Fara í efni

Heimastjórn Borgarfjarðar

73. fundur 01. október 2026 kl. 13:00 - 15:15 á skrifstofu sveitarfélagsins, Borgarfirði
Nefndarmenn
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir formaður
  • Ólafur Arnar Hallgrímsson aðalmaður
  • Óttar Már Kárason aðalmaður
Starfsmenn
  • Alda Marín Kristinsdóttir fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Alda Marín Kristinsdóttir fulltrúi sveitarstjóra

1.Fjarskiptasamband í Múlaþingi

Málsnúmer 202607016Vakta málsnúmer

Fyrir liggur skýrsla Fjarskiptastofu um útfösun 2G og 3G farnetskerfa.
Heimastjórn tekur undir bókun byggðaráðs frá 7. júlí síðastliðnum þar sem segir meðal annars:
Byggðaráð lýsir þungum áhyggjum af skerðingu fjarskipta í sveitarfélaginu í kjölfar þess að slökkt var á 2G og 3G sendum. Múlaþing er víðfeðmt þar sem fjallvegir, firðir, hálendi og fjölsóttir ferðamannastaðir setja sitt mark á samgöngur og búsetu og eru örugg fjarskipti þar grundvallarþáttur almannaöryggis.

Byggðaráð furðar sig á að Fjarskiptastofa hafi heimilað útfösun 2G og 3G við þessar aðstæður. Með þeirri ákvörðun varð Ísland fyrsta ríkið í Evrópu til að slökkva á þessum kerfum áður en tryggt hafði verið að nýrri kerfi tækju við. Þær aðstæður skapa samhliða óviðunandi hættuástand fyrir íbúa og ferðamenn.

Byggðaráð bendir á að markmið laga um fjarskipti sé að tryggja örugg, hagkvæm og skilvirk fjarskipti um land allt. Fjarskiptastofa ber einnig, í samstarfi við almannavarnir, lagaskyldu til að stuðla að öryggi fjarskiptainnviða og almannaöryggi.

Byggðaráð Múlaþings krefst þess að innviðaráðuneytið, Fjarskiptastofa og fjarskiptafyrirtækin geri sameiginlegt áhættumat á áhrifum skertrar fjarþjónustu á öryggi íbúa, ferðamanna og viðbragðsaðila. Ráðist verði tafarlaust í úrbætur þar sem þjónustan stenst ekki kröfur um örugg fjarskipti.

Á og í nágrenni Borgarfjarðar hefur símasamband snarversnað eftir að slökkt var á 2G og 3G. Símasamband er slitrótt við Borgarfjarðarhöfn og á miðum við Borgarfjörð. Símasamband er nánast ekkert í innsveitum Borgarfjarðar. Símasamband var stórbætt fyrir nokkrum árum á Vatnsskarði, í Njarðvík og Njarðvíkurskriðum þegar nýjum sendi var komið fyrir í Njarðvík, en er nú orðið slitrótt aftur. Þá hefur "dauðum blettum" fjölgað við Borgarfjarðarveg nr. 94 við þessa lokun.

Heimastjórn Borgarfjarðar tekur undir kröfur byggðaráðs um tafarlausar úrbætur í fjarskiptum þar sem öryggi fólks er stórlega skert eftir að slökkt var á 2G og 3G farsímakerfunum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

2.Endurbygging löndunarbryggju í Borgarfjarðarhöfn

Málsnúmer 202511109Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð dagsett 22. september 2026 frá fundi fulltrúa Vegagerðarinnar, Hafna Múlaþings og Úlfsstaða ehf. um stöðu mála við endurbyggingu gömlu löndunarbryggjunnar í Borgarfjarðarhöfn.
Þegar hafist var handa kom í ljós að bryggjan er í mun verra ástandi en áður var talið og ekki mun reynast hægt að byggja utan um hana eins og til stóð heldur þarf að endurbyggja fremsta hluta hennar. Verið er að leggja lokahönd á nýja hönnun og verktakar hafa hreinsað burt ónýta hlutann og tryggt vettvang. Enn er stefnt að verklokum á tilsettum tíma, um áramót.

Heimastjórn hefur áhyggjur af því hve verkið hefur dregist inn í haustið en bindur vonir við að það gangi hratt og örugglega fyrir sig.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

3.Ábending vegna umgengni og öryggis í Fjarðarborg

Málsnúmer 202609226Vakta málsnúmer

Í upphafi máls vakti Óttar Már Kárason athygli á mögulegu vanhæfi sínu. Var það borið upp og samþykkt með tveimur greiddum atkvæðum, einn sat hjá.

