Fara í efni

Fjölskylduráð Múlaþings

131. fundur 06. maí 2025 kl. 12:30 - 14:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Sigurður Gunnarsson formaður
  • Guðmundur Björnsson Hafþórsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Björg Eyþórsdóttir varaformaður
  • Guðný Lára Guðrúnardóttir aðalmaður
  • Jóhann Hjalti Þorsteinsson aðalmaður
  • Ævar Orri Eðvaldsson varamaður
Starfsmenn
  • Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir fræðslustjóri
  • Marta Wium Hermannsdóttir leikskólafulltrúi
  • Stefanía Malen Stefánsdóttir grunnskólafulltrúi
Fundargerð ritaði: Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir fræðslustjóri
Áheyrnarfulltrúar tónlistarskóla Sóley Þrastardóttir og Bríet Finnsdóttir sátu lið 1 - 2. Áheyrnarfulltrúar leikskóla Kolbrún Nanna Magnúsdóttir og Linda Theresa Fransson sátu lið 2 - 3. Áheyrnarfulltrúar grunnskóla Dagbjört Kristinsdóttir og Arna Magnúsdóttir sátu lið 2 og 4 - 5.

1.Skóladagatöl tónlistarskóla 2025-2026

Málsnúmer 202504205Vakta málsnúmer

Fyrir liggja skóladagatöl 2025-2026 fyrir eftirfarandi skóla: Tónlistaskólinn á Egilsstöðum og Tónlistarskólinn í Fellabæ.
Undir þessum lið sitja Drífa Sigurðardóttir, skólastjóri Tónlistarskólans í Fellabæ og Sóley Þrastardóttir, skólastjóri Tónlistarskólans á Egilsstöðum

Skóladagatölin hafa verið kynnt starfsfólki tónlistarskólanna.

Fjölskylduráð samþykkir samhljóða með handauppréttingu skóladagatöl 2025-2026.

2.Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045

Málsnúmer 202208083Vakta málsnúmer

Skipulags- og matslýsing Aðalskipulags Múlaþings 2025-2045 hefur verið lögð fram til kynningar í Skipulagsgátt. Óskað er eftir að umsagnir, ábendingar og sjónarmið er varða efni skipulagslýsingarinnar berist fyrir 14. maí 2025.
Fjölskylduráð þakkar fyrir þá miklu vinnu sem lögð hefur verið í undirbúning við aðalskipulagið.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Skóladagatöl leikskóla 2025 - 2026

Málsnúmer 202504201Vakta málsnúmer

Fyrir liggja, til samþykktar, skóladagatöl leikskólanna vegna skólaársins 2025-2026.
Undir þessum lið sitja Anna Birna Einarsdóttir, skólastjóri Fellaskóla, Ásgrímur Ingi Arngrímsson, skólastjóri Brúarásskóla, Kolbrún Nanna Magnúsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri Hádegishöfða, Sigríður Herdís Pálsdóttir, skólastjóri Tjarnarskógar og Þórunn Óladóttir, skólastjóri Seyðisfjarðarskóla.

Skóladagatölin hafa fengið umsögn foreldraráða og starfsfólks leikskólanna.

Fjölskylduráð samþykkir samhljóða með handauppréttingu skóladagatöl 2025-2026.


4.Skóladagatöl grunnskóla 2025-2026

Málsnúmer 202503243Vakta málsnúmer

Fyrir liggja, til samþykktar, skóladagatöl grunnskólanna vegna skólaársins 2025-2026.
Undir þessum lið sitja Anna Birna Einarsdóttir, skólastjóri Fellaskóla, Ásgrímur Ingi Arngrímsson, skólastjóri Brúarásskóla, Dagbjört Kristinsdóttir, aðstoðarskólastjóri Egilsstaðaskóla, Þórdís Sævarsdóttir, skólastjóri Djúpavogsskóla og Þórunn Hrund Óladóttir, skólastjóri Seyðisfjarðarskóla.


Fjölskylduráð samþykkir samhljóða með handauppréttingu skóladagatöl 2025-2026, með fyrirvara um samþykki starfsfólks og skólaráða viðkomandi skóla,


5.Erindi, Ósamræmi í gjaldskrá á fæðisgjöldum milli grunnskóla í Múlaþingi

Málsnúmer 202503053Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Sigurveigu Gísladóttur fyrir hönd foreldarfélags grunnskóladeildar Seyðisfjarðarskóla dagsett 10.03.2025, þar sem óskað er eftir samræmingu ávaxtagjalds í grunnskólum Múlaþings. Málið hefur verið í vinnslu.
Fjölskylduráð þakka foreldrafélaginu fyrir erindið. Ráðið samþykkir að ávaxtagjaldið í Seyðisfjarðarskóla verði samræmt við ávaxtagjalda skóla á Héraði frá og með næsta skólaári.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Fundir sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna júlí til desember 2025

Málsnúmer 202504214Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að fundadagatali sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna tímabilið júlí til desember 2025.
Fjölskylduráð samþykkir drög að fundardagatalinu, júlí til desember 2025, með breytingum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Skýrsla fræðslustjóra

Málsnúmer 202012045Vakta málsnúmer

Skýrsla fræðslustjóra lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?