Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

195. fundur 11. ágúst 2026 kl. 08:30 - 11:36 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Eiður Ragnarsson varaformaður
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Lárus Bjarnason aðalmaður
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Ingvar Rafn Stefánsson sviðsstjóri fjármála
  • Guðlaugur Sæbjörnsson starfsmaður
  • Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
  • Sigrún Hólm Þórleifsdóttir sviðsstjóri mannauðs og þjónustu
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri, sviðsstjóri fjármála og sviðsstjóri mannauðs og þjónustu fóru yfir og kynntu mál er varða rekstur og fjármál sveitarfélagsins.

2.Fjárhagsáætlun Múlaþings 2027 til 2030

Málsnúmer 202606136Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að tillögu að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030.
Í vinnslu.

3.Atvinnumál í Múlaþingi

Málsnúmer 202511153Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri fer yfir stöðu atvinnumála í Múlaþingi.
Lagt fram til kynningar.

4.Samkomusalur í Valaskjálf

Málsnúmer 202607130Vakta málsnúmer

Fyrir liggur mál varðandi framtíð samkomusalarins í Valaskjálf sem er í eigu 701 Hotels ehf. Í kjölfar nýlegs vatnstjóns hefur eigandi hússins viðrað hugmyndir um breytta nýtingu á salnum. Inn á fundinn undir þessum lið mættu Jóhann Pétur Reyndal og Gísli Steinar Gíslason, eigendur 701 Hotels ehf.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð þakkar Jóhanni Pétri og Gísla Steinari fyrir komuna á fundinn.

Formanni byggðaráðs og sveitarstjóra falið að ræða við eigendur 701 Hotels ehf. um framhald málsins í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Kæra á grundvelli sveitarstjórnarlaga. Niðurstaða kosningar til heimastjórnar Seyðisfjarðar

Málsnúmer 202605254Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar úrskurður innviðaráðuneytisins frá 29. júlí 2026 vegna stjórnsýslukæru þar sem kærð var framkvæmd og niðurstaða kosningar til heimastjórnar á Seyðisfirði 2026.
Lagt fram til kynningar.

6.Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum, kynningarbréf

Málsnúmer 202607074Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bréf frá stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum til kynningar á starfsemi samtakanna.
Lagt fram til kynningar.

7.Samtök orkusveitarfélaga, kynningarbréf

Málsnúmer 202608019Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar bæklingur um starfsemi, hlutverk og áherslur Samtaka orkusveitarfélaga, ásamt samantekt um stöðu máls varðandi skattlagningu orkumannvirkja.
Lagt fram til kynningar.

8.Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga

Málsnúmer 202604047Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð aukaaðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga frá 29. apríl 2026, ásamt uppfærðum samþykktum samtakanna.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:36.

Getum við bætt efni þessarar síðu?