Fara í efni

Sveitarstjórn Múlaþings

73. fundur 11. nóvember 2026 kl. 13:00 - 15:48 í fundarsal sveitarstjórnar, Lyngási 12 Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir aðalmaður
  • Jónína Brynjólfsdóttir forseti
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir aðalmaður
  • Lárus Bjarnason aðalmaður
  • Eiður Ragnarsson aðalmaður
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir aðalmaður
  • Ívar Karl Hafliðason aðalmaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson aðalmaður
  • Þórey Birna Jónsdóttir aðalmaður
  • Oddný Björk Daníelsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Hlynur Jónsson fundarritari
  • Hrund Erla Guðmundsdóttir starfsmaður tæknisviðs
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Fjárhagsáætlun Múlaþings 2027 til 2030

Málsnúmer 202606136Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fjárhagsáætlun Múlaþings fyrir árið 2027, ásamt þriggja ára áætlun áranna 2028 til 2030, sem vísað var frá byggðaráði Múlaþings til fyrri umræðu í sveitarstjórn. Þá liggur fyrir tíu ára fjárfestingaráætlun sem byggðaráð vísaði á sama fundi til samþykkis hjá sveitarstjórn.
Til máls tóku: Dagmar Ýr Stefánsdóttir, Berglind Harpa Svavarsdóttir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir að vísa fjárhagsáætlun 2027, ásamt þriggja ára áætlun, til síðari umræðu hjá byggðaráði og sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Gjaldskrár 2027

Málsnúmer 202610227Vakta málsnúmer

Fyrir liggja gjaldskrár fyrir leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, frístundaþjónustu og íþróttamannvirki fyrir árið 2027 sem samþykktar voru á fundi fjölskylduráðs Múlaþings 2. nóvember 2026.

Þá liggja fyrir gjaldskrár hafna, úrgangs, hunda- og kattahalds, þjónustumiðstöðva og skipulags- og byggingarmála fyrir árið 2027 sem samþykktar voru á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs 2. nóvember 2026.

Einnig liggur fyrir tillaga að álagningarhlutfalli útsvars ásamt gjaldskrá fasteignagjalda í Múlaþingi árið 2027.
Til máls tóku: Ásrún Mjöll Stefánsdóttir, Þórhildur Katrín Stefánsdóttir, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Eiður Ragnarsson, Ívar Karl Hafliðason, Jónína Brynjólfsdóttir, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Ásrún Mjöll Stefánsdóttir, Ívar Karl Hafliðason.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir að álagningarhlutfall útsvars fyrir árið 2027 verði 14,97%.

Sveitarstjórn samþykkir eftirfarandi álagningarhlutföll fasteignaskatta 2027:

- Álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði, A-flokkur: 0,43%.
- Álagningarhlutfall fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði, C-flokkur: 1,60%.
- Álagningarhlutfall fasteignaskatts á opinbert húsnæði, B-flokkur: 1,32%.
- Lóðaleiga: 0,75% af lóðamati.

Fjöldi gjalddaga fasteignagjalda verði 9 talsins og fyrsti gjalddagi verði 1. febrúar 2027 og síðasti 1. október 2027.

Heimild til lækkunar fasteignaskatts hjá tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum 2027:

- Hámark afsláttar verði 159.666 krónur.

Viðmiðunartölur tekna hjá einstaklingi verði:
- Lágmark: 6.136.983 krónur.
- Hámark: 7.978.079 krónur.

Viðmiðunartölur tekna hjá hjónum verði:
- Lágmark: 8.630.531 krónur.
- Hámark: 10.933.244 krónur.

Rotþróargjöld verði 25.000 krónur á ári fyrir rotþró allt að 6 rúmmetrum.
- Fyrir stærri rotþrær en 6 rúmmetrar verði rotþróargjald 5.900 krónur á ári fyrir hvern rúmmetra þróar.
- Önnur gjöld fylgja byggingarvísitölu, samanber 4. málsgrein 7. greinar gildandi gjaldskrár HEF veitna ehf. um fráveitu Múlaþings og verða uppfærð samkvæmt venju.