Fyrir liggur bréf frá Birnu Sólrúnu Andrésdóttur og Önnu Margréti Jakobsdóttur Hjarðar, dagsett 17. september 2026, með ábendingum um umgengni og öryggi í Fjarðarborg.
Heimastjórn þakkar bréfriturum erindið.
Skýrt fyrirkomulag um frágang og þrif á húsi, ásamt gjaldskrá, má nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins, sjá hér: https://www.mulathing.is/is/stjornsysla/fjarmal/gjaldskrar#fjardarborg. Heimastjórn tekur undir mikilvægi þess að þrifum og frágangi sé fylgt vel eftir, sem og að á milli notenda og Múlaþings sé skýrt samkomulag um afnot af húsi hverju sinni. Til að bóka húsið fyrir viðburði eða samkomur má hafa samband við fulltrúa sveitarstjóra á Borgarfirði í gegnum netfangið alda.kristinsdottir@mulathing.is.
Sem húsnefnd Fjarðarborgar harmar heimastjórnin þau óþægindi sem þetta kann að hafa valdið og vonar að nú þegar framkvæmdum er svo gott sem lokið geti allir notendur gengið að húsinu í viðunandi ástandi hverju sinni.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

4.Minnisblað um hæfi fulltrúa og málsmeðferð þegar álitaefni koma upp

Málsnúmer 202609262Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað um hæfi fulltrúa og málsmeðferð þegar álitaefni koma upp.
Lagt fram til kynningar.

5.Ósk um úthlutun svæðis fyrir hjólabraut á Borgarfirði

Málsnúmer 202608016Vakta málsnúmer

Í upphafi máls vakti Óttar Már Kárason athygli á mögulegu vanhæfi sínu. Var það borið upp og samþykkt með tveimur greiddum atkvæðum, einn sat hjá.

Fyrir liggur erindi frá Árna Magnúsi Magnusson, dagsett 28. júlí 2026, með ósk um úthlutun svæðis fyrir hóla/hindranabraut fyrir hjólreiðaþjálfun. Árni Magnús kom inn á fundinn og þakkar heimastjórn honum fyrir greinargott erindi.
Heimastjórn Borgarfjarðar felur starfsmanni að vinna málið áfram í samráði við umsækjanda og vísar erindinu til umhverfis- og framkvæmdaráðs.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Gestir

  • Árni Magnús Magnusson - mæting: 13:20

6.Ályktanir aðalfundar NAUST 23.ágúst 2026

Málsnúmer 202609215Vakta málsnúmer

Fyrir liggja ályktanir aðalfundar Náttúruverndarsamtaka Austurlands sem var haldinn 23. ágúst 2026.
Heimastjórn Borgarfjarðar, sem náttúruverndarnefnd, þakkar NAUST erindið og jafnframt fyrir það mikilvæga framlag sem samtökin vinna í þágu náttúrunnar.
Heimastjórn tekur undir að vaxandi útbreiðsla ágengra plöntutegunda er vandamál víða. Á Borgarfirði hafa íbúar haft áhyggjur, meðal annars af útbreiðslu lúpínu og kerfils í bæjarlandinu.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

7.Íbúafundir heimastjórnar Borgarfjarðar

Málsnúmer 202609227Vakta málsnúmer

Heimastjórn áætlar að halda íbúafund þann 12. nóvember næstkomandi og vonast til að sjá sem flesta. Fyrirkomulag fundarins verður auglýst nánar þegar nær dregur.

8.Skýrsla fulltrúa sveitarstjóra á Borgarfirði

Málsnúmer 202605188Vakta málsnúmer

Síðsumars var hafist handa við að skipta um klæðningu á Ásbrún sem er parhús í eigu Múlaþings. Verkinu er nú lokið og ánægjulegt að sjá breytinguna á húsinu.

Í sumar var lokið við að steypa gangstétt meðfram þorpsgötunni. Einnig voru byggðar tvær hraðahindranir, annars vegar milli Eyrarbratta og Fjarðarborgar hins vegar milli Bakkagerðiskirkju og Heiðmarkar.

Leiksvæðið milli Fjarðarborgar, grunnskóla og Sparkhallar og umhverfi þess hefur verið samfélagsverkefni heimastjórnar síðustu tvö ár. Mótun umhverfis er langt komin, svæðið var tyrft, borið í göngustíga og nú er búið að planta trjágróðri umhverfis svæðið.

Leiguíbúðin Dagsbrún 2 verður auglýst til leigu á næstunni á vef Múlaþings.

HEF veitur hófu tilraunaboranir eftir heitu vatni við Desjarmýri í vikunni. Stefnt er að borun við Sparkhöllina um þar næstu helgi. Miðað er við að verkið taki 2-3 daga á hverjum stað og klárist í október ef veður leyfir.

9.Fundir heimastjórnar Borgarfjarðar

Málsnúmer 202605187Vakta málsnúmer

Næsti fundur heimastjórnar verður haldinn fimmtudaginn 5. nóvember 2026. Erindi fyrir fundinn þurfa að berast fyrir kl. 12:00 föstudaginn 30. október. Erindi skal senda á netfangið alda.kristinsdottir@mulathing.is eða bréfleiðis til skrifstofu.

Fundi slitið - kl. 15:15.

Getum við bætt efni þessarar síðu?