Fara í efni

Heimastjórn Seyðisfjarðar

72. fundur 01. október 2026 kl. 13:00 - 17:25 á skrifstofu sveitarfélagsins, Seyðisfirði
Nefndarmenn
  • Ívar Karl Hafliðason varaformaður
  • Hildur Þórisdóttir aðalmaður
  • Margrét Guðjónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Inga Þorvaldsdóttir fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Inga Þorvaldsdóttir fulltrúi sveitarstjóra

1.Útgáfa á starfsleyfi Kaldvíkur hf. í Seyðisfirði

Málsnúmer 202609133Vakta málsnúmer

Í ljósi þess að gefið var út starfsleyfi til sjókvíaeldis í Seyðisfirði, fékk heimastjórn Seyðisfjarðar fulltrúa Kaldvíkur til fundar til þess að fara yfir næstu skref.
Heimastjórn Seyðisfjarðar þakkar Ólöfu Helgu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðsmála og Elís Hlyni Grétarssyni framkvæmdarstjóra vinnslu, fyrir samtalið. Stefna þau á að halda kynningu á starfseminni fyrir íbúa innan tíðar.


2.Bílskúr fyrir sjúkrabíl á Seyðisfirði.

Málsnúmer 202609050Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá starfsmönnum HSA dags.7.september 2026 er varðar bága aðstöðu sjúkrabílsins á Seyðisfirði. Elfa Rúnarsdóttir starfandi sjúkraflutningamaður og hjúkrunarfræðingur og Halla Dröfn Þorsteinsdóttir rekstrastjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
í ljósi þess að sjúkrabíll HSA á Seyðisfirði stendur utandyra árið um kring, skapast veruleg hætta sem getur m.a. hamlað aðgengi og seinkað viðbragði. Heimastjórn lýsir yfir áhyggjum af stöðunni og vísar erindinu til byggðaráðs.
Heimastjórn þakkar Elfu Rúnarsdóttur og Höllu Dröfn Þorsteinsdóttur fyrir komuna.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Málefni Skaftfells

Málsnúmer 202609186Vakta málsnúmer

Celia Harrison,forstöðumaður Skaftfells myndlistamiðstöðvar Austurlands hefur óskað eftir að fá að koma inn á fund heimastjórnar og ræða málefni Skaftfells. Undir þessum lið sátu Celia Harrison og Oddný Björk Daníelsdóttir sem situr í stjórn Skaftfells.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Heimastjón þakkar Celiu og Oddnýju fyrir komuna og telur mikilvægt að fá niðurstöðu í húsnæðismál Skaftfells sem fyrst. Starfsemin er mikilvæg fyrir austfirskt samfélag og vonar heimastjórn Seyðisfjarðar að þær tillögur sem lagt er upp með í erindinu treysti frekar rekstargrundvöll og framtíð Skaftfells. Starmanni falið að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Fjarskiptasamband í Múlaþingi

Málsnúmer 202607016Vakta málsnúmer

Til upplýsinga fyrir íbúa í Múlaþingi, eru lagðar fram til kynningar af vef Fjarskiptastofu eftirfarandi upplýsingar er varðar lokun 3G farsímasambands um allt land

https://www.fjarskiptastofa.is/fjarskiptastofa/fjarskiptainnvidir/upplysingar-fyrir-neytendur/2g-og-3g-utfosun/
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Seyðisfjarðar furðar sig á að Fjarskiptastofa hafi heimilað útfösun 2G og 3G við þessar aðstæður. Með þeirri ákvörðun varð Ísland fyrsta ríkið í Evrópu til að slökkva á þessum kerfum áður en tryggt hafði verið að nýrri kerfi tækju við. Þær aðstæður skapa samhliða óviðunandi hættuástand fyrir íbúa og ferðamenn.

Heimastjórn bendir á að markmið laga um fjarskipti sé að tryggja örugg, hagkvæm og skilvirk fjarskipti um land allt. Fjarskiptastofa ber einnig, í samstarfi við almannavarnir, lagaskyldu til að stuðla að öryggi fjarskiptainnviða og almannaöryggi.

Heimastjórn líkt og byggðaráð Múlaþings krefst þess að innviðaráðuneytið, Fjarskiptastofa og fjarskiptafyrirtækin geri sameiginlegt áhættumat á áhrifum skertrar fjarþjónustu á öryggi íbúa, ferðamanna og viðbragðsaðila. Ráðist verði tafarlaust í úrbætur þar sem þjónustan stenst ekki kröfur um örugg fjarskipti.