Miðað er við að álagningarhlutföll vatnsgjalda verði eftirfarandi:
- Vatnsgjald á fermetra í húsnæði: 305 krónur auk 10.721 króna fastagjalds.
- Árlegt vatnsgjald af sumarhúsum/frístundahúsum skal þó að lágmarki vera 38.000 krónur.

Sveitarstjórn samþykkir eftirfarandi sorpgjöld fyrir árið 2027. Sorpgjöld skiptast í sorphirðugjöld og fast gjald.

Sorphirðugjöld eru árgjöld fyrir hvert ílát sem er allt að 15 metrum frá hirðubíl:
- Blandaður úrgangur: 140L 19.780 krónur, 240L 33.920 krónur, 360L 50.940 krónur, 660L 93.370 krónur og 1.100L 155.595 krónur.
- Pappír og pappi: 240L 9.840 krónur, 360L 14.760 krónur, 660L 27.060 krónur og 1.100L 45.100 krónur.
- Plast: 240L 9.840 krónur, 360L 14.760 krónur, 660L 27.060 krónur og 1.100L 45.100 krónur.
- Matarleifar: 120L eða 140L 13.830 krónur.

Ílát af stærðunum 660L og 1.100L fyrir blandaðan úrgang og pappír eru aðeins í boði fyrir fjölbýli og íbúðarhús í dreifbýli. Ílát af þeim stærðum fyrir plast eru aðeins í boði fyrir fjölbýli.

Fast gjald verður 17.680 krónur á fasteignir í A-flokki og 47.150 krónur á fasteignir í B- og C-flokki.

Á hvert frístundahús í sumarhúsahverfi með fleiri en 20 sumarhúsum verður lagt sorphirðugjald að fjárhæð 22.550 krónur.

Að öðru leyti eru fyrirliggjandi gjaldskrár leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, frístundaþjónustu og íþróttamannvirki fyrir árið 2027 sem samþykktar voru á fundi fjölskylduráðs Múlaþings 2. nóvember 2026 staðfestar í heild sinni, að undanskilinni gjaldskrá Tónlistarskóla Norður-Héraðs fyrir árið 2027, en gjaldskrá hans er vísað aftur til umfjöllunar í fjölskylduráði.

Einnig eru fyrirliggjandi gjaldskrár hafna, úrgangs, hunda- og kattahalds, þjónustumiðstöðva og skipulags- og byggingarmála fyrir árið 2027 sem samþykktar voru á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs 2. nóvember 2026 staðfestar í heild sinni.

Samþykkt með níu atkvæðum, tveir sátu hjá (HHÁ og ÁMS).

3.Samþykkt um stjórn Múlaþings, breytingatillaga

Málsnúmer 202610127Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að breytingum á samþykkt um stjórn Múlaþings og viðaukum við hana auk minnisblaðs um breytingarnar. Málið var tekið fyrir í byggðaráði Múlaþings 27. október sem vísaði tillögunni til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
Til máls tóku: Berglind Harpa Svavarsdóttir, Helgi Hlynur Ásgrímsson, Berglind Harpa sem svaraði Helga Hlyni.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir að vísa tillögu að breytingu á samþykkt um stjórn Múlaþings og viðaukum við hana til síðari umræðu í byggðaráði og sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Kosning fulltrúa í embætti, stjórnir, ráð og nefndir

Málsnúmer 202605189Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að skipun ungmennaráðs Múlaþings.
Til máls tók: Berglind Harpa Svavarsdóttir.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi tillögu um skipan ungmennaráðs Múlaþings, og að eftirtaldir einstaklingar skipi ráðið:

Aðalfulltrúar:
Íris Martinez, Egilsstaðaskóla.
Kristmundur Karl Björnsson, Egilsstaðaskóla.
Tryggvi Hrafn Ingvason, Seyðisfjarðarskóla.
Snærós Arna Daðadóttir, Brúarársskóla.
Þórhallur Óskarsson, Djúpavogsskóla.
Rakel Wium Ágústsdóttir, Menntaskólanum á Egilsstöðum.
Jóhann Smári Kjartansson, Menntaskólanum á Egilsstöðum.
Anna Zofia Durczok, Fellaskóla.
Sólgerður Vala Kristófersdóttir, Vegahúsinu.
Bríet Eva Ágústsdóttir, UÍA.

