Um helgina er fyrsti í aðventu og af því tilefni verður hátíðleg dagskrá víða í Múlaþingi.
Jólasveinarnir hafa meira að segja verið orðaðir við tendrun jólatrjáa í kjörnum sveitarfélagsins.
Hér að neðan eru þó eingöngu taldir upp jólatengdir viðburðir og íbúar kvattir til að kynna sér á viðburðadagatali sveitarfélagsins hvað fleira er um að vera, enda af nógu að taka.
Þá eru viðburðahaldarar minntir á að nýta dagatalið og skrá viðburði sína í það. Hver og einn getur sett allar upplýsingar inn sjálfur og þá birtist viðburðurinn á heimasíðu Múlaþings.
Djúpivogur
Sunnudaginn 29. nóvember klukkan 17:00 verður kveikt á ljósunum á jólatrénu á Bjargstúni.
Öll hvött til að koma og njóta samverunnar.
Egilsstaðir
Nettó mun halda í þann sið að bjóða íbúum að njóta stundarinnar þegar ljósin verða tendruð á trénu fyrir utan verslunina klukkan 16:00 laugardaginn 28. nóvember.
Sunnudaginn 29. nóvember verður svo jólasamverustund í Tjarnargarðinum klukkan 16:30–17:30. Fjölmörg fyrirtæki hafa komið að því að skreyta trén í garðinum og gert hann að sannkölluðum Jólagarði. Lúðrasveitin ætlar að spila nokkur lög. Í boði verður útikósý með heitu kakói og varðeldi.
Seyðisfjörður
Á Seyðisfirði er búið að taka saman metnaðarfulla jóladagskrá sem má finna á síðunni hjá Herðubreið.
Sunnudaginn 29. nóvember verður til dæmis jólaganga Tækniminjasafnsins klukkan 16:00. Hist verður við kirkjuna og gengið að Angró þar sem sungin verða nokkur jólalög áður en haldið verður áfram í Vélsmiðjuna. Þegar komið er inn í hlýjuna verður hægt að gæða sér á heitu súkkulaði og fræðast um Jólaleik Tækniminjasafnsins.