Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

206. fundur 24. nóvember 2026 kl. 08:30 - 11:42 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Eiður Ragnarsson varaformaður
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Lárus Bjarnason aðalmaður
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ingvar Rafn Stefánsson sviðsstjóri fjármála
  • Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
  • Sigrún Hólm Þórleifsdóttir sviðsstjóri mannauðs og þjónustu
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjármála og sviðsstjóri mannauðs og þjónustu fóru yfir og kynntu mál er varða rekstur og fjármál sveitarfélagsins.

2.Fjárhagsáætlun Múlaþings 2027 til 2030

Málsnúmer 202606136Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fjárhagsáætlun Múlaþings fyrir árið 2027, ásamt þriggja ára áætlun 2028 til 2030, sem vísað var frá sveitarstjórn til síðari umræðu í byggðaráði.
Í vinnslu.

3.Löggæsla á Austurlandi

Málsnúmer 202611175Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Lögreglustjóranum á Austurlandi þar sem óskað er eftir að koma á fund byggðaráðs til almenns samtals um löggæslu í umdæminu. Inn á fundinn undir þessum lið mætti Kristmundur Stefán Einarsson, skipaður lögreglustjóri.
Byggðaráð Múlaþings þakkar Kristmundi Stefáni fyrir góða kynningu og komuna á fundinn.

Lagt fram til kynningar.

4.Stjórnskipulag aðgerðastjórnar á Austurlandi

Málsnúmer 202611178Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar stjórnskipulagsáætlun fyrir aðgerðastjórn á Austurlandi, dagsett 29. október 2026, frá Lögreglustjóranum á Austurlandi.
Lagt fram til kynningar.

5.Gagnaveita Múlaþings

Málsnúmer 202611180Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað frá KPMG, endurskoðanda HEF veitna ehf., um ábendingar varðandi fjármögnun og rekstrargrundvöll einstakra veitna félagsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings leggur til að gagnaveitan verði seld frá HEF veitum ehf. til nýs félags í eigu Múlaþings, í samræmi við tillögu KPMG, en að HEF veitur ehf. annist áfram rekstur hennar og stjórnun. Jafnframt leggur byggðaráð til að Múlaþing taki yfir skuld nýja félagsins við HEF veitur ehf. með skuldaraskiptum og eignist á móti kröfu á nýja félagið. Byggðaráð felur sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála, í samvinnu við stjórn HEF veitna ehf. og KPMG, að undirbúa ráðstöfunina og leggja endanlega útfærslu fyrir byggðaráð og sveitarstjórn ásamt mati á áhrifum á fjárhagsáætlun og kennitölur A-hluta og tillögu að viðauka.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

6.Samþykkt um stjórn Múlaþings, breytingatillaga

Málsnúmer 202610127Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að breytingum á samþykkt um stjórn Múlaþings og viðaukum við hana auk minnisblaðs um breytingarnar. Sveitarstjórn vísaði tillögunum til síðari umræðu í byggðaráði á fundi sínum 11. nóvember 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi tillögu að breytingum á samþykkt um stjórn Múlaþings og viðaukum við hana, og vísar henni til síðari umræðu í sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

7.Byggðakvóti í Múlaþingi

Málsnúmer 202611117Vakta málsnúmer

Fyrir liggja erindi frá Búlandstindi ehf. og Goðaborg ehf. varðandi almennan byggðakvóta í Múlaþingi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings leggur ríka áherslu á að tryggja þær undirstöður í útgerð og fiskvinnslu sem byggðar hafa verið upp á Djúpavogi. Byggðaráð lítur alvarlegum augum á þá stöðu sem lýst er í erindi Búlandstinds ehf. og felur sveitarstjóra að taka málið upp við Byggðastofnun, með það að markmiði að skilyrði um vinnslu og löndun taki mið af þeim aflaheimildum sem í boði eru.

Byggðaráð telur einnig ljóst að Seyðisfjörður uppfylli skilyrði til úthlutunar almenns byggðakvóta, verði byggt á sambærilegum reglum og giltu á fiskveiðiárinu 2025/2026. Í ljósi lokunar bolfiskvinnslu og mikils samdráttar í sjávarútvegi á Seyðisfirði skiptir sú úthlutun miklu máli fyrir atvinnuuppbyggingu á Seyðisfirði.

Byggðaráð fagnar áhuganum á að hefja útgerð og vinnslu á Seyðisfirði og mun beita sér fyrir því að fylgja málinu eftir.

Byggðaráð skorar á innviðaráðuneytið að veita svör um úthlutun almenns byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2026/2027 og um fyrirhugaðar breytingar á kerfinu.

