Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

197. fundur 26. október 2026 kl. 13:00 - 14:57 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir formaður
  • Björg Eyþórsdóttir varamaður
  • Guðmundur Björnsson Hafþórsson aðalmaður
  • Þórhallur Borgarsson aðalmaður
  • Þórir Stefánsson aðalmaður
  • Glúmur Björnsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Verkefnastjóri skipulagsmála, Sóley Valdimarsdóttir, situr fundinn undir lið 1.

Verkefnastjóri umhverfismála, Stefán Aspar Stefánsson, situr fundinn undir lið 5.

1.Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045

Málsnúmer 202208083Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir liggur erindi frá Minjastofnun Íslands, dagsett 22. október 2026, þar sem gerð er grein fyrir afstöðu stofnunarinnar til fyrirhugaðs samkomulags við Múlaþing um skráningu fornleifa, húsa og mannvirkja í tengslum við Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045. Í erindinu kemur fram að samkomulag samkvæmt undanþáguheimild laga um menningarminjar skuli fela í sér tímasetta áætlun um framvindu skráningarstarfs á gildistíma aðalskipulagsins.

Jafnframt liggja fyrir uppfærð drög að samkomulagi þar sem gert er ráð fyrir að skráning menningarminja verði unnin á skipulagstíma aðalskipulags, 2025-2045.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð telur mikilvægt að samkomulagið tryggi framvindu skráningar á gildistíma aðalskipulagsins án þess að sveitarfélagið sé bundið af of nákvæmri tímaáætlun til margra ára.
Ráðið leggur áherslu á að forgangsröðun skráningarverkefna taki mið af raunverulegri þróun byggðar, atvinnuuppbyggingu, fjárhagslegum forsendum og þörf fyrir skipulagsvinnu á hverjum tíma, þannig að skráning valdi ekki óþarfa töfum á uppbyggingu og framkvæmdum, enda verði lögbundnum kröfum um skráningu fullnægt.
Jafnframt leggur ráðið áherslu á að samkomulagið feli ekki í sér skuldbindingu um stofnun nýrra verndarsvæða eða auknar takmarkanir á landnýtingu umfram lögbundnar kröfur. Við framkvæmd þess skal gæta meðalhófs og virða eignarréttindi og lögmæta hagsmuni landeigenda.

Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlögð drög að samkomulagi með þeim breytingum sem kunna að verða gerðar í samráði við Minjastofnun Íslands. Verulegar efnislegar breytingar skulu lagðar fyrir ráðið áður en samkomulagið er undirritað. Formanni ráðsins er falið að undirrita endanlegt samkomulag fyrir hönd sveitarfélagsins.

Samþykkt með 6 atkvæðum, Glúmur Björnsson (V-lista) situr hjá.

2.Fjárhagsáætlun Múlaþings 2027 til 2030

Málsnúmer 202606136Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggja drög að fjárhagsáætlun umhverfis- og framkvæmdasviðs.
Fyrir ráðinu liggur að samþykkja að fjárhagsáætlun 2027-2030.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi fjárhagsáætlun og vísar henni til fyrri umræðu hjá sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

3.Fjárfestingaráætlun 2027

Málsnúmer 202610125Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri framkvæmdamála fer yfir drög að fjáfestingaráætlunar hjá umhverfis- og framkvæmdasviði. Fyrir ráðinu liggur að samþykkja fyrirliggjandi fjárfestingaráætlun.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi tíu ára fjárfestingaráætlun 2027-2036 fyrir Múlaþing og vísar henni til byggðaráðs til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

4.Ofanflóðavarnir undir Bjólfi á Seyðisfirði - verkhönnun

Málsnúmer 202012052Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri framkvæmda kynnir hönnun fjallahjólabrauta ofan Fjarðagarðs undir Bjólfi og drög að upplýsinga- og fræðsluskiltum sem fyrirhugað er að setja upp á svæðinu. Áætlað er að ein fjallahjólabraut og skiltin séu hluti mótvægisaðgerða vegna varnarmannvirkjanna.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur að taka afstöðu til lagningar á fjallahjólabraut og uppsetningar skilta á svæðinu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir gerð fjallahjólabrautarinnar samkvæmt fyrirliggjandi hönnun og uppsetningu á fyrirhuguðum skiltum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Umsagnarbeiðni um 202. mál, Loftslagslög

Málsnúmer 202610134Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri umhverfismála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur umsagnarbeiðni frá umhverfis- og samgöngunefnd, um 202. mál frá 158. löggjafarþingi 2026-2027, það er frumvarp til loftslagslaga.
Umsagnarfrestur er til og með 29. október nk. og skal umsögnum skilað í gegnum umsagnagátt Alþingis.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings lýsir áhyggjum af þeim auknu fjárhagslegu og stjórnsýslulegu skyldum sem frumvarp til nýrra loftslagslaga, 202. mál, kann að leggja á sveitarfélög.

Ráðið bendir sérstaklega á að auknar kröfur um mælingar, áhættumat, áætlanagerð og eftirfylgni geti kallað á aukinn mannafla, sérfræðiþjónustu og fjárfestingar. Slíkar kröfur geta reynst sérstaklega íþyngjandi fyrir landfræðilega víðfeðm sveitarfélög á borð við Múlaþing, þar sem innviðir og þjónusta ná yfir stórt og dreifbýlt svæði.

Ráðið tekur undir áhyggjur Sambands íslenskra sveitarfélaga af auknum kostnaði og telur brýnt að fram fari ítarlegt mat á fjárhagslegum áhrifum frumvarpsins á sveitarfélög.

Lögin varpa ábyrgð og skyldum á sveitarfélög en þeim fylgir enginn stuðningur eða hvatning. Slík breyting er ekki til þess fallin að ná árangri í málaflokknum.

Ráðið leggur áherslu á að nýjum lögbundnum verkefnum sveitarfélaga fylgi skýr fjármögnun og að kostnaður vegna aukinna skyldna verði ekki færður frá ríki til sveitarfélaga án viðeigandi fjárhagslegs stuðnings.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

6.Vatnasvæðanefnd 2024-2027

Málsnúmer 202610067Vakta málsnúmer

Lögð er fram til kynningar fundargerð Vatnasvæðanefndar, dagsett 7. október 2026, vegna endurskoðunar vatnaáætlunar 2028-2033.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:57.

Getum við bætt efni þessarar síðu?