Fara í efni

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs

73. fundur 08. október 2026 kl. 13:00 - 14:13 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Eiður Ragnarsson formaður
  • Anna H. Bragadóttir aðalmaður
  • Jóhann Gísli Jóhannsson varamaður
Starfsmenn
  • Hlynur Jónsson fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson fulltrúi sveitarstjóra

1.Félagsheimili á Fljótsdalshéraði

Málsnúmer 202411218Vakta málsnúmer

Fyrir liggur mál um stöðu félagsheimila á Fljótsdalshéraði. Á árinu 2025 voru gerðar úttektir á félagsheimilunum en sveitarfélagið hefur ekki tekið ákvarðanir um framtíð þeirra. Málið er lagt fyrir heimastjórn til umræðu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs telur að bregðast þurfi við viðhaldsleysi fasteigna félagsheimila á Fljótsdalshéraði við fyrsta tækifæri, einkum á Arnhólsstöðum og Iðavöllum, og gera verði ráð fyrir fjármunum til viðhalds félagsheimilanna í fjárhagsáætlun Múlaþings 2027. Málinu vísað til umfjöllunar í byggðaráði.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Íbúafundir heimastjórnar Fljótsdalshéraðs

Málsnúmer 202605018Vakta málsnúmer

Fyrir liggur að ákveða dagsetningar fyrir íbúafundi heimastjórnar Fljótsdalshéraðs að hausti.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs felur formanni og starfsmanni að undirbúa og auglýsa íbúafund sem áætlað er að halda miðvikudaginn 18. nóvember 2026.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Niðurgreiðsluhlutfall raforku í íbúðarhúsnæði í Múlaþingi

Málsnúmer 202604006Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun byggðaráðs Múlaþings frá 1. september 2026 þar sem heimastjórnin er hvött til þess að vekja athygli á mögulegum tækifærum íbúa á niðurgreiðslu á raforku á íbúafundi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs tekur undir bókun byggðaráðs Múlaþings og mun kynna málið á opnum íbúafundi heimastjórnar í haust.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Deiliskipulag, Kollsstaðasel, frístundabyggð

Málsnúmer 202510198Vakta málsnúmer

Fyrir liggja umsagnir sem bárust við kynningu vinnslutillögu nýs deiliskipulags fyrir frístundabyggð í landi Kollsstaðasels en hún var kynnt með athugasemdafresti frá 7. júlí til 4. ágúst 2026. Jafnframt er lögð fram tillaga til auglýsingar þar sem brugðist hefur verið við þeim athugasemdum sem gerðar voru.
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísaði málinu til afgreiðslu heimastjórnar Fljótsdalshéraðs á fundi sínum þann 28. september 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir að fyrirliggjandi skipulagstillaga verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Fjarskiptasamband í Múlaþingi

Málsnúmer 202607016Vakta málsnúmer

Fyrir liggur skýrsla Fjarskiptastofu um útfösun 2G og 3G farnetskerfa frá september 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs tekur undir bókun byggðaráðs frá 7. júlí 2026 þar sem segir meðal annars:
Byggðaráð lýsir þungum áhyggjum af skerðingu fjarskipta í sveitarfélaginu í kjölfar þess að slökkt var á 2G og 3G sendum. Múlaþing er víðfeðmt þar sem fjallvegir, firðir, hálendi og fjölsóttir ferðamannastaðir setja sitt mark á samgöngur og búsetu og eru örugg fjarskipti þar grundvallarþáttur almannaöryggis.

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs tekur undir kröfur byggðaráðs um tafarlausar úrbætur í fjarskiptum þar sem öryggi fólks er stórlega skert eftir að slökkt var á 2G og 3G farsímakerfunum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Minnisblað um hæfi fulltrúa og málsmeðferð þegar álitaefni koma upp

Málsnúmer 202609262Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar minnisblað um hæfi fulltrúa og málsmeðferð þegar álitaefni koma upp.
Lagt fram til kynningar.

7.Ályktanir aðalfundar NAUST 23. ágúst 2026

Málsnúmer 202609215Vakta málsnúmer

Fyrir liggja til kynningar ályktanir aðalfundar Náttúruverndarsamtaka Austurlands sem var haldinn 23. ágúst 2025.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:13.

Getum við bætt efni þessarar síðu?