Fara í efni

Fjarskiptasamband í Múlaþingi

Málsnúmer 202607016

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 193. fundur - 07.07.2026

Fyrir liggja bókanir heimastjórna Fljótsdalshéraðs og Djúpavogs frá 24. og 26. júní 2026 um fjarskiptasamband í Múlaþingi þar sem því er beint til sveitarstjórnar Múlaþings að krefjast úrbóta í fjarskiptamálum í sveitarfélaginu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings tekur undir bókanir heimastjórna Fljótsdalshéraðs og Djúpavogs frá 24. og 26. júní 2026.

Byggðaráð lýsir þungum áhyggjum af skerðingu fjarskipta í sveitarfélaginu í kjölfar þess að slökkt var á 2G og 3G sendum. Múlaþing er víðfeðmt þar sem fjallvegir, firðir, hálendi og fjölsóttir ferðamannastaðir setja sitt mark á samgöngur og búsetu og eru örugg fjarskipti þar grundvallarþáttur almannaöryggis.

Byggðaráð furðar sig á að Fjarskiptastofa hafi heimilað útfösun 2G og 3G við þessar aðstæður. Með þeirri ákvörðun varð Ísland fyrsta ríkið í Evrópu til að slökkva á þessum kerfum áður en tryggt hafði verið að nýrri kerfi tækju við. Þær aðstæður skapa samhliða óviðunandi hættuástand fyrir íbúa og ferðamenn.

Byggðaráð bendir á að markmið laga um fjarskipti sé að tryggja örugg, hagkvæm og skilvirk fjarskipti um land allt. Fjarskiptastofa ber einnig, í samstarfi við almannavarnir, lagaskyldu til að stuðla að öryggi fjarskiptainnviða og almannaöryggi.

Byggðaráð Múlaþings krefst þess að innviðaráðuneytið, Fjarskiptastofa og fjarskiptafyrirtækin geri sameiginlegt áhættumat á áhrifum skertrar fjarþjónustu á öryggi íbúa, ferðamanna og viðbragðsaðila. Ráðist verði tafarlaust í úrbætur þar sem þjónustan stenst ekki kröfur um örugg fjarskipti.

Sveitarstjóra falið að koma bókuninni á framfæri við innviðaráðuneytið og Fjarskiptastofu.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Sveitarstjórn Múlaþings - 71. fundur - 09.09.2026

Á fundi sveitarstjórnar Fljótsdalshrepps 11. ágúst 2026 var bókað um stöðu fjarskipta eftir lokun 2G og 3G farsímakerfanna, þar sem skorað er á umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis að kalla stjórnendur fjarskiptafyrirtækjanna á opinn fund og meta hvort breyta þurfi fjarskiptalögum til að tryggja öryggi íbúa. Byggðaráð Múlaþings fjallaði um fjarskiptasamband á fundi sínum 7. júlí 2026 og krafðist áhættumats og tafarlausra úrbóta.
Til máls tóku: Lárus Bjarnason, Eiður Ragnarsson, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Þórey Birna Jónsdóttir, Ívar Karl Hafliðason, Helgi Hlynur Ásgrímsson.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings tekur undir bókun sveitarstjórnar Fljótsdalshrepps um stöðu fjarskipta og ítrekar bókun byggðaráðs frá 7. júlí 2026. Þar var meðal annars lýst yfir þungum áhyggjum af öryggi íbúa, ferðamanna og viðbragðsaðila eftir að slökkt var á 2G- og 3G-farsímakerfunum.
Örugg fjarskipti eru grundvallarþáttur almannaöryggis í víðfeðmu sveitarfélagi. Frásagnir íbúa af versnandi sambandi og nýleg atvik, þar sem erfiðlega gekk að ná sambandi við Neyðarlínuna og truflanir urðu á Tetra-kerfinu, benda til þess að forsendur útfösunarinnar hafi ekki staðist.
Sveitarstjórn tekur undir með sveitarstjórn Fljótsdalshrepps um að fjarskiptafyrirtækin þurfi að skýra hvers vegna ekki var beðið með lokunina þrátt fyrir viðvaranir Neyðarlínunnar. Jafnframt er studd sú áskorun að umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis boði stjórnendur fyrirtækjanna á opinn fund og meti í kjölfarið þörf á breytingum á fjarskiptalögum til að tryggja örugg fjarskipti um land allt.
Sveitarstjórn ítrekar fyrri kröfu byggðaráðs Múlaþings um að innviðaráðuneytið, Fjarskiptastofa og fjarskiptafyrirtækin geri sameiginlegt áhættumat og ráðist tafarlaust í úrbætur þar sem þjónustan stenst ekki öryggiskröfur. Þá verði niðurstöður mælinga Fjarskiptastofu á farsímasambandi á Austurlandi kynntar sveitarfélaginu og Tetra-kerfið tekið til sambærilegrar skoðunar.
Sveitarstjóra er falið að koma bókuninni á framfæri við umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dómsmálaráðuneytið, innviðaráðuneytið, Fjarskiptastofu og fjarskiptafyrirtækin.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Borgarfjarðar - 73. fundur - 01.10.2026