Varafulltrúar:
Hallgrímur Vopni Davíðsson, Egilsstaðaskóla.
Styrmir Vigfús Guðmundsson, Egilsstaðaskóla.
Heiðrún Lára Kristjánsdóttir, Seyðisfjarðarskóla.
Katrín Salka Brynjólfsdóttir, Djúpavogsskóla.
Alexander Kristjánsson, Fellaskóla.
Hallgrímur Egill Másson, Menntaskólanum á Egilsstöðum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Aðgerðaráætlun farsældarráðs 2027-2030

Málsnúmer 202610133Vakta málsnúmer

Fyrir liggur aðgerðaáætlun Farsældarráðs Austurlands fyrir árin 2027-2030. Málið var tekið fyrir í fjölskylduráði Múlaþings 19. október 2026 sem vísaði því til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Til máls tóku: Lárus Bjarnason, Jónína Brynjólfsdóttir, Lárus Bjarnason.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi aðgerðaáætlun Farsældarráðs Austurlands fyrir árin 2027 til 2030. Sviðsstjóra velferðar falið að birta aðgerðaráætlunina á vefsíðu sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Reglur leikskóla í Múlaþingi

Málsnúmer 202610228Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að uppfærðum reglum um leikskóla Múlaþings sem samþykktar voru í fjölskylduráði Múlaþings 2. nóvember 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir fyrirliggjandi drög að uppfærðum reglum um leikskóla Múlaþings. Sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu falið að birta reglurnar á vefsíðu sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Tómstundaframlag Múlaþings

Málsnúmer 202511244Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga um hækkun á tómstundastyrk Múlaþings um 2.500 krónur frá og með 1. janúar 2027, en þá mun styrkurinn nema 47.500 krónum. Fjölskylduráð samþykkti hækkunina á fundi sínum 26. október 2026 og vísaði málinu til afgreiðslu hjá sveitarstjórn.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir að tómstundaframlag samkvæmt reglum um tómstundaframlag fyrir börn og ungmenni í Múlaþingi hækki um 2.500 krónur og verði 47.500 krónur á hvert barn frá og með 1. janúar 2027. Fjárhæðin í reglunum verði uppfærð til samræmis.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Loftbrú

Málsnúmer 202610190Vakta málsnúmer

Innviðaráðuneytið birti frétt á heimasíðu sinni 23. október 2026 þar sem boðaðar eru breytingar á fyrirkomulagi Loftbrúar. Byggðaráð Múlaþings tók málið fyrir á fundi 27. október 2026.
Til máls tóku: Jónína Brynjólfsdóttir, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Helgi Hlynur Ásgrímsson.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings tekur undir bókun byggðaráðs frá 27. október 2026 og ítrekar andstöðu sína við boðaðar breytingar á Loftbrú. Í þeim felst að 40% afslætti af flugfargjöldum verði skipt út fyrir fasta niðurgreiðslu að fjárhæð 9.000 krónur á hvern fluglegg.

Innanlandsflug er íbúum Múlaþings nauðsynlegt til að sækja þjónustu sem ekki er veitt í heimabyggð. Íbúar ráða oft litlu um tímasetningu slíkra ferða, og föst niðurgreiðsla rýrnar hlutfallslega eftir því sem fargjöld hækka. Breytingarnar myndu því auka kostnaðarbyrði íbúa landsbyggðarinnar og draga úr raunverulegu aðgengi þeirra að nauðsynlegri þjónustu. Svo veigamiklar breytingar á mikilvægri byggðaaðgerð þarf að undirbúa betur og í samráði við þá sem þær snerta.

Sveitarstjórn fer fram á að innviðaráðherra fresti gildistöku breytinganna um eitt ár og að núverandi fyrirkomulag gildi óbreytt á meðan. Jafnframt óskar sveitarstjórn eftir því að ráðherra skipi starfshóp sem fari heildstætt yfir fyrirkomulag og fjármögnun Loftbrúar. Í starfshópnum eigi sæti fulltrúar sveitarfélaga á landsbyggðinni. Starfshópurinn skili tillögum innan árs um framtíðarfyrirkomulag Loftbrúar sem taki gildi að frestunartímanum loknum.

