Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

193. fundur 07. júlí 2026 kl. 09:00 - 12:20 á skrifstofu sveitarfélagsins, Seyðisfirði
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Eiður Ragnarsson varaformaður
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson varamaður
  • Urður Arna Ómarsdóttir varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Ingvar Rafn Stefánsson sviðsstjóri fjármála
  • Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
  • Sigrún Hólm Þórleifsdóttir sviðsstjóri mannauðs og þjónustu
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
Í upphafi fundar bar formaður byggðaráðs upp tillögu um að mál undir lið 4, Bókasafn - skrifstofur í Herðubreið á Seyðisfirði, yrði bætt við dagskrána.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

1.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri, sviðsstjóri fjármála og sviðsstjóri mannauðs og þjónustu fóru yfir og kynntu mál er varða rekstur og fjármál sveitarfélagsins.

2.Fjárhagsáætlun Múlaþings 2027 til 2030

Málsnúmer 202606136Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fjármála kynnti tillögu að rammaáætlun fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027 og þriggja ára áætlunar 2028 til 2030.
Í vinnslu.

3.Stjórnskipulag sveitarfélagsins

Málsnúmer 202508014Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun sveitarstjórnar Múlaþings, dagsett 1. júlí 2026, þar sem sveitarstjóra og byggðaráði er falið að vinna tillögur að endurskoðun stjórnskipulags Múlaþings með það að markmiði að einfalda stjórnsýslu, auka skilvirkni og stuðla að hagræðingu í rekstri.
Í vinnslu.

4.Bókasafn - skrifstofur í Herðubreið á Seyðisfirði, starfshópur

Málsnúmer 202601142Vakta málsnúmer

Fyrir liggja teikningar og kostnaðaráætlun vegna flutnings á skrifstofu Múlaþings á Seyðisfirði og bókasafni Seyðisfjarðar á efri hæð Herðubreiðar. Inn á fundinn undir þessum lið mætti Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda.
Byggðaráð þakkar Hugrúnu fyrir kynninguna og komuna á fundinn.

Lagt fram til kynningar.

5.Fjarskiptasamband í Múlaþingi

Málsnúmer 202607016Vakta málsnúmer

Fyrir liggja bókanir heimastjórna Fljótsdalshéraðs og Djúpavogs frá 24. og 26. júní 2026 um fjarskiptasamband í Múlaþingi þar sem því er beint til sveitarstjórnar Múlaþings að krefjast úrbóta í fjarskiptamálum í sveitarfélaginu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings tekur undir bókanir heimastjórna Fljótsdalshéraðs og Djúpavogs frá 24. og 26. júní 2026.

Byggðaráð lýsir þungum áhyggjum af skerðingu fjarskipta í sveitarfélaginu í kjölfar þess að slökkt var á 2G og 3G sendum. Múlaþing er víðfeðmt þar sem fjallvegir, firðir, hálendi og fjölsóttir ferðamannastaðir setja sitt mark á samgöngur og búsetu og eru örugg fjarskipti þar grundvallarþáttur almannaöryggis.

Byggðaráð furðar sig á að Fjarskiptastofa hafi heimilað útfösun 2G og 3G við þessar aðstæður. Með þeirri ákvörðun varð Ísland fyrsta ríkið í Evrópu til að slökkva á þessum kerfum áður en tryggt hafði verið að nýrri kerfi tækju við. Þær aðstæður skapa samhliða óviðunandi hættuástand fyrir íbúa og ferðamenn.

Byggðaráð bendir á að markmið laga um fjarskipti sé að tryggja örugg, hagkvæm og skilvirk fjarskipti um land allt. Fjarskiptastofa ber einnig, í samstarfi við almannavarnir, lagaskyldu til að stuðla að öryggi fjarskiptainnviða og almannaöryggi.

Byggðaráð Múlaþings krefst þess að innviðaráðuneytið, Fjarskiptastofa og fjarskiptafyrirtækin geri sameiginlegt áhættumat á áhrifum skertrar fjarþjónustu á öryggi íbúa, ferðamanna og viðbragðsaðila. Ráðist verði tafarlaust í úrbætur þar sem þjónustan stenst ekki kröfur um örugg fjarskipti.

Sveitarstjóra falið að koma bókuninni á framfæri við innviðaráðuneytið og Fjarskiptastofu.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

6.Breytt ábyrgðarskipting, samkomulag við ríkið varðandi börn með fjölþættan vanda

Málsnúmer 202606173Vakta málsnúmer

Fyrir liggur reglugerð nr. 700/2026 um málsmeðferð vegna vistunar barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins, sem gefin var út 22. júní 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings lýsir yfir þungum áhyggjum og andstöðu við útgefna reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins er varðar þjónustu við börn með fjölþættan vanda.

Byggðaráð telur það með öllu óásættanlegt að ráðuneytið hafi einhliða þrengt skilgreininguna á þeim hópi sem reglugerðin tekur til. Með þessari ráðstöfun er vegið alvarlega að grunni þess samkomulags sem ríki og sveitarfélög undirrituðu 19. mars 2025, þar sem skýrt var kveðið á um breytta ábyrgðarskiptingu þar sem ríkið skyldi taka að sér framkvæmd og fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við þennan viðkvæma hóp barna.

Byggðaráð Múlaþings lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu Sambands íslenskra sveitarfélaga í málinu og krefst þess að mennta- og barnamálaráðuneytið endurskoði eða afturkalli umrædda reglugerð án tafar, og sett verði ný reglugerð sem samræmist í hvívetna efni og anda samkomulagsins frá 19. mars 2025.

