Fara í efni

Skýrsla fulltrúa sveitarstjóra á Borgarfirði

Málsnúmer 202605188

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Borgarfjarðar - 70. fundur - 25.06.2026

Búið er að opna veginn til Loðmundarfjarðar.

Vinna við gangstéttar ætti að hefjast í næstu viku. Jafnframt verða bílastæðin við Fjarðarborg og Hafnarhólma máluð.

Framkvæmdir í höfninni dragast því miður enn um sinn. Timbursending sem beðið hefur verið eftir er áætluð í fyrstu viku júlí.

HEF veitur hafa undanfarið unnið að endurnýjun vatnslagna í þorpinu og þakka íbúum biðlundina.

Dyrfjallahlaup verður haldið laugardaginn 4. júlí næstkomandi og gengur undirbúningur hjá UMFB og björgunarsveitinni Sveinunga vel.

Skrifstofa Múlaþings á Borgarfirði verður lokuð 6. til 31. júlí vegna sumarfrís starfsfólks. Starfsfólk þjónustumiðstöðvar tekur einnig sumarfrí á þessum tíma svo starfsemi verður skert en alltaf verður einhver við til að sjá um vigtun sjávarafla og önnur brýn verkefni. Kjartan Ólason hefur verið ráðinn sem sérlegur slátturmaður.

Heimastjórn Borgarfjarðar - 71. fundur - 10.08.2026

Hafnarframkvæmdir hefjast í vikunni en verkið hefur tafist mjög vegna seinkanna við afhendingu timburs frá framleiðanda. Verkið felst í endurbyggingu gömlu löndunarbryggjunnar sem er orðin afar illa farin og er unnið af Úlfsstöðum á Seyðisfirði, sem sáu einnig um byggingu nýju löndunarbryggjunnar. Verkið mun teygja sig inn í haustið.

Ýmislegt hefur verið framkvæmt á Borgarfirði í sumar og hér eru nokkur dæmi:
Steyptar hafa verið gangstéttar meðfram þorpsgötunni.
Haldið áfram að byggja upp leiksvæðið milli Fjarðarborgar og Sparkhallar, svæðið jafnað út og þökulagt og göngustígar lagðir. Þá hefur einnig svæðið kringum félagsheimilið verið snyrt.
HEF vinnur að því að tengja nýja neysluvatnslögn.
Efni keyrt í götur á tjaldsvæðinu og þær lengdar.
Áhersla lögð á að hemja útbreiðslu lúpínu í og í kringum Álfaborgina.
Lokið við framkvæmdir á forstofunni á Lindarbakka og nýju hleðslunni við hana og þökkum við Birni Björgvinssyni, Birni Skúlasyni og Bryndísi Snjólfsdóttur kærlega fyrir þeirra störf.
Verið er að klæða Ásbrún.

Bræðslan fór vel fram þrátt fyrir að veðrið hafi ekki alveg leikið við okkur. Óhætt að segja að öll hafi lagst á eitt við að sem best færi um gesti og að allt færi vel fram. Tónleikahaldarar og rekstraraðilar á Borgarfirði, björgunarsveit, lögregla og HSA og auðvitað öll sem komu að utanumhaldi hvers konar í Bræðsluviku fá hér með hrós og kærar þakkir fyrir góða hátíð.

Frú Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Björn Skúlason eiginmaður hennar heimsóttu Borgarfjörð á Bræðsludegi og fengu leiðsögn Dagmarar Ýrar Stefánsdóttur sveitarstjóra um fjörðinn og nutu Bræðslutónleikanna um kvöldið. Forsetahjónin voru afar ánægð með heimsóknina og er þeim þökkuð heimsóknin. Frétt um heimsóknina og myndir frá henni má finna hér: https://www.mulathing.is/is/frettir/forsetahjonin-i-heimsokn-i-mulathingi

Heimastjórn Borgarfjarðar - 73. fundur - 01.10.2026

Síðsumars var hafist handa við að skipta um klæðningu á Ásbrún sem er parhús í eigu Múlaþings. Verkinu er nú lokið og ánægjulegt að sjá breytinguna á húsinu.

Í sumar var lokið við að steypa gangstétt meðfram þorpsgötunni. Einnig voru byggðar tvær hraðahindranir, annars vegar milli Eyrarbratta og Fjarðarborgar hins vegar milli Bakkagerðiskirkju og Heiðmarkar.

Leiksvæðið milli Fjarðarborgar, grunnskóla og Sparkhallar og umhverfi þess hefur verið samfélagsverkefni heimastjórnar síðustu tvö ár. Mótun umhverfis er langt komin, svæðið var tyrft, borið í göngustíga og nú er búið að planta trjágróðri umhverfis svæðið.

Leiguíbúðin Dagsbrún 2 verður auglýst til leigu á næstunni á vef Múlaþings.

HEF veitur hófu tilraunaboranir eftir heitu vatni við Desjarmýri í vikunni. Stefnt er að borun við Sparkhöllina um þar næstu helgi. Miðað er við að verkið taki 2-3 daga á hverjum stað og klárist í október ef veður leyfir.
Getum við bætt efni þessarar síðu?