Á Seyðisfirði og í nágrenni hefur símasamband versnað eftir að slökkt var á 2G og 3G. Símasamband er slitrótt á veginum um Fjarðarheiði og beggja vegna fjarðar. Bendir heimastjórn íbúum á að ef þeir hafi upplifað skerðingu á sambandi eftir að 2G/3G voru aflaðgðir sendi inn tilkynningu á fjarskiptastofa.is

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Sólveigartorg Seyðisfirði

Málsnúmer 202609189Vakta málsnúmer

Hver er staða með viðhald og endurbætur á Sólveigartorgi. Sveinn Ágúst Þórsson verkstjóri Þjónustumiðstöðvar á Seyðisfirði situr fundinn undir þessum lið.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Heimastjórn Seyðisfjarðar vekur athygli á ástandi Sólveigartorgs í hjarta bæjarins. Sveinn Ágúst fór yfir fyrirkomulag viðhalds og áskoranir því tengdu.
Heimastjórn felur starfsmanni að koma áherslum heimastjórna til sviðsstjóra framkvæmda.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Íbúafundur heimastjórnar Seyðisfjarðar

Málsnúmer 202604002Vakta málsnúmer

Fyrir liggur að ákveða dagsetningu hausts íbúafunds heimastjórnar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Seyðisfjarðar felur formanni og starfsmanni að undirbúa íbúafund í Herðubreið sem áætlað er að halda fyrri hlutar nóvembermánaðar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Ályktun stjórnarfundar NAUST vegna sjókvíeldi í Seyðisfirði

Málsnúmer 202609233Vakta málsnúmer

Óskað er eftir að heimastjórn taki til umfjöllunar ályktun sem samþykkt var á stjórnarfundi HAUST 20.september 2026 vegna útgáfu rekstrarleyfis til Kaldvíkur á 10.000 tonna sjókvíeldi í Seyðisfirði.
Heimastjórn Seyðisfjarðar þakkar NAUST fyrir erindið en hefur í formlegu ferli veitt umsagnir um umsókn um sjókvíeldi í Seyðisfirði. Í ljósi þess að þegar hefur verið gefið út starfsleyfi, ítrekar heimastjórn mikilvægi þess að ítrustu kröfum um vöktun og eftirlit verði fylgt.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Ályktanir aðalfundar NAUST 23.ágúst 2026

Málsnúmer 202609215Vakta málsnúmer

Fyrir liggja ályktanir aðalfundar Náttúruverndarsamtaka Austurlands sem var haldinn 23. ágúst 2026.
Lagt fram til kynningar.

9.Skýrsla fulltrúa sveitarstjóra á Seyðisfirði

Málsnúmer 202601161Vakta málsnúmer

Sundhöll Seyðisfjarðar: Vegna viðhalds lokaði sundhöllin 24.sept sl. og verður lokuð til og með 15.október. Kerið verður málað ásamt öðru venjubundnu viðhaldi.

Frestur á málningarframkvæmdum við Gamla skólann: Vegna ýmissa atriða sem komið hafa upp þurfti að fresta fyrirhuguðum málningarframkvæmdum á Gamla skóla sem fara áttu fram fram núna í haust, til næsta vors. Ráðist verður í verkið um leið og aðstæður leyfa.

Stækkun Seyðisfjarðarskóla: Ákveðið var að hafna báðum tilboðum sem bárust í sumar í stækkun Seyðisfjarðarskóla þar sem þau fóru yfir kostnaðaráætlun sveitarfélagsins. Stefnt er á að bjóða verkið út að nýju fyrir árslok.

Landtenging Norrænu: Þann 9.sept síðastliðinn var gerð tilraun með landtenging Norrænu sem gaf góða raun og var unnið að smá lagfæringum í mánuðinum. Í gær miðvikudaginn 30.sept var svo landtenging Norrænu formlega tekin í notkun þegar sveitarstjórinn okkar hún Dagmar Ýr Stefánsdóttir klippti á borða af þessu tilefni. Þingmenn kjördæmissins sem og sveitarstjórn og aðrir starsmenn tengdir starfsemi Norrænu voru viðstaddir atburðinn.

Áður þurfti Norræna að hafa dísilvélar í gangi á meðan hún lá við bryggju. Er þetta ekki bara tæknileg framkvæmd heldur einnig mikilvægt umhverfisskref sem stuðlar að hreinna og betra umhverfi fyrir íbúa, gesti og starfsfólk á svæðinu.

Fundi slitið - kl. 17:25.

Getum við bætt efni þessarar síðu?