Fara í efni

Heimastjórn Djúpavogs

60. fundur 09. maí 2025 kl. 12:00 - 15:15 á skrifstofu sveitarfélagsins, Djúpavogi
Nefndarmenn
  • Guðný Lára Guðrúnardóttir formaður
  • Ingi Ragnarsson aðalmaður
  • Oddný Anna Björnsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Eiður Ragnarsson fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Eiður Ragnarsson fulltrúi sveitarstjóra

1.Fjárhagsáætlun Múlaþing 2026 til 2029

Málsnúmer 202504066Vakta málsnúmer

Fyrir liggur töluvpóstur frá fjármálastjóra, dagsettur 30.4.2025, þar sem minnt er á að heimastjórnirnar taki til umfjöllunar áherslur sínar vegna fjárhagsáætlunar 2026-2029, á fundi sínum 8. maí.
Í viðhengi eru áherslur heimstjórnar vegna fjárhagsáætlunargerðar 2026-2029.
Starfsmanni falið að koma tillögum til viðkomandi fagráða.

Samþykkt samhljóða.

2.Fundir sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna júlí til desember 2025

Málsnúmer 202504214Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fundardagatal nefnda og ráða júlí til desember 2025.
Heimastjórn Djúpavogs mun funda að óbreyttu 3.júlí, 14.ágúst, 4.september, 9.október, 6.nóvember og 4.desember.
Heimastjórn samþykkir framlagt fundardagatal samhljóða.

3.Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2025

Málsnúmer 202503024Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir Náttúrustofu Austurlands.

5.Skýrsla fulltrúa sveitarstjóra á Djúpavogi

Málsnúmer 202209244Vakta málsnúmer

Vatnsveita:
Dæling með nýjum dælum úr lindum inn við Búlandsá fór í gang í þriðjudaginn var. Dæling stenst væntingar, hámarksdæling er um 23 lítrar á sekúndu.

Hitavatnsleit:
Enn er beðið eftir niðurstöðum frá Isor eftir þeirra síðustu mælingu.

Starfsemi í Geysi:
Ásdís Heiðadal hefur sagt starfi sínu lausu, búið er að auglýsa eftir manneskju í 55% stöðugildi til að taka við hennar
hlutverki.

Íbúafundur heimastjórnar:
Af óviðráðanlegum ástæðum þurfti að fresta íbúafundi heimastjórnar sem átti að vera 8. maí.
Fundurinn verður haldinn 20.maí á Hótel Framtíð kl 17:00 - 19:00







6.Fundir Heimastjórnar Djúpavogs

Málsnúmer 202010614Vakta málsnúmer

Næsti fundur heimastjórnar Djúpavogs verður haldinn fimmtudaginn 5. júní kl.10:00. Erindi fyrir fundin þurfa að berast sterfsmanni heimastjórnar fyrir kl 16:00 föstudaginn 30. maí á netfangið eidur.ragnarsson@mulathing.is

Fundi slitið - kl. 15:15.

Getum við bætt efni þessarar síðu?