Fara í efni

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs

58. fundur 08. maí 2025 kl. 13:00 - 15:35 á skrifstofu sveitarfélagsins, Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Vilhjálmur Jónsson formaður
  • Jóhann Gísli Jóhannsson aðalmaður
  • Björgvin Stefán Pétursson aðalmaður
Starfsmenn
  • Óðinn Gunnar Óðinsson fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Óðinn Gunnar Óðinsson fulltrúi sveitarstjóra á Fljótsdalshéraði og skrifstofustjóri

1.Starfsemi Sláturhússins og framtíðarsýn

Málsnúmer 202410146Vakta málsnúmer

Farið í heimasókn í Sláturhúsið menningarmiðstöð þar sem Ragnhildur Ásvaldsdóttir, forstöðumaður, kynnir starfsemina, aðstöðuna og framtíðarsýn.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Ragnhildi og Árna Pálssyni, forstöðumanni Vegahússins, þökkuð kynningin á starfseminni og aðstöðunni í húsinu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Fjárhagsáætlun Múlaþing 2026 til 2029

Málsnúmer 202504066Vakta málsnúmer

Fyrir liggur töluvpóstur frá fjármálastjóra, dagsettur 30.4.2025, þar sem minnt er á að heimastjórnirnar taki til umfjöllunar áherslur sínar vegna fjárhagsáætlunar 2026-2029, á fundi sínum 8. maí.
Eftirfarandi bókun lögð fram:
Starfsmanni falið að koma tillögum sem ræddar voru á fundinum til viðkomandi fagráða.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045

Málsnúmer 202208083Vakta málsnúmer

Á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs 28.4.2025 var vinnslutillögu aðalskipulags vísað til umsagnar hjá byggðaráði, fjölskylduráði, heimastjórnum, ungmennaráði, öldungaráði og starfshópi um málefni fatlaðs fólks. Vakin er athygli að gögn vegna vinnu við aðalskipulagið má finnd hér https://skipulagsgatt.is/issues/2023/1030
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs lýsir ánægju með þá miklu vinnu sem lögð hefur verið í gerð vinnslutillögu að aðalskipulagi og það mikilvæga samráð sem þegar hefur farið fram.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs leggur áherslu á að í aðalskipulaginu verði skýr stefna um uppbyggingu á vexti Egilsstaða sem samgöngu-, þjónustu- og atvinnumiðstöðvar á Austurlandi. Þá verði betur skýrð stefnan og framtíðarsýn um landbúnað og atvinnustarfsemi í dreifbýli.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Fundir sveitarstjórnar, fagráða og heimastjórna júlí til desember 2025

Málsnúmer 202504214Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að fundardagatali sveitarstjórnar,fagráða og heimastjórna tímabilið júlí til desember 2025.
Eftirfarandi lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs gerir ekki athugasemdir við fundadagatalið.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Samfélagsverkefni heimastjórna 2025

Málsnúmer 202412125Vakta málsnúmer

Fyrir liggja hugmyndir að samfélagsverkefnum sem íbúar hafa sent sveitarfélaginu en frestur til að skila hugmyndum rann út 28. febrúar 2025.
Eftirfarandi bókun lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs felur starfsmanni að koma tillögum heimastjórnar til umhverfis- og framkvæmdasviðs.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 15:35.

Getum við bætt efni þessarar síðu?