Sveitarstjóra falið að koma bókun þessari á framfæri við mennta- og barnamálaráðuneytið.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

7.Málun regnbogafána á Egilsstöðum

Málsnúmer 202606192Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá íbúa, dagsett 26. júní 2026, um málun regnbogafána á göngustíg sem liggur frá Fagradalsbraut að bílastæði sem staðsett er við Kaupvang 2 og 6 á Egilsstöðum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar fyrir erindið og samþykkir að málað verði ofan í regnbogafánann sem þegar er til staðar á gangstétt meðfram Fagradalsbraut.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

8.Blóðskilunarþjónusta á Egilsstöðum

Málsnúmer 202607024Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Nýrnafélaginu, dagsett 25. júní 2026, þar sem vakin er athygli á þörf fyrir blóðskilunarþjónustu á Egilsstöðum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings tekur undir erindi Nýrnafélagsins um knýjandi þörf á að koma á fót blóðskilunarþjónustu á Egilsstöðum.

Nýrnafélagið leggur í erindi sínu áherslu á að blóðskilun sé nauðsynleg og íþyngjandi meðferð sem sjúklingar þurfa að sækja reglulega, allt að þrisvar í viku. Núverandi fyrirkomulagi sé þannig háttað að sjúklingar búsettir á Egilsstöðum og nágrenni þurfi að ferðast um langan veg til Neskaupstaðar eða dvelji vikum og mánuðum saman á sjúkrahóteli í Reykjavík, fjarri fjölskyldu og stuðningsneti sínu. Þetta feli í sér gríðarlega skerðingu á lífsgæðum einstaklinganna og valdi miklu óöryggi þar sem samgöngur milli þéttbýlisstaða á Austurlandi eru mjög háðar færð og veðri.

Byggðaráð tekur undir áhyggjur Nýrnafélagsins og bendir á að samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu er það yfirlýst markmið að tryggja öllum landsmönnum aðgang að fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem unnt er að veita á hverjum tíma. Þá eiga sjúklingar rétt á jafnræði og að þjónustan sé veitt á viðeigandi þjónustustigi eins nálægt heimabyggð og unnt er.

Byggðaráð leggur því ríka áherslu á að unnið verði að aukinni uppbyggingu heilbrigðisþjónustu og sérhæfðs tækjabúnaðar á heilsugæslunni á Egilsstöðum til að veita íbúum betri þjónustu sem sé einnig í samræmi við aukið hlutverk heilsugæslunnar á Egilsstöðum í bráðaþjónustu. Óviðunandi er að íbúar þurfi í miklum mæli að sækja grunn- og sérfræðiþjónustu af svæðinu ásamt tilheyrandi rannsóknum og myndatökum sem með auðveldum og hagkvæmum hætti ætti að leysa á Egilsstöðum.

Fjármagn í tækjakost og mönnun mun bæði spara ferðakostnað einstaklinga sem greiddur er af ríkinu við að sækja heilbrigðisþjónustu fjarri heimabyggð og suður til Reykjavíkur ásamt því að stytta viðbragðstíma í veikindum sem getur verið lífsógnandi.

Byggðaráð skorar á heilbrigðisráðherra og yfirstjórn Heilbrigðisstofnunar Austurlands að hefja þegar í stað markvissa vinnu og undirbúning að því að koma á fót blóðskilunarþjónustu á Egilsstöðum ásamt kaupum á nauðsynlegum tækjakosti til að standa vörð um líf og heilsu íbúa.

Sveitarstjóra falið að koma bókuninni á framfæri við heilbrigðisráðherra og Heilbrigðisstofnun Austurlands með ósk um fund.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

9.Framtíðaruppbygging atvinnulífs á Seyðisfirði

Málsnúmer 202310203Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun heimastjórnar Seyðisfjarðar frá 18. júní 2026 um tilnefningu á fulltrúa heimastjórnarinnar í samráðshóp um framtíðaruppbyggingu atvinnulífs á Seyðisfirði. Málið var tekið fyrir á fundi byggðaráðs 9. júní 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með tilnefningu heimastjórnar Seyðisfjarðar er endurskipun samráðshópsins lokið fyrir yfirstandandi kjörtímabil. Samráðshópinn skipa því eftirfarandi kjörnir fulltrúar:

Þórhildur Katrín Stefánsdóttir (tilnefnd af byggðaráði)
Ásrún Mjöll Stefánsdóttir (tilnefnd af byggðaráði)
Margrét Guðjónsdóttir (tilnefnd af heimastjórn Seyðisfjarðar).

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

10.Skipan í fagráð Minjasafns Austurlands

Málsnúmer 202607022Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga um skipun tveggja fulltrúa og tveggja til vara í fagráð Minjasafns Austurlands.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að skipa Rannveigu Þórhallsdóttur fornleifafræðing og Áskel Heiðar Ásgeirsson ferðamálafræðing sem aðalmenn og varamenn verða Elsa Guðný Björgvinsdóttir deildarstjóri menningarmála, og Ingvi Örn Þorsteinsson hönnuður.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

11.Ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga 2025

Málsnúmer 202606157Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga 2025.
Lagt fram til kynningar.

12.Fundagerðir Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, SSKS 2026

Málsnúmer 202601167Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar ársreikningur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 2025.
Lagt fram til kynningar.

13.Fundargerðir stjórnarfundar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202601172Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 12. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 12:20.

Getum við bætt efni þessarar síðu?