Fyrir liggur skýrsla Fjarskiptastofu um útfösun 2G og 3G farnetskerfa.
Heimastjórn tekur undir bókun byggðaráðs frá 7. júlí síðastliðnum þar sem segir meðal annars:
Byggðaráð lýsir þungum áhyggjum af skerðingu fjarskipta í sveitarfélaginu í kjölfar þess að slökkt var á 2G og 3G sendum. Múlaþing er víðfeðmt þar sem fjallvegir, firðir, hálendi og fjölsóttir ferðamannastaðir setja sitt mark á samgöngur og búsetu og eru örugg fjarskipti þar grundvallarþáttur almannaöryggis.

Byggðaráð furðar sig á að Fjarskiptastofa hafi heimilað útfösun 2G og 3G við þessar aðstæður. Með þeirri ákvörðun varð Ísland fyrsta ríkið í Evrópu til að slökkva á þessum kerfum áður en tryggt hafði verið að nýrri kerfi tækju við. Þær aðstæður skapa samhliða óviðunandi hættuástand fyrir íbúa og ferðamenn.

Byggðaráð bendir á að markmið laga um fjarskipti sé að tryggja örugg, hagkvæm og skilvirk fjarskipti um land allt. Fjarskiptastofa ber einnig, í samstarfi við almannavarnir, lagaskyldu til að stuðla að öryggi fjarskiptainnviða og almannaöryggi.

Byggðaráð Múlaþings krefst þess að innviðaráðuneytið, Fjarskiptastofa og fjarskiptafyrirtækin geri sameiginlegt áhættumat á áhrifum skertrar fjarþjónustu á öryggi íbúa, ferðamanna og viðbragðsaðila. Ráðist verði tafarlaust í úrbætur þar sem þjónustan stenst ekki kröfur um örugg fjarskipti.

Á og í nágrenni Borgarfjarðar hefur símasamband snarversnað eftir að slökkt var á 2G og 3G. Símasamband er slitrótt við Borgarfjarðarhöfn og á miðum við Borgarfjörð. Símasamband er nánast ekkert í innsveitum Borgarfjarðar. Símasamband var stórbætt fyrir nokkrum árum á Vatnsskarði, í Njarðvík og Njarðvíkurskriðum þegar nýjum sendi var komið fyrir í Njarðvík, en er nú orðið slitrótt aftur. Þá hefur "dauðum blettum" fjölgað við Borgarfjarðarveg nr. 94 við þessa lokun.

