29.04.2021
kl. 13:59
Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs auglýsir eftir fólki sem vann í Sláturhúsinu þegar það var starfrækt sem sláturhús og kjötvinnsla á árunum 1958 -2003 vegna myndlistarverkefnis. Auglýst er eftir öllum sem hafa áhuga á að deila frásögnum af Sláturhúsinu, hvort sem það vann þar í stuttan eða langan tíma.
Lesa
28.04.2021
kl. 14:00
Ársreikningur Múlaþings fyrir árið 2020 lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn Múlaþings þann 28. apríl 2021 samþykktur og áritaður af byggðaráði og sveitarstjóra. Samkvæmt sveitarstjórnalögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og er áætlað að síðari umræða fari fram miðvikudaginn 12. maí 2021.
Sveitarfélagið Múlaþing varð til þann 1. október 2020 með sameiningu sveitarfélaganna Fljótsdalshéraðs, Seyðisfjarðarkaupstaðar, Djúpavogshrepps og Borgarfjarðarhrepps.
Lesa
23.04.2021
kl. 08:24
Múlaþing auglýsir til leigu aðstöðu og rekstur á annars vegar tjaldsvæðinu á Borgarfirði Eystra og hins vegar á Seyðisfirði til ársloka 2021, með möguleika á framlengingu. Einum og sama aðilanum er heimilt að bjóða í leigu á aðstöðu og rekstur beggja tjaldsvæða.
Gert er ráð fyrir að leigutaki taki við aðstöðunni og sjái um allan daglegan rekstur svæðisins, innheimtu afnotagjalda og umhirðu, ásamt markaðssetningu þess.
Lesa
22.04.2021
kl. 01:00
Múlaþing óskar starfsfólki sínu, íbúum sveitarfélagsins og landsmönnum öllum gleðilegs sumars og þakkar kærlega fyrir samstarfið á viðburðaríkum vetri sem er að líða.
Lesa
21.04.2021
kl. 13:24
Mikið er um að vera á umhverfis- og framkvæmdasviði Múlaþings um þessar mundir og vill skipulagsfulltrúi vekja athygli á þeim fjölmörgum skipulagsverkefnum sem eru í kynningar- og auglýsingarferli.
Íbúar eru hvattir til að kynna sér málið og koma á framfæri athugasemdum ef einhverjar eru.
Lesa
21.04.2021
kl. 09:34
Bókasafn Djúpavogs verður opið í dag, miðvikudaginn 21.apríl frá klukkan 15:00 – 17:00.
Bókasafnsvörður.
Lesa
21.04.2021
kl. 08:27
Aðgerðastjórn bendir á mikilvægi þess að við gætum hvert og eitt að okkar persónubundnum smitvörnum og gefum þar hvergi eftir, jafnvel þó ástandið í fjórðungnum þyki gott. Blikur eru á lofti þegar litið er til smita um landamæri. Stjórnvöld hafa því boðað hertar reglur gagnvart þeim sem koma til landsins með það að markmiði að stemma stigu við fjölgun smita. Það mun takast.
Lesa
20.04.2021
kl. 14:34
Auglýst eftir efni. Bóndavarðan er bæjarblað Djúpavogs sem kemur út þrisvar á ári.
Lesa
20.04.2021
kl. 08:18
Miðvikudaginn 28. apríl verður dýralæknir í áhaldahúsinu á Seyðisfirði. Hundaeigendur eru beðnir að mæta með dýrin sín á milli klukkan 14 og 16. Kattaeigendur er beðnir að mæta með sín dýr á milli klukkan 16 og 18.
Vinsamlegast verið með grímur og virðum tveggja metra regluna.
Lesa
15.04.2021
kl. 16:46
Í gær 14. apríl 2021 samþykkti sveitarstjórn Múlaþings Jafnréttisáætlun sveitarfélagsins. Jafnréttisáætlun er mikilvægt verkfæri til að vinna að jafnri stöðu íbúanna á öllum sviðum samfélagsins.
Lesa