Fara í efni

Ályktanir aðalfundar NAUST 23.ágúst 2026

Málsnúmer 202609215

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Borgarfjarðar - 73. fundur - 01.10.2026

Fyrir liggja ályktanir aðalfundar Náttúruverndarsamtaka Austurlands sem var haldinn 23. ágúst 2026.
Heimastjórn Borgarfjarðar, sem náttúruverndarnefnd, þakkar NAUST erindið og jafnframt fyrir það mikilvæga framlag sem samtökin vinna í þágu náttúrunnar.
Heimastjórn tekur undir að vaxandi útbreiðsla ágengra plöntutegunda er vandamál víða. Á Borgarfirði hafa íbúar haft áhyggjur, meðal annars af útbreiðslu lúpínu og kerfils í bæjarlandinu.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Heimastjórn Seyðisfjarðar - 72. fundur - 01.10.2026

Fyrir liggja ályktanir aðalfundar Náttúruverndarsamtaka Austurlands sem var haldinn 23. ágúst 2026.
Lagt fram til kynningar.

Heimastjórn Djúpavogs - 74. fundur - 02.10.2026

Fyrir liggja ályktanir aðalfundar Náttúruverndarsamtaka Austurlands sem var haldinn 23. ágúst 2025
Lagt fram til kynningar.

Byggðaráð Múlaþings - 201. fundur - 06.10.2026

Fyrir liggja ályktanir aðalfundar Náttúruverndarsamtaka Austurlands sem var haldinn 23. ágúst 2025.
Lagt fram til kynningar.

Fulltrúi V-lista (ÁMS) leggur fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúi V-lista tekur undir áherslur Náttúruverndarsamtaka Austurlands, meðal annars að ákvarðanir um nýtingu náttúru og auðlinda byggist á vísindalegri þekkingu, varúðarreglu og langtímahagsmunum samfélagsins. Mikilvægt er að sveitarfélagið standi vörð um náttúru, líffræðilega fjölbreytni og hagsmuni nærsamfélaga þegar teknar eru ákvarðanir um framkvæmdir og auðlindanýtingu.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 73. fundur - 08.10.2026

Fyrir liggja til kynningar ályktanir aðalfundar Náttúruverndarsamtaka Austurlands sem var haldinn 23. ágúst 2025.
Lagt fram til kynningar.
Getum við bætt efni þessarar síðu?