Sveitarstjóra falið að koma bókuninni á framfæri við innviðaráðherra.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

9.Heimastjórn Borgarfjarðar - 74

Málsnúmer 2610026FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Borgarfjarðar frá 5. nóvember 2026.
Til máls tóku: Þórey Birna Jónsdóttir um liði 5 og 3, Ívar Karl Hafliðason um lið 3, Ásrún Mjöll Stefánsdóttir um liði 5 og 3, Eiður Ragnarsson um liði 5 og 1, Ívar Karl sem svaraði Ásrúnu Mjöll um lið 3, Helgi Hlynur Ásgrímsson um lið 3, Ásrún Mjöll sem svaraði Ívari Karli um lið 3, Ívar Karl sem svaraði Ásrúnu Mjöll um lið 3, Þórey Birna Jónsdóttir um lið 3.

Lagt fram til kynningar.

10.Heimastjórn Djúpavogs - 75

Málsnúmer 2610023FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Djúpavogs frá 5. nóvember 2026.
Til máls tók: Eiður Ragnarsson um lið 3.

Lagt fram til kynningar.

11.Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 74

Málsnúmer 2610015FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Fljótsdalshéraðs frá 9. nóvember 2026.
Til máls tók: Ívar Karl Hafliðason um liði 3 og 6, Eiður Ragnarsson um liði 6, 1 og 4, Ívar Karl Hafliðason um lið 4, Þórey Birna Jónsdóttir um lið 6.

Lagt fram til kynningar.

12.Heimastjórn Seyðisfjarðar - 73

Málsnúmer 2610003FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð heimastjórnar Seyðisfjarðar frá 5. nóvember 2026.
Til máls tóku: Ívar Karl Hafliðason um lið 3, Lárus Bjarnason um lið 1, Helgi Hlynur Ásgrímsson um lið 1, Ívar Karl Hafliðason um lið 1.

Lagt fram til kynningar.

13.Byggðaráð Múlaþings - 202

Málsnúmer 2610010FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs Múlaþings frá 20. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

14.Byggðaráð Múlaþings - 203

Málsnúmer 2610014FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs Múlaþings frá 27. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

15.Byggðaráð Múlaþings - 204

Málsnúmer 2610027FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð byggðaráðs Múlaþings frá 3. nóvember 2026.
Lagt fram til kynningar.

16.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 196

Málsnúmer 2610009FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings frá 19. október 2026.
Til máls tók: Eiður Ragnarsson um lið 8, Þórhildur Katrín Stefánsdóttir um lið 8, Eiður sem svaraði Þórhildi Katrínu um lið 8, Þórhildur Katrín sem svaraði Eiði um lið 8, Helgi Hlynur Ásgrímsson um lið 8, Þórey Birna Jónsdóttir um lið 8.

Lagt fram til kynningar.

17.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 197

Málsnúmer 2610017FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings frá 26. október 2026.
Til máls tók: Ívar Karl Hafliðason um lið 1.

Lagt fram til kynningar.

18.Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 198

Málsnúmer 2610025FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings frá 2. nóvember 2026.
Til máls tók: Ásrún Mjöll Stefánsdóttir um lið 7, Eiður Ragnarsson um lið 7, Helgi Hlynur Ásgrímsson um lið 7, Eiður sem svaraði Helga Hlyni um lið 7.

Lagt fram til kynningar.

19.Fjölskylduráð Múlaþings - 171

Málsnúmer 2610011FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð fjölskylduráðs Múlaþings frá 19. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

20.Fjölskylduráð Múlaþings - 172

Málsnúmer 2610019FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð fjölskylduráðs Múlaþings frá 26. október 2026.
Lagt fram til kynningar.

21.Fjölskylduráð Múlaþings - 173

Málsnúmer 2610028FVakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð fjölskylduráðs Múlaþings frá 2. nóvember 2026.
Til máls tók: Ívar Karl Hafliðason um lið 6.

Lagt fram til kynningar.

22.Skýrsla sveitarstjóra 2026

Málsnúmer 202601052Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri fór yfir og kynnti helstu mál sem hann hefur unnið að undanförnu og þau verkefni sem fram undan eru.

Fundi slitið - kl. 15:48.

Getum við bætt efni þessarar síðu?