Sveitarstjóra falið að hefja undirbúning tillagna að sérstökum skilyrðum fyrir úthlutun byggðakvóta í byggðarlögum Múlaþings, í samráði við útgerðir og fiskvinnslu, svo þær liggi fyrir innan þess frests sem ráðuneytið setur.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

8.Skógardagurinn mikli 2027

Málsnúmer 202611105Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá undirbúningsnefnd Skógardagsins mikla þar sem óskað er eftir endurnýjun á samningi við Múlaþing um styrk til Skógardagsins mikla í Hallormsstaðaskógi. Gildandi samningur var gerður árið 2024 og gildir til 31. desember 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að gerður verði áframhaldandi samningur við Félag skógarbænda á Fljótsdalshéraði vegna Skógardagsins mikla til þriggja ára fyrir árin 2027 til 2029. Samningurinn verði efnislega samhljóða gildandi samningi. Sveitarstjóra falið að ganga frá samningnum og undirrita hann fyrir hönd sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

9.Tillaga um hágæðasjúkrahús á Austurlandi

Málsnúmer 202610089Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá íbúa, dagsett 7. október 2026, með tillögu um að sveitarstjórn skori á Alþingi að fela heilbrigðisráðherra að skipa starfshóp til mótunar stefnu og aðgerðaáætlunar um byggingu hágæðasjúkrahúss á Austurlandi. Málið var tekið fyrir af heimastjórn Fljótsdalshéraðs 9. nóvember 2026 sem vísaði því til umfjöllunar í byggðaráði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar fyrir erindið og þann áhuga sem það sýnir á eflingu heilbrigðisþjónustu á Austurlandi.

Byggðaráð telur rétt að funda með yfirstjórn Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) og kalla eftir áherslum hennar varðandi framtíðaruppbyggingu svæðisins áður en lengra er haldið.

Sveitarstjóra falið að óska eftir fundi með yfirstjórn HSA þar sem fram komi áherslur stofnunarinnar um uppbyggingu þjónustunnar á Austurlandi. Málið verði aftur tekið fyrir í byggðaráði að þeim fundi loknum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

10.Reglur um úthlutun menningarstyrkja Múlaþings

Málsnúmer 202611071Vakta málsnúmer

Fyrir liggja tillögur að breytingum á reglum um menningarstyrki Múlaþings. Málið var síðast tekið fyrir í byggðaráði 17. nóvember 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi tillögu að breytingum á reglum um menningarstyrki Múlaþings. Deildarstjóra menningarmála falið að birta uppfærðar reglur á vefsíðu sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

11.Aðalfundur Tækniminjasafns Austurlands 2026

Málsnúmer 202611179Vakta málsnúmer

Fyrir liggur boð á aðalfund Tækniminjasafns Austurlands 2026 sem haldinn verður mánudaginn 30. nóvember 2026 kl. 17.00 í fjarfundi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að Hlynur Jónsson, sviðsstjóri stjórnsýslu, mæti fyrir hönd sveitarfélagsins á aðalfund Tækniminjasafns Austurlands sem haldinn verður 30. nóvember 2026 kl. 17.00.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

12.Aðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2026.

Málsnúmer 202611167Vakta málsnúmer

Fyrir liggur boð á aðalfund Héraðsskjalasafns Austfirðinga sem haldinn verður miðvikudaginn 2. desember 2026 kl. 13.00 í húsnæði Austurbrúar, Tjarnarbraut 39e á Egilsstöðum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að Berglind Harpa Svavarsdóttir mæti sem fulltrúi sveitarfélagsins á aðalfund Héraðsskjalasafns Austurlands, sem haldinn verður miðvikudaginn 2. desember 2026 í húsnæði Austurbrúar, Tjarnarbraut 39e á Egilsstöðum, og fari með atkvæði Múlaþings. Jafnframt samþykkir byggðaráð að Ásrún Mjöll Stefánsdóttir verði varamaður og mæti á aðalfundinn eigi aðalmaður þess ekki kost.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

13.Framtíðaruppbygging atvinnulífs á Seyðisfirði

Málsnúmer 202310203Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð samráðshóps um uppbyggingu atvinnulífs á Seyðisfirði frá 18. nóvember 2026.
Lagt fram til kynningar.

14.Umsagnarbeiðni um 313. mál , Stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027 til 2041

Málsnúmer 202611118Vakta málsnúmer

Fyrir liggur í umsagnagátt Alþingis tillaga til þingsályktunar 313. mál, um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027 til 2041. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 26. nóvember 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að skila inn umsögn um þingsályktunartillöguna í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Fundi slitið - kl. 11:42.

Getum við bætt efni þessarar síðu?