Fara í efni

Sveitarstjórn Múlaþings

65. fundur 11. febrúar 2026 kl. 14:00 - 16:45 í fundarsal sveitarstjórnar, Lyngási 12 Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir forseti
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir aðalmaður
  • Hildur Þórisdóttir aðalmaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson aðalmaður
  • Ívar Karl Hafliðason aðalmaður
  • Vilhjálmur Jónsson aðalmaður
  • Eyþór Stefánsson aðalmaður
  • Einar Freyr Guðmundsson aðalmaður
  • Þröstur Jónsson aðalmaður
  • Björg Eyþórsdóttir aðalmaður
  • Pétur Heimisson varamaður
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Hrund Erla Guðmundsdóttir starfsmaður tæknisviðs
  • Óðinn Gunnar Óðinsson sviðsstjóri stjórnsýslu
Fundargerð ritaði: Óðinn Gunnar Óðinsson sviðsstjóri stjórnsýslu
Hildur Þórisdóttir mætti á fundinn kl. 14.10.
Eyþór Stefánsson vék af fundi milli kl. 16.05 og 16.15.

1.Húsnæðisáætlun Múlaþings 2026

Málsnúmer 202510065Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun frá fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs, dagsett 2. febrúar 2026, þar sem samþykkt er endurskoðuð húsnæðisáætlun Múlaþings til næstu 10 ára og henni vísað til staðfestingar hjá sveitarstjórn.
Til máls tók: Þröstur Jónsson.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi endurskoðaða húsnæðisáætlun til næstu 10 ára. Framkvæmda- og umhverfismálastjóra falið að sjá til þess að hún verði birt á heimasíðu sveitarfélagsins og kynnt þar til bærum aðilum.

Samþykkt samhljóða með 10 atkvæðum.

2.Gjaldskrár 2026

Málsnúmer 202508030Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun umhverfis- og framkvæmdaráðs, dagsett 19. janúar 2026, þar sem samþykktar eru breytingar á gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs í Múlaþingi fyrir árið 2026.
Til máls tók: Jónína Brynjólfsdóttir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs í Múlaþingi fyrir árið 2026.

Samþykkt samhljóða með 10 atkvæðum.

3.Reglur fyrir leigjendur íbúðarhúsnæðis í eigu sveitarfélagsins

Málsnúmer 202511149Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun frá 173. fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs, dagsett 2. febrúar 2026, þar sem fyrirliggjandi drögum að reglum fyrir leigjendur í leiguhúsnæði í eigu sveitarfélagsins Múlaþings er vísað til sveitarstjórnar til samþykktar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi reglur Múlaþings vegna leiguíbúða.

Samþykkt samhljóða með 10 atkvæðum.

4.Umsagnarbeiðni um Samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026 til 2030

Málsnúmer 202601146Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar umsögn Múlaþings um Samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026 til 2030, en umsögninni verður skilað til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis 9. febrúar 2026.
Til máls tóku: Jónína Brynjólfsdóttir, Pétur Heimisson, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Ívar Karl Hafliðason, Eyþór Stefánsson, Þröstur Jónsson, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Hildur Þórisdóttir, Einar Freyr Guðmundsson, Vilhjálmur Jónsson, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Ívar Karl Hafliðason, Þröstur Jónsson sem beindi fyrirspurn til Berglindar Hörpu, Berglind Harpa Svavarsdóttir sem svaraði Þresti, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Þröstur Jónsson sem veitti andsvar.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Múlaþing telur að tillaga að samgönguáætlun, eins og hún liggur fyrir, endurspegli ekki með fullnægjandi hætti stöðu Austurlands né það þjóðhagslega hlutverk sem landshlutinn gegnir. Í áætluninni skortir stórar framkvæmdir á Austurlandi á fyrsta framkvæmdatímabili, þrátt fyrir að svæðið standi undir verulegri verðmætasköpun, alþjóðlegum samgöngugáttum og mikilvægum öryggisinnviðum.
Sveitarfélagið leggur sérstaka áherslu á eftirfarandi atriði:
- Að Fjarðarheiðargöng verði sett aftur í þann forgang sem þau höfðu í gildandi samgönguáætlun, tekin inn á fyrsta framkvæmdatímabil og boðin út án frekari tafa, enda eru þau fullhönnuð, tilbúin til útboðs og lykilforsenda öryggis, þjónustu og hringtengingar Austurlands.
- Að Axarvegi verði flýtt og lögð fram raunhæf tímasetning framkvæmda, endurmat á PPP-fyrirkomulagi og tafarlaus hækkun þjónustustigs vegarins, þar sem vegurinn gegnir lykilhlutverki í innri tengingum Múlaþings og styttir leiðir innan sveitarfélagsins og milli landshluta.
- Að fyrirhuguð lækkun á kostnaðarhlutdeild ríkisins í hafnarframkvæmdum verði endurskoðuð, með hliðsjón af þjóðhagslegu hlutverki hafna á Austurlandi, einkum Seyðisfjarðarhafnar sem einu alþjóðlegu ferjuhafnar landsins, og þeirri tekjuþróun sem blasir við höfnum Múlaþings á næstu árum.

