála. Fjölskylduráð lýsir yfir áhyggjum af því að ekki hafi enn tekist að ljúka mönnun í leikskólunum og leggur áherslu á mikilvægi þess að ráðið verði úr stöðunni sem fyrst. Málið er áfram í vinnslu.

Fjölskylduráð Múlaþings - 168. fundur - 21.09.2026

Fyrir liggja til samþykktar tillögur um tímabundnar breytingar á daggæsluframlagi Múlaþings.
Í upphafi máls vakti Guðgeir Einarsson (GE) athygli á mögulegu vanhæfi sínu undir málsliðnum og gerði grein fyrir því. Formaður (JB) opnaði mælendaskrá og bar upp tillögu til afgreiðslu og var vanhæfi GE samþykkt samhljóða. Einnig vakti Guðný Lára Guðrúnardóttir (GLG) athygli á vanhæfi sínu sem var samþykkt samhljóða. Véku GE og GLG af fundi við umræðu og afgreiðslu máls.

Fjölskylduráð lýsir yfir áhyggjum af þeirri erfiðu stöðu sem uppi er í leikskólanum Tjarnarskógi vegna manneklu. Staðan hefur veruleg áhrif á þær fjölskyldur sem bíða eftir að börn þeirra geti hafið leikskóladvöl og hefur jafnframt áhrif á atvinnulíf í sveitarfélaginu.

Fjölskylduráð hefur fjallað um eftirfarandi ráðstafanir sem lagðar eru til vegna stöðunnar:

Daggæsluframlag verði tímabundið hækkað úr 52.153 kr. í 104.500 kr. á mánuði frá 1. ágúst 2026. Hækkunin taki til allra foreldra sem uppfylla skilyrði reglna Múlaþings um daggæsluframlag, óháð því hvort barni hafi þegar verið úthlutað leikskólaplássi og gildi á meðan skilyrði fyrir greiðslu daggæsluframlags eru uppfyllt, þó ekki lengur en til 31. desember 2026. Veitt verði tímabundin undanþága frá reglum Múlaþings um daggæsluframlag þannig að foreldrar sem uppfylla skilyrði reglnanna geti sótt um daggæsluframlag afturvirkt frá 1. ágúst 2026.

Ráðið felur starfsmanni að hefja vinnu við heildarendurskoðun á daggæsluframlagi Múlaþings og vinna jafnframt drög að skýrum ferlum um upplýsingagjöf til foreldra tilvonandi leikskólabarna.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?