Heimastjórn Borgarfjarðar tekur undir kröfur byggðaráðs um tafarlausar úrbætur í fjarskiptum þar sem öryggi fólks er stórlega skert eftir að slökkt var á 2G og 3G farsímakerfunum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Heimastjórn Seyðisfjarðar - 72. fundur - 01.10.2026

Til upplýsinga fyrir íbúa í Múlaþingi, eru lagðar fram til kynningar af vef Fjarskiptastofu eftirfarandi upplýsingar er varðar lokun 3G farsímasambands um allt land

https://www.fjarskiptastofa.is/fjarskiptastofa/fjarskiptainnvidir/upplysingar-fyrir-neytendur/2g-og-3g-utfosun/
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Seyðisfjarðar furðar sig á að Fjarskiptastofa hafi heimilað útfösun 2G og 3G við þessar aðstæður. Með þeirri ákvörðun varð Ísland fyrsta ríkið í Evrópu til að slökkva á þessum kerfum áður en tryggt hafði verið að nýrri kerfi tækju við. Þær aðstæður skapa samhliða óviðunandi hættuástand fyrir íbúa og ferðamenn.

Heimastjórn bendir á að markmið laga um fjarskipti sé að tryggja örugg, hagkvæm og skilvirk fjarskipti um land allt. Fjarskiptastofa ber einnig, í samstarfi við almannavarnir, lagaskyldu til að stuðla að öryggi fjarskiptainnviða og almannaöryggi.

Heimastjórn líkt og byggðaráð Múlaþings krefst þess að innviðaráðuneytið, Fjarskiptastofa og fjarskiptafyrirtækin geri sameiginlegt áhættumat á áhrifum skertrar fjarþjónustu á öryggi íbúa, ferðamanna og viðbragðsaðila. Ráðist verði tafarlaust í úrbætur þar sem þjónustan stenst ekki kröfur um örugg fjarskipti.

Á Seyðisfirði og í nágrenni hefur símasamband versnað eftir að slökkt var á 2G og 3G. Símasamband er slitrótt á veginum um Fjarðarheiði og beggja vegna fjarðar. Bendir heimastjórn íbúum á að ef þeir hafi upplifað skerðingu á sambandi eftir að 2G/3G voru aflaðgðir sendi inn tilkynningu á fjarskiptastofa.is

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Djúpavogs - 74. fundur - 02.10.2026

Til upplýsinga fyrir íbúa í Múlaþingi, eru lagðar fram til kynningar af vef Fjarskiptastofu eftirfarandi upplýsingar er varðar lokun 3G farsímasambands um allt land.

https://www.fjarskiptastofa.is/fjarskiptastofa/fjarskiptainnvidir/upplysingar-fyrir-neytendur/2g-og-3g-utfosun/
Lagt fram til kynningar.

Byggðaráð Múlaþings - 201. fundur - 06.10.2026

Fyrir liggur til kynningar skýrsla Fjarskiptastofu um lokun 2G og 3G farnetskerfa, dagsett 18. september 2026. Inn á fundinn undir þessum lið mættu Bjarni Sigurðsson, Ólafur Aðalsteinsson, Bjarki Þór Þorvaldsson og Hulda Ástþórsdóttir fyrir hönd Fjarskiptastofu.
Byggðaráð Múlaþings þakkar Bjarna, Ólafi, Bjarka og Huldu fyrir góða kynningu og komuna á fundinn.

Lagt fram til kynningar.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 73. fundur - 08.10.2026

Fyrir liggur skýrsla Fjarskiptastofu um útfösun 2G og 3G farnetskerfa frá september 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs tekur undir bókun byggðaráðs frá 7. júlí 2026 þar sem segir meðal annars:
Byggðaráð lýsir þungum áhyggjum af skerðingu fjarskipta í sveitarfélaginu í kjölfar þess að slökkt var á 2G og 3G sendum. Múlaþing er víðfeðmt þar sem fjallvegir, firðir, hálendi og fjölsóttir ferðamannastaðir setja sitt mark á samgöngur og búsetu og eru örugg fjarskipti þar grundvallarþáttur almannaöryggis.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs tekur undir kröfur byggðaráðs um tafarlausar úrbætur í fjarskiptum þar sem öryggi fólks er stórlega skert eftir að slökkt var á 2G og 3G farsímakerfunum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?