Múlaþing telur brýnt að samgönguáætlun verði aftur það faglega og fyrirsjáanlega stjórntæki sem sveitarfélög og atvinnulíf geta treyst til lengri tíma. Endurteknar breytingar á forgangsröðun samgönguáætlunar, án skýrra og gagnsærra raka, grafa undan trausti og torvelda markvissa uppbyggingu í landshlutum utan höfuðborgarsvæðisins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Heimastjórn Borgarfjarðar - 66

Málsnúmer 2601020FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Borgarfjarðar dagsett 5. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

6.Heimastjórn Djúpavogs - 68

Málsnúmer 2601016FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Djúpavogs dagsett 5. febrúar 2026.
Til máls tóku: Pétur Heimisson um lið 4, Þröstur Jónsson um lið 4, Ívar Karl Hafliðason sem kom til svara vegna liðar 4.

Lagt fram til kynningar.

7.Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 66

Málsnúmer 2601023FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Fljótsdalshéraðs dagsett 5. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

8.Heimastjórn Seyðisfjarðar - 65

Málsnúmer 2601014FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Seyðisfjarðar dagsett 5. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

9.Byggðaráð Múlaþings - 176

Málsnúmer 2601006FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs dagsett 20. janúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

10.Byggðaráð Múlaþings - 177

Málsnúmer 2601012FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs dagsett 27. janúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

11.Byggðaráð Múlaþings - 178

Málsnúmer 2601022FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs dagsett 3. febrúar 2026.
Til máls tóku: Helgi Hlynur Ásgrímsson um lið 10, Dagmar Ýr Stefánsdóttir sem svarði Helga Hlyn vegna liðar 10, Pétur Heimisson vegna liðar 10, Þröstur Jónsson vegna liðar 10, Helgi Hlynur Ásgrímsson vegna liðar 10.

Lagt fram til kynningar.

12.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 171

Málsnúmer 2601002FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs dagsett 12. janúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

13.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 172

Málsnúmer 2601010FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs dagsett 19. janúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

14.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 173

Málsnúmer 2601013FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs dagsett 2. febrúar 2026.
Til máls tók: Pétur Heimisson vegna liðar 6 og 7.

Lagt fram til kynningar.

15.Fjölskylduráð Múlaþings - 151

Málsnúmer 2601017FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð fjölskylduráðs dagsett 27. janúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

16.Ungmennaráð Múlaþings - 45

Málsnúmer 2601008FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð ungmennaráðs dagsett 29. janúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

17.Skýrsla sveitarstjóra

Málsnúmer 202010421Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri fór yfir og kynnti helstu mál sem hann hefur unnið að undanförnu og þau verkefni sem fram undan eru.

Fundi slitið - kl. 16:45.

Getum við bætt efni þessarar síðu?