Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

149. fundur 05. maí 2025 kl. 08:30 - 11:30 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Þórhallur Borgarson formaður
  • Björgvin Stefán Pétursson aðalmaður
  • Ásdís Hafrún Benediktsdóttir aðalmaður
  • Eiður Gísli Guðmundsson aðalmaður
  • Þórunn Hrund Óladóttir aðalmaður
  • Pétur Heimisson aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
  • Björg Eyþórsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir framkvæmda- og umhverfismálastjóri
Fundargerð ritaði: Hugrún Hjálmarsdóttir framkvæmda- og umhverfismálastjóri

1.Vegagerðin, staða framkvæmda í Múlaþingi

Málsnúmer 202303039Vakta málsnúmer

Svæðisstjóri austursvæðis kynnir fyrir ráðinu fyrirhugaðar öryggisaðgerðir Vegagerðarinnar í Múlaþingi.
Lagt fram til kynningar.

2.Hreinsunarátak 2025

Málsnúmer 202504123Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri umhverfismála kynnir drög að hreinsunarátaki 2025.
Lagt fram til kynningar.

3.Hafnarreglugerð Múlaþings

Málsnúmer 202307014Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggja drög að hafnarreglugerð fyrir hafnir Múlaþings til afgreiðslu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir drög að hafnarreglugerð fyrir hafnir Múlaþings og vísar þeim til sveitarstjórnar til samþykktar.

Samþykkt samhljóða.

4.Umsókn um byggingarleyfi, Kaupvangur 23B, 700,

Málsnúmer 202306175Vakta málsnúmer

Gert er ráð fyrir 7m breiðum stút inn á lóðina frá Kaupvangi.
Jafnframt er ósk um stækkun á lóð.

Skipulagsfulltrúi situr fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir stækkun á lóð og leggur til að fallið verði frá grenndarkynningu hússins á þeirri forsendu að áður hafi verið samþykkt byggingarleyfi fyrir hús á lóðinni. Vegna umferðaröryggis verði aðeins leyfð innkeyrsla af Kaupvangi inn á lóðina en ekki útkeyrsla.

Samþykkt samhljóða.

5.Aðalskipulagsbreyting, Gilsárvirkjun

Málsnúmer 202308090Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur vinnslutillaga fyrir aðalskipulagsbreytingu fyrir Gilsárvirkjun frá Orkusölunni.

Skipulagsfulltrúi situr fundinn undir þessum lið.
Í upphafi fundar vakti Þórhallur Borgarson athygli á vanhæfi sínu og var það samþykkt samhljóða.
Ásdís Hafrún Benediktsdóttir vakti líka athygli á vanhæfi sínu og var það samþykkt samhljóða.
Þau viku af fundi undir þessum lið.

Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi skipulagstillögu og leggur til við sveitarstjórn að málsmeðferð verði í samræmi við 1. málsgrein 36. greinar skipulagslaga nr.123/2010.
Verði tillagan samþykkt í sveitarstjórn fer hún í kynningu og til umsagnar hjá umsagnaraðilum.

Samþykkt samhljóða.

Fundi slitið - kl. 11:30.

Getum við bætt efni þessarar síðu?