Fara í efni

Ungmennaráð Múlaþings

49. fundur 03. september 2026 kl. 16:15 - 18:15 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Ágúst Bragi Daðason aðalmaður
  • Agla Eik Frostadóttir aðalmaður
  • Bergþóra Thea Birgisdóttir aðalmaður
  • Egill Freyr Ólafsson aðalmaður
  • Ína Berglind Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Jóhann Smári Kjartansson aðalmaður
  • Rakel Wium Ágústsdóttir varamaður
  • Árni Stefán Ólafsson varamaður
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Þórunn Ólafsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldusviði
Fundargerð ritaði: Þórunn Ólafsdóttir Verkefnastjóri á fjölskyldusviði

1.Ungmennaþing Barnaheilla á Egilsstöðum

Málsnúmer 202601073Vakta málsnúmer

Umræður um ungmennaþing Barnaheilla sem haldið var í Menntaskólanum á Egilsstöðum 24. mars sl.
Skýrsla Barnaheilla um niðurstöður þingsins kynnt ungmennaráði.

2.Ungmennaþing 2026

Málsnúmer 202601206Vakta málsnúmer

Farið yfir verklag og niðurstöður ungmennaþings 2026.
Farið yfir niðurstöður ungmennaþings og ákveðið að kynna þær fyrir sveitarstjórn á fundinum í október.
Niðurstöður þingsins benda til þess að auka mætti sýnileika ungmennaráðs verulega og er nýtt ungmennaráð hvatt til að fara í þá vinnu í samráði við starfsfólk. Sýnileiki á samfélagsmiðlum er dæmi um vettvang sem þyrfti að endurvekja, auk þess sem skólaheimsóknir væru góð leið til að kynna fulltrúa og starf ráðsins fyrir börnum og ungmennum í sveitarfélaginu.

3.Barnvænt sveitarfélag

Málsnúmer 202603227Vakta málsnúmer

Erindi frá UNICEF vegna Áhrifadaga ungmenna á Akureyri í október. Fulltrúum ungmennaráðs stendur til boða að taka þátt.
Ungmennaráð þiggur boð UNICEF um þátttöku á áhrifadögum. Lagt til að bæði núverandi ungmennaráð og nýtt ráð sendi fulltrúa. Egill Freyr býður sig fram fyrir hönd þessa ráðs og Árni Stefán og Agla Eik til vara.

4.Ungmennaráðstefnan UNGT FÓLK OG LÝÐRÆÐI 2026

Málsnúmer 202605100Vakta málsnúmer

Erindið kynnt ungmennaráði og fulltrúar hvött til að sækja um.

5.Samkomusalur í Valaskjálf

Málsnúmer 202607130Vakta málsnúmer

Ungmennaráð Múlaþings lýsir yfir miklum áhyggjum af hugsanlegum breytingum á samkomusalnum í Valaskjálf. Ráðið vill undirstrika mikilvægi húsnæðisins fyrir menningarlíf ungs fólks í sveitarfélaginu. Salurinn gegnir mikilvægu hlutverki fyrir samfélagið í Múlaþingi og á staðurinn stóran hlut í hjarta samfélagsins.

6.Erasmus ungmennaskipti í Finnlandi

Málsnúmer 202410215Vakta málsnúmer

Fulltrúar ungmennaráðs tóku þátt í ungmennaskiptum á vegum Erasmus í Finnlandi í ágúst sl.
Fulltrúar ungmennaráðs sem tóku þátt í ungmennaskiptunum deildu reynslu sinni af þátttöku í verkefninu. Ákveðið að segja stuttlega frá ungmennaskiptunum á fundi með sveitarstjórn í október.

7.Skýrsla verkefnastjóra

Málsnúmer 202601208Vakta málsnúmer

Fundurinn í dag var síðasti fundur þessa ungmennaráðs. Ráðið á þó enn eftir að funda með sveitarstjórn, en ekki tókst að finna tíma fyrir sameiginlegan fund í vor eins og hefð er fyrir. Því mun nýtt ungmennaráð, sem valið verður í september, auk starfandi ungmennaráðs funda sameiginlega með sveitarstjórn í október.

Fundi slitið - kl. 18:15.

Getum við bætt efni þessarar síðu?