Fara í efni

Refa- og minkaveiðar í Múlaþingi

Málsnúmer 202603158

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 178. fundur - 23.03.2026

Í upphafi dagskrárliðar nr 10. vakti Eiður Gísli Guðmundsson (EGG) máls á vanhæfi sínu undir málsliðnum og bar JB upp tillögu til atkvæðagreiðslu. Vanhæfið var samþykkt samhljóða og vék EGG af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Framlögð kynning á fyrirkomulagi refa- og minkaveiða í Múlaþingi til umræðu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Verkefnastjóri umhverfismála fór yfir fyrirkomulag refa- og minkaveiða í Múlaþingi og tillögur að breytingum á þeim. Umhverfis- og framkvæmdaráð felur verkefnastjóra umhverfismála að vinna málið áfram og leggja fyrir ráðið að nýju.

Samþykkt samhljóða.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 181. fundur - 27.04.2026

Framlagt minnisblað um refa- og minkaveiði í Múlaþingi til umræðu.
Frestað.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 183. fundur - 18.05.2026

Stefán Aspar Stefánsson, verkefnastjóri umhverfismála, situr fundinn undir þessum lið.

Í upphafi máls vakti Eiður Gísli Guðmundsson (EGG) athygli á mögulegu vanhæfi sínu undir málslið 2 og gerði grein fyrir því. Fundarstjóri bar málið upp til atkvæðagreiðslu og var það samþykkt samhljóða. EGG vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Framlögð kynning á fyrirkomulagi refa- og minkaveiða í Múlaþingi ásamt drögum að nýjum samningum vegna refa- og minkaveiða til umræðu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi drög að samningum og vísar þeim til endanlegrar afgreiðslu hjá sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 185. fundur - 15.06.2026

Í upphafi máls vakti ÞBJ athygli á mögulegu vanhæfi sínu, sem landeigandi á svæði 9., undir þessum lið. Tillagan var borin upp til atkvæða og felld með öllum atkvæðum.

Nýlega auglýsti Múlaþing eftir refa- og minkaveiðimönnum á völdum veiðisvæðum í sveitarfélaginu. Framlagt er til kynningar minnisblað um þær umsóknir sem bárust.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar ráðningum refa- og minkaveiðimanna til samþykktar í sveitarstjórn í samræmi við framlagt minnisblað og umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Múlaþings - 70. fundur - 01.07.2026

Fyrir liggja samningar um refa- og minkaveiði í Múlaþingi sem umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkti á 183. fundi sínum að vísa til staðfestingar hjá sveitarstjórn.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi samninga um refa- og minkaveiði í Múlaþingi. Sveitarstjórn felur verkefnastjóra umhverfismála að ganga frá samningunum fyrir hönd sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?