Fara í efni

Ósk um úthlutun svæðis fyrir hjólabraut á Borgarfirði

Málsnúmer 202608016

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Borgarfjarðar - 71. fundur - 10.08.2026

Fyrir liggur erindi frá Árna Magnúsi Magnusson, dagsett 28. júlí 2026 með ósk um úthlutun svæðis fyrir hólabraut fyrir hjólreiðaþjálfun.
Málinu frestað til næsta fundar.

Heimastjórn Borgarfjarðar - 72. fundur - 07.09.2026

Fyrir liggur erindi frá Árna Magnúsi Magnusson, dagsett 28. júlí 2026, með ósk um úthlutun svæðis fyrir hólabraut fyrir hjólreiðaþjálfun.
Máli frestað.

Heimastjórn Borgarfjarðar - 73. fundur - 01.10.2026

Í upphafi máls vakti Óttar Már Kárason athygli á mögulegu vanhæfi sínu. Var það borið upp og samþykkt með tveimur greiddum atkvæðum, einn sat hjá.

Fyrir liggur erindi frá Árna Magnúsi Magnusson, dagsett 28. júlí 2026, með ósk um úthlutun svæðis fyrir hóla/hindranabraut fyrir hjólreiðaþjálfun. Árni Magnús kom inn á fundinn og þakkar heimastjórn honum fyrir greinargott erindi.
Heimastjórn Borgarfjarðar felur starfsmanni að vinna málið áfram í samráði við umsækjanda og vísar erindinu til umhverfis- og framkvæmdaráðs.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Gestir

  • Árni Magnús Magnusson - mæting: 13:20
Getum við bætt efni þessarar síðu?